Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1073. fundur
23. febrúar 2023 kl. 10:00 - 12:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir formaður
Gauti Árnason varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Fræðslu- og frístundanefnd - 98
Málsnúmer 2301020F
Fundargerðin samþykkt.
2.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 52
Málsnúmer 2302012F
Fundargerðin samþykkt.
3.
Beiðni - Styrkur til stækkunar starfsemi Fenris ehf.
Málsnúmer 202301046
Sveitarfélagið óskaði eftir lögfræðiáliti frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga vegna beiðni frá Fenri ehf. um rekstrarstyrk. Í beiðni Fenris ehf. er vísað í að sveitarfélagið styrki nú þegar líkamsrækt og óskað að sveitarfélagið styrki Fenri ehf. með svipuðum hætti og vísað til jafnræðis- og samkeppnissjónarmiða.
Bæjarráð áréttar að rekstur líkamsræktarstöðvarinnar við Álaugarveg var auglýstur síðasta sumar. Sveitarfélagið er ekki að reka líkamsræktina en leigir út húsnæði og tæki.
Í niðurstöðu lögfræðiálits kemur fram að ekki myndist skylda til þess að veita crossfitstöðinni Fenrir ehf. rekstrarstyrk þrátt fyrir að sveitarfélagið leigi öðrum aðila út húsnæði og tæki fyrir líkamsrækt.
Bæjarráð getur ekki orðið við beiðni Fenrir ehf. um rekstrarstyrk en í ljósi þess að um er að ræða frábært frumkvæði og öflugt starf sem eykur lýðheilsu í sveitarfélaginu óskar bæjarráð eftir frekari gögnum frá Fenri ehf. um styrk til tækjakaupa en sá liður var ekki nánar sundurliðaður í erindinu.
Bæjarstjóra falið að vinna málið áfram.
4.
Framlenging á samningi um skólaakstur í Öræfum
Málsnúmer 202301075
Samningur um skólaakstur í Öræfum sem gerður var í júlí 2019 við 785 FHM rennur út í júlí n.k. Samningurinn býður upp á framlengingu til eins árs.Fræðslu- og frístundanefnd lagði til að gengið verði til samninga við 785 FHM um framlengingu á skólaakstri í Öræfum til eins árs eins og leyfilegt er.
Bæjarráð samþykkir að framlengja samning við 785 FHM til eins árs.
5.
Framlenging á samningi um skólaakstur austan Öræfa
Málsnúmer 202301074
Samningur um skólaakstur austan Öræfa sem gerður var í júlí 2019 við Fallastakk rennur út í júlí n.k. Samningurinn býður upp á framlengingu til eins árs.Fræðslu- og frístundanefnd lagði til að gengið verði til samninga við Fallastakk um framlengingu á skólaakstri austan Öræfa til eins árs eins og leyfilegt er.
Bæjarráð samþykkir að framlengja samning við Fallastakk ehf. til eins árs.
6.
Ósk um viðhald á búnaði í Sporthöllinni
Málsnúmer 202301042
Verð í viðhald á tækjum sveitarfélagsins í líkamsræktarstöð að Álaleiru er 610.529 kr.
Bæjarráð samþykkir að veita 610.529 kr. í viðhald á tækjum sveitarfélagsins sem er kostnaður á beltum í hlaupabretti og pedala á fótstigstæki.
Fjármunir teknir af óráðstöfuðu.
7.
Fundargerðir - Samtök orkusveitarfélaga 2023
Málsnúmer 202302041
Fundargerðin lögð fram til kynningar.