Bæjarráð Hornafjarðar
1075. fundur
9. mars 2023
kl.
10:00
-
11:35
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir
formaður
Gauti Árnason
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 53
Fundargerð samþykkt.
2.
Hverfisráð - Íbúaráð
Bæjarráð hefur haft undibúning að stofnun þriggja íbúaráða í Suðursveit og Mýrum, Nesjum og Lóni og Öræfum. Ákveðið var að hefja vinnuna með því að óska eftir að fólk gefi sig fram ti þessl að taka þátt í að undirbúa formlega stofnun ráðanna í samráði við starfsfólk sveitarfélgasins.
Bæjarráð samþykkir erindisbréfið og felur starfsmanni að auglýsa eftir áhugasömum íbúum til þátttöku í tilraunaverkefni um íbúaráð til eins árs.
3.
Upplýsingamiðstöð - Gamlabúð
Bæjarráð samþykkir að auglýsa Gömlubúð til leigu og felur starfsmanni að auglýsa.
4.
Fjórðungsmót á Austurlandi - Styrktarbeiðni
Erindi frá fjórðungsmótsnefnd Hestamannafélagsins Freyfaxa sem mun halda fjórðurngsmót á Austurlandi sem haldið verður 6.-9. júlí á Stekkhólma, 11 km. frá Egilsstöðum
Vísað til atvinnu- og ferðamálafulltrúa.
5.
Fundargerðir - stjórn Nýheima Þekkingarseturs
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
6.
Fundargerðir - Samtök orkusveitarfélaga 2023
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
7.
Umsögn - Tillaga til þingsályktunar um innleiðingu lýðheilsumats í ísleska löggjöf
Erindi frá velferðarnefnd Alþingis þar sem óskað er eftir umsögn við tillögu til þingsályktunar um innleiðingu lýðheilsumats í íslenska löggjöf, 25. mál. Umsagnafrestur er til 14. mars nk.
Bæjarráð hvetur til þess að þingsályktunin verði samþykkt en áréttar jafnframt að málið sé metið til tilliti til áhrifa á sveitarfélög, sé ekki íþyngjandi ef svo er, þá fylgi fjármagn svo hægt sé að sinna verkefninu.
8.
Ósk um umsögn um breytingu á frumvarpi til laga um skipulagslög 144.mál
Erindi frá umhverfis- og samgöngunefnd þar sem óskað er eftir umsögn við tillög á breytingum á skipulagslög umsagnarfrestur er til 14. mars.
Starfsmönnum falið að ítreka umsögn sveitarfélasgins frá fyrri stigum.
9.
Umsókn um lóð - Víkurbraut 34
Erindi frá Jóni Malmquist Guðmundssyni þar sem óskað er eftir framlengingu á fresti um framkvæmdum á lóð að Víkurbraut 34 um þrjá mánuði.
Bæjarráð samþykkir að veita frest til 1. júní 2023.