Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1076. fundur
16. mars 2023 kl. 10:00 - 11:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir formaður
Gauti Árnason varaformaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson varamaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Humarhátíð
Málsnúmer 202301049
Ósk Humarhátíðarnefndar um auknar fjárheimildir til þess að halda Humarhátið 2023.
Bæjarráð samþykkir að veita auka styrk upp á 2. milljónir til hátíðarhalda á Humarhátið sem er haldin í 30 sinn.
Fjármunirnir verða teknir af óráðstöfuðu.
2.
Ósk um viðhald á búnaði í Sporthöllinni
Málsnúmer 202301042
Ósk um endurnýjun á brjóstapressu sem er ónýt.
Bæjarráð samþykkir að veita fjármuni til endurnýjunar á brjóstapressu fyrir líkamsræktarstöð sveitarfélagsins.
Vísað til fjármálastjóra.
3.
Ósk um félagsmiðstöð í Hrollaugsstöðum
Málsnúmer 202303047
Erindi frá Ungmennafélaginu Vísi þar sem óskað er eftir afnotum af Hrollaugsstöðum og styrk til tækjakaupa til þess að koma upp félagsaðstöðu. Kostnaðaráætlun fyrir endurnýjun á húsnæði í kjallara Hrollaugsstaða lögð fram, áætlað er að það kosti 1.270 þúsund.
Bæjarráð fagnar framtaki Ungmennafélagsins Vísis og aukinni notkun á Hrollaugsstöðum.
Bæjarráð samþykkir að veita styrk til tækjakaupa upp á 500 þúsund. Bæjarráð samþykkir að veita 1.270 þúsund í endurbætur á húsnæði í kjallara Hrollaugsstaða þannig að koma megi á fót félagsaðstöðu. Starfsmönnum falið að vinna að endurbótum á húsnæðinu og gera samning um afnot af aðstöðunni við Ungmennafélagið Vísi.

4.
Krafa um bætur vegna sigs á bílskúr
Málsnúmer 202302075
Erindi frá Þorleifi Olsen þar sem hann fer fram á bætur vegna sigs á bílskur við Miðtún 18.
Bæjarráð felur starfsmönnum að svara erindinu.
5.
Staða sviðsstjóra velferðarsviðs
Málsnúmer 202303063
Erla Björg Sigurðardóttir sviðsstjóri velferðarsviðs hefur sagt upp störfum.
Bæjarráð þakkar Erlu fyrir vel unnin störf og gott samstarf og óskar henni velfarnaðar á nýjum vettvangi.
Bæjarstjóra falið að auglýsa starfið.
6.
Umsókn um aðstöðu í Miklagarði
Málsnúmer 202301054
Hlynur Pálmason óskar eftir að fá afnot af húsnæði sveitarfélagsins í Miklagarði.
Bæjarráð samþykkir að Hlynur fái áframhaldandi afnot af hluta af Miklagarði.
Bæjarstjóra falið að gera samning við Hlyn.
7.
Fundarboð - Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga
Málsnúmer 202303049
Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga verður haldinn þann 31. mars kl. 16:30 á Grand Hótel í Reykjavík.
Lagt fram til kynningar.
Viðhengi
Fundarboð
8.
Fundargerðir - Samband íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 202303059
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
9.
Fundartímar bæjarráðs og bæjarstjórnar
Málsnúmer 202303058
Lagt er til að bæjarráð fundi 5. apríl í stað 6. og 19. apríl í stað 20 apríl og bæjarstjórn fundi 26. apríl í stað 12. apríl.
Bæjarráð samþykkir breytingar á fundartímum í apríl.