Bæjarráð Hornafjarðar
1077. fundur
23. mars 2023
kl.
10:00
-
11:40
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir
formaður
Gauti Árnason
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Fræðslu- og frístundanefnd - 99
Fundargerðin samþykkt.
2.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 54
Fundargerðin samþykkt.
3.
Samningur um vallarumhirðu 2023
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkti samning um vallarumhirðu.Í stað þess að ráða sérstaklega inn fólk í afleysingar í Íþróttamiðstöðinni eða í vallarumhirðu hefur Íþróttamiðstöðin f.h. Sveitarfélagsins Hornafjarðar gert samning við Sindra um vallarumhirðu og afleysingar í Íþróttamiðstöð.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi samming um vallarumhirðu með fyrirvara um að ítarleg verklýsing verði lög fram við fyrsta tækifæri.
4.
Öryggismyndavélar
Ásgerður vék af fundi undir þessum lið. Uppseting myndavéla við Lónvegamót er að verða tilbúin, búið er að kaupa búnað. Uppsetning og tengingar eru eftir, reiknað er með að það sem útaf stendur muni kosta ca. 1.000.000 kr.
Bæjarráð samþykkir að veita 1.000.000 kr. til uppsetningar og tengingu á öryggismyndavélum, fjármunir teknir af óráðstöfuðu.
5.
Verðkönnunn - Götulýsing Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Verðkönnun hefur farið fram verið er að vinna úr innsendum tilboðum.
Lagt fram til kynningar.
6.
C.10 Þróun aðlögunaraðgerða vegna áhrifa loftslagsbreytinga á sveitarstjórnarstigi
Sveitarfélaginu Hornafirði er boðin þátttaka í aðgerð C.10 í byggðaáætlun - Áhrif loftlagsbreytinga og sveitarfélög. Fyrir hönd Umhverfis- og skipulagsnefndar munu Helga Árnadóttir og Ásgerður Gylfadóttir fylgja verkefninu eftir.
Lagt fram til kynningar.
7.
Ályktun frá Búnaðarfélagi Lónsmanna
Erindi frá Búnaðarfélagi Lónsmanna þar sem félagið sendir bæjarráði ályktanir um íbúaráð og hrægáma.----Ályktun frá aðalfundi Búnaðarfélags Lónsmanna til Sveitastjórnar Sveitafélagsins Hornafjarðar: ÍbúaráðBúnaðarfélagi Lónsmanna eini starfrækti félagskapurinn í Lón mótmælir því að Lón og Nes séu sett undir sama hatt í fyrirhugaðri skipan íbúaráða. Það er fyrir séð að það muni halla á aðra hvora sveitina í þriggja manna ráði og trúlega yrði það hlutskipti Lónmanna þar sem atkvæða magnið er meira í Nesjum á ársgrundvelli. Vert er að benda á að íbúatala Lóns margfaldast á sumrin, einnig er vert að benda á að Lón og Nes hafa engin sameiginleg málefni umfram þorrablót og sauðfé sem ruglast á milli svæða. Því geta Lónmenn eins verið með Öræfingum í félagi og kannski betra þar sem núningur yrði miklu minni.Það er því eindreginn vilji fundarmanna að Lónmenn fái sjálfræði yfir sínum málum ef það er hugsun sveitarstjórna að afsala sér völdum og verkefnum í hina gömlu hreppi.Ef sveitarstjórn ætlar að halda sig við þessa svæða skiptingu er það ósk okkar Lónmanna að bæjarstjórn upplýsi íbúa á hvaða rökum þessi svæða skipting er ákveðin og hvaða sameiginlega málefni Lón og Nes hafa í huga bæjarstjórnar.Ályktun frá aðalfundi Búnaðarfélags Lónsmanna til Sveitastjórnar Sveitafélagsins Hornafjarðar ----HrægámarÞar sem sveitarfélagið hefur tekið þá ákvörðun að hafa hrægáminn vestast í sveitinni og það er orðið um það bil 40 km ferðalag að fara með hræ í gáminn fyrir austasta bæ er það ósk Búnaðarfélags Lónsmanna að sveitarfélagið staðsetji einnig hrægám austast í sveitinni.
Bæjarráð þakkar Búnaðarfélagi Lónsmanna erindið.
ÍBÚARÁÐ:
Bæjarráð hyggst stofna þrjú íbúaráð fyrir dreifbýli sveitarfélagsins og er hugmyndin að skipta þeim þannig að eitt þriggja manna ráð sé í Öræfum, annað í Suðursveit og á Mýrum, og þriðja ráðið fyrir Nes og Lón.
Um er að ræða nýjung hjá okkur sem ætlað er að efla íbúalýðræði og samtal innan sveitarfélagsins okkar. Ekki er um að ræða einhvers konar afsal á völdum til ráðanna heldur munu íbúaráðin vera ráðgefandi fyrir stjórnsýslu sveitarfélagsins og er ætlað að tengja þarfir og áherslur íbúa í dreifbýli við stjórnkerfið þannig að nýta megi betur þekkingu fólks á sínu nánasta umhverfi.
Til að byrja með verða íbúaráðin þrjú og stendur til að prófa það fyrirkomulag í eitt ár. Eftir það mun bæjarráð endurmeta árangur samstarfs við íbúaráðin og leggja mat á fyrirkomulagið og hvort íbúaráðin eigi að vera þessi þrjú, færri eða fleiri.
Bæjarráð vill hvetja þá íbúa sem áhuga hafa á að taka þátt í íbúaráðum að láta okkur vita með því að senda okkur tölvupóst á afgreidsla@hornafjordur.is.
HRÆGÁMAR:
Bæjarráð vísar erindi til skoðunar hjá verkefnastjóra umhverfismála.
ÍBÚARÁÐ:
Bæjarráð hyggst stofna þrjú íbúaráð fyrir dreifbýli sveitarfélagsins og er hugmyndin að skipta þeim þannig að eitt þriggja manna ráð sé í Öræfum, annað í Suðursveit og á Mýrum, og þriðja ráðið fyrir Nes og Lón.
Um er að ræða nýjung hjá okkur sem ætlað er að efla íbúalýðræði og samtal innan sveitarfélagsins okkar. Ekki er um að ræða einhvers konar afsal á völdum til ráðanna heldur munu íbúaráðin vera ráðgefandi fyrir stjórnsýslu sveitarfélagsins og er ætlað að tengja þarfir og áherslur íbúa í dreifbýli við stjórnkerfið þannig að nýta megi betur þekkingu fólks á sínu nánasta umhverfi.
Til að byrja með verða íbúaráðin þrjú og stendur til að prófa það fyrirkomulag í eitt ár. Eftir það mun bæjarráð endurmeta árangur samstarfs við íbúaráðin og leggja mat á fyrirkomulagið og hvort íbúaráðin eigi að vera þessi þrjú, færri eða fleiri.
Bæjarráð vill hvetja þá íbúa sem áhuga hafa á að taka þátt í íbúaráðum að láta okkur vita með því að senda okkur tölvupóst á afgreidsla@hornafjordur.is.
HRÆGÁMAR:
Bæjarráð vísar erindi til skoðunar hjá verkefnastjóra umhverfismála.
8.
Tillaga - Bættar aðstæður kjörinna fulltrúa
Erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og innviðaráðuneytinu þar sem lagðar eru fram tillögur verkefnisstjórnar um bættar starfsaðstæður kjörinna fulltrúa. Verkefnisstjórnin skilaði af sér yfirgripsmiklum tillögum til að bæta starfsaðstæður og starfskjör kjörinna fulltrúa í sveitarstjórnum þann 24. nóvember síðastliðinn. Vinna stendur yfir á vegum ráðuneytisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga við að fylgja tillögunum eftir.
Bæjarráð þakkar fyrir hvatninguna og er meðvitað um að fylgjast með og skoða þá þætti sem eiga við í Sveitarfélaginu Hornafirði.
9.
Úthlutun byggðakvóta 2022-2023
Matvælaráðuneytið hefur fallist á tillögur sveitarstjórnar um sérreglur regluerðar um úthlutun byggðarkvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2022/2023. Ráðherra hefur undirritað auglýsingu um (1.) staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2022/2023. Auglýsingin var send Stjórnartíðindum til birtingar og ráðuneytið mun í framhaldinu beina því til Fiskistofu að auglýsa byggðakvóta Hafnar til umsóknar án tafar.
Lagt fram til kynningar.
10.
Umsögn um útgáfu leyfa - Árshátíð starfsmanna Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Erindi frá Sýslumanninum á suðurlandi þar sem óskað er eftir umgögn um tækifærisleyfi fyrir áfengisleyfi vegna árshátíðar starfsmanna sveitarfélagsins.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn.
11.
Fundargerðir stjórnar SASS
Fundargerðin lögð fram til kynningar.