Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1078. fundur
30. mars 2023 kl. 10:00 - 11:35
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir formaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir varamaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson varamaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Velferðarnefnd - 22
Málsnúmer 2302014F
Fundargerð samþykkt.
2.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 50
Málsnúmer 2303013F
Fundargerð samþykkt.
3.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 254
Málsnúmer 2303018F
Fundargerð samþykkt.
4.
C.10 Þróun aðlögunaraðgerða vegna áhrifa loftslagsbreytinga á sveitarstjórnarstigi
Málsnúmer 202211036
Sveitarfélaginu Hornafirði er boðin þátttaka í aðgerð C.10 í byggðaáætlun - Áhrif loftlagsbreytinga á sveitarfélög. Fyrir hönd Umhverfis- og skipulagsnefndar munu Helga Árnadóttir og Ásgerður Gylfadóttir fylgja verkefninu eftir.
Bæjarráð samþykkir þáttöku í verkefninu aðgerð C.10 í byggðaráætlun- aðlögun sveitarfélaga að áhrifum loftslagsbreytinga. Jafnframt samþykkir bæjarráð að Helga Árnadóttir og Ásgerður K. Gylfadóttir verði fulltrúar sveitarfélagsins.
5.
Móttökustöð fyrir úrgang
Málsnúmer 202208013
Brynja greindi frá starfsmannaeklu í Gárunni móttökustöð fyrir úrgang.
Unnið er að ráðningu starfsfólks á meðan útboð sorphirðu og móttöku er í vinnslu.
6.
Verðkönnun Fráveita Bugðuleira 9
Málsnúmer 202303106
Björgvin vék af fundi undir þessum lið.
Eitt tilboð barst í verkið kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 6.462.500 kr.
Rósaberg bauð 5.649.507 kr.13% undir kostnaðaráætlun.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Rósabergs ehf.
7.
Ákvörðun um endurskoðun aðalskipulags sveitarfélagsins Hornafjarðar 2012-2030
Málsnúmer 202209045
Erindisbréf fyrir stýrihóp um aðalskipulag lagt fram.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi erindisbréf.
8.
Tillaga að stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 202209058
Erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem kemur fram að kjörnefnd leggur til að Einar Brandsson bæjarfulltrúi á Akranesi taki sæti í stjórn sambandsins í stað Lilju Bjargar Ágústsdóttur.
Lagt fram til kynningar.
9.
Auglýsingar í íþróttahúsi - Körfuknattleiksdeild Sindra
Málsnúmer 202303113
Erindi frá Körfuknattleiksdeild Sindra þar sem óskað er eftir leyfi til þess að hengja upp auglýsingaskilti í íþróttahúsinu.
Bæjarráð fagnar góðum árangri í körfuboltanum og samþykkir erindið enda séu merkingar unnar í samtali við forstöðumann íþróttahússins. Bæjarráð áskilur sér þó rétt til að gera breytingar á heimildinni breytist núverandi forsendur hvað varðar aðstöðu. Áfram Sindri!