Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1079. fundur
5. apríl 2023 kl. 10:00 - 11:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir formaður
Gauti Árnason varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Stofnun þjónustusláturhúss og matarsmiðju
Málsnúmer 202105040
Ósk um að breyta skilmálum á styrk til matarsmiðju og þjónustusláturhúss.Þann 7. desember 2021 samþykkti bæjarráð 8,6 m.kr. styrk til stofnunar þjónustusláturhúss og matarsmiðju.
Atvinnu- og ferðamálafulltrúi greindi frá erindi forsvarsmanna um þjónustusláturhús og matarsmiðju á Höfn.
Bæjarráð óskar eftir fundi með forsvarsmönnum verkefnisins.
2.
Gamlabúð - auglýsing vegna leigu
Málsnúmer 202303072
Bæjarráð auglýsti Gömlubúð til leigu og er umsóknarfresturinn runnin út. í auglýsingum kom fram að umsókn skal fylgja greinargerð um fyrirhugaða starfsemi og rekstrarfyrirkomulag í húsinu. Skilmálar sem einkum verður litið til við ákvörðun um val á leigutaka eru eftirfarandi:Aukið aðdráttarafl Hafnar sem áfangastaðar.Áformaður leigutími.Endurgjald fyrir leigu húsnæðis.Opnunartímar.Reynsla og þekking viðkomandi aðila af rekstri.Nýting hússins með tilliti til sérstöðu þes.
Tvær tillögur og umsóknir um rekstur Gömlubúðar bárust.
Farið yfir matsramma og rætt um styrkleika umsóknanna.
Bæjarráð óskar eftir fundi með þeim aðila sem er metinn hærra skv. matsramma bæjarráðs.
3.
Könnun til sveitarfélaga á Suðurlandi
Málsnúmer 202304001
Erindi frá Markaðsstofu Suðurlands sent til allra sveitarfélaga á Suðurlandi.Óskað er eftir því að sveitarstjórn eða bæjarráð ásamt fulltrúa sveitarfélagsins í "Faghópi sveitarfélaganna um ferðamál á Suðurlandi" eða starfsmanni sem fer með málefni ferðaþjónustu hjá sveitarfélaginu fjalli um og svari sameiginlega meðfylgjandi könnun.Könnun þessi er hluti af stefnumótunarvinnu Markaðsstofu Suðurlands og auk þess verða upplýsingar nýttar inn í samningagerð við ríki og sveitarfélög í haust.
Lagt fram til kynningar.
Bæjarráð óskar eftir kynningu frá Markaðsstofu Suðurlands.
4.
Verðkönnunn Götulýsing Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Málsnúmer 202302049
Það bárust tilboð frá 6 aðilum eða 8 tilboð í verðfyrirspurnina 4 þeirra voru hæf til frekari skoðunar. Við mat á tilboðum var litið til kostnaðar (40%) og tæknilegs hæfis og/eða reynslu (60%)Lægsta gilda tilboð er 15.787.582kr í pakkann. og það hæsta 20.107.671kr.Starfsmenn sem og ráðgjafi hafa nú farið yfir tilboðin og metið þau með ofantalið í huga. Reykjafell ehf. var með lægsta tilboðið og var metið hæfast.
Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 18.229.000 kr.
Jóhann Ólafsson 16.077.468 kr.
Rafkaup 20.107.271 kr.
Reykjafell 15.787.582 kr.
S. Guðjónsson 18.925.259 kr.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði Reykjafells ehf.


5.
Viðbygging við leikskólann
Málsnúmer 202304005
Ásgerður K. Gylfadóttir vék af fundi undir þessum lið.Kostnaðaráætlun lögð fram.
Bæjarráð samþykkir að viðbygging við leikskólann verði boðin út.
6.
Upplýsingar frá Orkustofnun - Styrkur til betri orkunýtingar
Málsnúmer 202303115
Orkustofnun hvetur til umhverfisvænnar orkuöflunar við húshitun og bæta orkunýtni í rafhitun á landinu.Með breytingum á lögum um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar var opnað á möguleika ríkisins til að taka þátt í stofnkostnaði við umhverfisvæna orkuöflun sem dregur úr rafhitun eða olíukyndingu. Hægt er að minnka rafhitun með ýmsu móti m.a. með varmadælum, viðarkyndingu o.s.frv.Til íbúðareigenda sem nú hafa niðurgreidda rafhitun og vilja taka upp umhverfisvæna orkuöflun er möguleiki á að sækja um styrk. Um er að ræða eingreiðslustyrk vegna aðgerða sem leiða til betri orkunýtingar við húshitun.
Starfsmönnum falið að auglýsa orkunýtingarstyrkinn á miðlum sveitarfélagsins.
7.
Reglugerð um íbúakosningu
Málsnúmer 202304003
Skv. 107 gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 tekur bæjarstjórn ákvörðun um hvort íbúakosning fari fram, atkvæðagreiðsla getur hafist í fyrsta lagi 36 dögum eftir að boðað er til íbúakosninga.
Bæjarráð felur starfsmönnum að undibúa íbúakosningu um aðal- og deiliskipulag Innbæ.
8.
Umsögn - Tillaga til þingsályktunar um aðgerðaráætlun um þjónustu við eldra fólk
Málsnúmer 202303133
Lagt fram til kynningar.
9.
Umsögn - Frumvarp til laga um breytingar á lögum um fjöleignarhús
Málsnúmer 202303109
Lagt fram til kynningar.
10.
Umsögn - Tillaga til þingsályktunar um matvælastefnu til ársins 2040
Málsnúmer 202303135
Lagt fram til kynningar.