Bæjarráð Hornafjarðar
1081. fundur
19. apríl 2023
kl.
10:00
-
12:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir
formaður
Gauti Árnason
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Ársreikningur Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2022
Bæjarstjórn boðuð á fundinn og mætti undir þessum dagskrárlið þar sem starfsmaður KPMG kynna ársreikninginn.Sigurjón Örn Arnarson, löggiltur endurskoðandi var gestur fundarins undir þessum lið ásamt Sviðsstjóra Fjármála og stjórnsýslusviðs, Ólöfu Ingunni Björnsdóttur.
Bæjaráð þakkar gestum vandaða yfirferð og vísar ársreikningi sveitarfélagsins til fyrri umræðu bæjarstjórnar.
2.
Gamlabúð - auglýsing vegna leigu
Sveitarfélagið Hornafjörður auglýsti nýlega Gömlubúð til leigu m.v. ákveðnar forsendur. Með umsókn skyldi fylgja greinargerð um fyrirhugaða starfsemi og rekstrarfyrirkomulag í húsinu. Skilmálar sem einkum yrði horft til við ákvörðun um val á leigutaka væru eftirfarandi:- Að auka aðdráttarafl Hafnar sem áfangastaðar- Áformaður leigutími- Endurgjald fyrir leigu húsnæðis- Opnunartímar- Reynsla og þekking viðkomandi aðila af rekstri- Nýting hússins með tilliti til sérstöðu þessTvær umsóknir bárust um leigu á Gömlubúð og var önnur umsóknin metin hærra.
Forsvarmenn umsóknar mættu á fund bæjarráðs og gerðu betur grein fyrir sínum hugmyndum og áttu samtal við bæjarráð. Bæjarráð felur bæjarstjóra og atvinnu- og ferðamálafulltrúa ásamt forstöðumanni menningarmiðstöðvarinnar að taka málið áfram og gera leigusamning við umsækjendur sem svo verður lagður fyrir bæjarráð.
3.
Íbúakosning um aðal- og deiliskipulag Innbæ
Innviðaráðuneytið hefur loks samþykkt reglugerð um framkvæmd íbúakosninga. Skv. henni þarf sveitarfélagið að setja sér reglur um íbúakosningu og framkvæmd hennar.
Bæjarráð felur starfsfólki að undirbúa drög að reglum fyrir Hornafjörð um íbúakosningu á aðal- og deiliskipulagi, "Þétting byggðar í Innbæ", sem samþykkt var í bæjarstjórn 12. maí 2021.
Tillaga bæjarráðs að orðalagi spurningarinnar er:
Samþykkir þú að breyting á aðal- og deiliskipulagi í innbæ Hafnar haldi gildi sínu? Já/Nei.
Bæjarráð leggur til að reglur um kosninguna byggi á eftirfarandi:
- Sveitarfélagið er ein kjördeild
- Kosningin er ráðgefandi
- Að Yfirkjörstjórn sveitarfélagsins haldi utan um kosninguna
- Að kjörfundur verði í ráðhúsinu
- Að kosning fari fram á þriggja vikna tímabili
Málinu er vísað til bæjarstjórnar.
Tillaga bæjarráðs að orðalagi spurningarinnar er:
Samþykkir þú að breyting á aðal- og deiliskipulagi í innbæ Hafnar haldi gildi sínu? Já/Nei.
Bæjarráð leggur til að reglur um kosninguna byggi á eftirfarandi:
- Sveitarfélagið er ein kjördeild
- Kosningin er ráðgefandi
- Að Yfirkjörstjórn sveitarfélagsins haldi utan um kosninguna
- Að kjörfundur verði í ráðhúsinu
- Að kosning fari fram á þriggja vikna tímabili
Málinu er vísað til bæjarstjórnar.
4.
Hverfisráð - Íbúaráð
Farið var yfir þá aðila sem þegar hafa boðið fram krafta sína til þátttöku. Því miður hefur ekki enn náðst að fylla í öll ráðin.
Bæjarráð hvetur íbúa dreifbýlis í Hornafirði til að bjóða fram krafta sína til starfa og þátttöku í íbúaráðum sveitarfélagsins fyrir 14. maí nk.
5.
Umsókn um lóð Ósland lóð K (Sandeyri 10)
Ósk um frest á framkvæmdum lóðum og K og J vegna breytinga á skipulagi nærliggjandi lóða.
Bæjarráð samþykkir að veita frest til 1. júní 2023.
6.
Ályktun - Aðalfundur NAUST
Lagt fram til kynningar.
7.
Kynning - Styrktarsjóður EBÍ
Lagt fram til kynningar.
8.
Fundarboð - Auka aðalfundur Samtaka Orkusveitarfélaga
Lagt fram til kynningar.
Bæjarstjóri fer með atkvæði sveitarfélagsins.
Bæjarstjóri fer með atkvæði sveitarfélagsins.
9.
Fundarboð - Fræðslufundur um hinsegin málefni
Bæjarráð fagnar aukinni fræðslu um þessi mikilvægu mál þakkar fyrir fundarboðið.
10.
Brunavarnaáætlun 2023-2028
Bæjarráð samþykkir framlagða Brunavarnaráætlun og felur bæjarstjóra að skrifa undir hana.