Bæjarráð Hornafjarðar
1082. fundur
27. apríl 2023
kl.
10:00
-
12:20
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir
varamaður
Gauti Árnason
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 56
Fundargerð samþykkt.
2.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 51
Fundargerð samþykkt.
3.
Fræðslu- og frístundanefnd - 100
Fundargerð samþykkt.
4.
Landeignaskrá: Hafnarbraut 13 og 13a - stofnun lóða
Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til við bæjarráð að samþykkt verði að auglýsa lóðina lausa til úthlutunar. Á meðan deiliskipulag fyrir svæði er ekki í gildi verður uppbygging á lóðinni háð samþykki bæjarstjórnar, að undangenginni grenndarkynningu sbr. 44.gr. skipulagslaga. Uppbygging skal vera í samræmi við aðalskipulag, landnotkun, byggðamynstur, þéttleika byggðar og götumynd elsta hluta Hafnarbrautar.
5.
Erindi Fjallsárlóns til bæjarráðs og formanns Svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs
Guðrún Stefanía vék af fundi undir þessum lið. Erindi frá Fjallsárlóni ehf. þar sem óskað er eftir að sveitarfélagið taki afstöðu til bátasiglinga að næturlagi með bátum að tegundinni Aurora lglooboat, sem eru viðurkenndir af Samgöngustofu til siglinga á Fjallsárlóni.
Bæjarráð fagnar nýsköpun Fjallsárlóns ehf. til að efla fjölbreytni og atvinnusköpun í sveitarfélaginu. Bæjarráð hvetur Vatnajökulsþjóðgarð afgreiða málið með jákvæðum hætti. Samkvæmt gögnum um málið virðast öll leyfi liggja fyrir og er bæjarstjóra falið að taka málið upp í svæðisráði suðursvæðis Vanajökulsþjóðgarðs.
6.
Mikligarður
Atvinnu- og menningarmaálnefnd óskar eftir að bæjarráð taki afstöðu til framtíðar Miklagarðs.
Bæjarráð felur forstöðumanni Menningarmiðstöðvar og bæjarstjóra að vinna sviðsmyndir um framtíð Miklagarðs varðandi sölu eða nýtingu á húsinu.
7.
Menningarmiðstöð
Atvinnu- og menningarmálanefnd leggur til að ráðinn verði starfsmaður í hlutastarf til þess að annast helgaropnun Svavarssafns í sumar og vísar því til bæjarráðs.
Forstöðumanni falið að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundinum.
8.
Undirbúningstímar og stytting vinnuviku í leikskólum
Reynst hefur erfitt að koma auknum undirbúningstíma að á leikskólanum og óskað er eftir tveimur auka stöðugildum til þess að koma til móts við aukinn undirbúningtíma hjá starfsmönnum.
Bæjarráð er jákvætt fyrir málinu og vísar því til vinnu fjármálastjóra og gerðar viðauka.
9.
Betri vinnutími í leikskóla
Fræðslu- og frístundanefnd styður þá nýbreytni að byrja á jóla og páskafríi í leikskólum og breyta reglum um starfsemi leikskóla í samræmi við það. Lagt er til að það verði gert næsta skólaár og árangur metinn eftir það.
Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu.
10.
Breyttur opnunartími Þrykkjunnar
Til þess að fylgja eftir lögum um þjónustu við fatlað fólk er lagt til að auka almennan opnunartíma í Þrykkjunni næsta vetur og auka starfshlutfall forstöðumanns í samræmi við það. Markmið með lengri opnunartíma er að draga úr aðgreiningu og koma betur til móts við þarfir fleiri barna.
Bæjarráð er jákvætt fyrir málinu og vísar því til vinnu fjármálastjóra og gerðar viðauka.
11.
Farsældarlögin innleiðing og fleira
Með innleiðingu laga um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna https://www.althingi.is/altext/151/s/1723.html er m.a. kveðið á um að öll börn og foreldrar skuli hafa aðgang að tengilið þjónustu í þágu farsældar barna eftir því sem þörf krefur.Óskað er eftir samtals 85% stöðuaukningu sem deilist á alla skóla sveitarfélagsins.
Bæjarráð samþykkir beiðnina, fjármunir rúmast innan ramma.
12.
Beiðni - Framlegnging á styrktarsamningi
Björgunarsveitin Kári í Öræfum óskar eftir framlengingu á styrktarsamningi sem inniheldur styrk til rekstrar félagsin og húsaleigu fyrir búnað slökkvuliðsins auk endurgreiðslu á fasteignagjöldum.
Bæjarráð samþykkir framlengingu á samningi við Björgunarsveitinni Kára og felur bæjarstjóra að yfirfara samninginn og undirrita hann.
13.
Merkingar Helsingja - Afnot af Hrollaugsstöðum
Erindi frá Verkís ehf. Náttúrustofu Suðausturlands og Náttúrufræðistofnunar Íslands þar sem kemur fram að merkja á helsingja í júlí. Verkefnið er að mestu unnið í sjálfboðavinnu og rekið af takmörkuðu styrktarfé. Óskað er eftir að bæjarráð veiti styrk í formi þess að þeir aðilar sem vinna að merkingum fái afnot af Hrollaugsstöðu 9.-13. júlí.
Bæjarráð samþykkir að lána Hrollaugsstaði til merkinga á helsingjum.
14.
Umsögn - Fyrirhugaðar breytingar á lögheimilislögum í tengslum við óheimilisbúsetu í atvinnuhúsnæði
Erindi frá Sambandi Íslenskra Sveitarfélaga þar sem bent er á að í Samráðsgátt er að finna mál þar sem innviðaráðuneytið kynnir til umsagnar tillögur starfshóps ráðherra um úrbætur á brunavörnum í húsnæði þar sem fólk hefur búsetu ? skráning tímabundins aðseturs í atvinnuhúsnæði.
Lagt fram til kynningar.
15.
Umsögn - Rekstrarleyfi
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn um leyfi til reksturs veitinga í flokki II - veitingaleyfi - Kaffihús.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn.
16.
Umsókn um lóð - Vesturbraut 6
Óskað er eftrir frest á framkvæmdum.
Bæjarráð samþykkir að veita frest til 1. ágúst 2023.