Bæjarráð Hornafjarðar
1083. fundur
4. maí 2023
kl.
10:00
-
12:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Gauti Árnason
varaformaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
varamaður
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir
varamaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 255
Bæjarráð tekur undir með hafnarstjórn um þá grafalvarlegu stöðu sem uppi er varðandi fyrirsjánleika um dýpkun á Grynnslunun og áskorum til Vegagerðarinnar og Innviðaráðuneytisins að eyða tafarlaust þeirri óvissu svo að stórhuga uppbyggingaráform í sveitafélaginu verði að veruleika.
Fundargerð samþykkt.
Fundargerð samþykkt.
2.
Velferðarnefnd - 23
Bæjarráð þakkar verkefnastjóra fyrir mjög áhugaverða kynningu á Fjölmenningarráði og fjölmenningu hér í
sveitarfélaginu okkar.
Fundargerð samþykkt.
sveitarfélaginu okkar.
Fundargerð samþykkt.
3.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 57
Fundargerð samþykkt.
4.
Viðaukar fjárhagsáætlunar 2023
Fjármálastjóri fór yfir viðauka eitt við fjárhagsáætlun ársins. Meðfylgjandi yfirlit sýna áhrif viðaukans á upphaflega samþykkta áætlun ársins. Viðbótarfjárheimildum verði mætt með lækkun á handbæru fé og viðbótarlántöku að fjárhæð 100 m.kr.
Bæjarráð samþykkir viðauka eitt og vísar honum til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarráð samþykkir viðauka eitt og vísar honum til afgreiðslu bæjarstjórnar.
5.
Staða sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs
Ólöf Ingunn Björnsdóttir sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs hefur sagt starfi sínu lausu.
Bæjarstjóra falið að auglýsa starf sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs sem einnig er staðgengill bæjarstjóra ásamt því að auglýsa nýtt starf fjármálastjóra sveitarfélagsins. Bæjarstjóra falið að fylgja eftir þeim skipulagsbreytingum sem lagðar voru fram á fundinum. Bæjarstjóra einnig falið að fá kostnaðarmat um breytingarnar og leggja fram í viðauka við fjárhagsáætlun.
6.
Staða sviðsstjóra velferðarsviðs
Þórdís Sif Arnarsdóttir ráðgjafi hjá Hagvangi kom á fundinn og kynnti ráðningarferli um stöðu sviðsstjóra velferðarsviðs. Þrír sóttu um starfið, Ásgerður Kristín Gylfadóttir, Kristín Ella Guðmundsdóttir og Skúli Ingibergur Þórarinsson.
----
Ráðningarferlið var í höndum ráðninga- og ráðgjafafyrirtækisins Hagvangs. Við mat á umsóknum var farið yfir reynslu umsækjenda á þeim hæfnisþáttum sem tilgreindir voru í auglýsingu um starfið. Eftir ítarlegt mat á ferilskrám ásamt viðtölum við alla umsækjendur var Skúli Ingibergur Þórarinsson metin hæfastur umsækjenda í starf sviðsstjóra velferðarsviðs.
Bæjarráð samþykkir að ráða Skúla Ingiberg Þórarinsson í starfið og býður hann velkominn til starfa.
----
Ráðningarferlið var í höndum ráðninga- og ráðgjafafyrirtækisins Hagvangs. Við mat á umsóknum var farið yfir reynslu umsækjenda á þeim hæfnisþáttum sem tilgreindir voru í auglýsingu um starfið. Eftir ítarlegt mat á ferilskrám ásamt viðtölum við alla umsækjendur var Skúli Ingibergur Þórarinsson metin hæfastur umsækjenda í starf sviðsstjóra velferðarsviðs.
Bæjarráð samþykkir að ráða Skúla Ingiberg Þórarinsson í starfið og býður hann velkominn til starfa.
7.
Samningur um samræmda móttöku flóttafólks
Þjónustusamningur um samræmda móttöku flóttafólks lagður fram. Samningurinn tekur til þjónustu móttökusveitarfélags vegna samræmdrar móttöku flóttafólks samkvæmt kröfulýsingu sem félags- og vinnumarkaðsráðuneytið hefur gefið út. Markmið með samningnum er að samræma móttöku flóttafólks þannig að ríki og sveitarfélög tryggi flóttafólki samfellda og jafna þjónustu óháð því hvaðan það kemur.
Bæjarráð óskar eftir nánari greiningu á samningnum og samantekt.
Lagt fram til kynningar og áframhaldandi vinnu starfsmanna.
Lagt fram til kynningar og áframhaldandi vinnu starfsmanna.
8.
Heppuskóli - Grunur um rakaskemmdir
Kostnaðaráætlun vegna lagfæringa á rakaskemmdum í þaki millibyggingar í Heppuskóla.Óskað er eftir viðbótafjármunum í verkið þar sem það var ekki gert ráð fyrir verkinu í fjárhagsáætlun.
Bæjarráð þakkar umhverfis- og skipulagssviði frumkvæði í málinu vísar viðbótarfjárheimildum til mats fjármálastjóra og gerðar viðauka.
9.
Athugasemd - Suðurlandsvegur við Breiðamerkurlón
Erindi frá Guðmundi G. Norðdahl stílað á innviðaráðherra og sent á alla sveitarstjórnir á Suður og Austurlandi um eyði á Breiðamerkursandi sem er eftir á milli lóns og sjávar sem er sífellt að rýrna. Guðmundur skorar á stjórnvöld að gera alvöru varnargarð báðum megin við ósinn og framan við til að hindra landbrot.
Bæjarráð þakkar Guðmundi fyrir erindið. Bæjarstjóri hefur upplýst framkvæmdastjórn Vegagerðarinnar um málið og verið fullvissaður um að málið er í farvegi þar.
10.
Landeignaskrá: Hafnarbraut 13 og 13a - stofnun lóða
Bæjarráð samþykkir stofnun lóða og felur starfsmönnum að auglýsa lóð við Hafnarbraut 13.
11.
Umsókn um lóð - Víkurbraut 34
Jón Malmquist Guðmundsson óskar eftir 12 mánaða fresti á framkvæmdum ma. vegna aðstæðna í samfélaginu.
Bæjarráð samþykkir að veita frest til 1. ágúst. Ekki er hægt að veita lengri frest enda mikil eftirspurn eftir lóðum í sveitarfélaginu.
12.
Umsókn um lóð - Sæbraut 5
Björgunarfélagið óskar eftir fresti á framkvæmdum á meðan grenndarkynning stendur yfir.
Bæjarráð samþykkir að veita frest til 1. ágúst.
13.
Umsókn um lóð - Bugðuleira 8
Björgunarfélagið óskar eftir fresti á framkvæmdum á meðan grenndarkynning stendur yfir.
Bæjarráð samþykkir að veita frest til 1. ágúst.
14.
Umsögn - Frumvarp til laga um mennta-og skólaþjónustustofu
Erindi frá Alþingi þar sem óskað er eftir umsögn við frumvarpi til laga um mennta og skólaþjónustu.
Lagt fram til kynningar.
15.
Umsögn - Frumvarp til laga um kosningalög o.fl.
Erindi frá Alþingi þar sem óskað er eftir umsögn við frumvarpi til laga um kosningalög og fl. þar með talin sveitarstjórnarlög. Helstu breytingar sem snúa að sveitarfélögum eru að í stað 36 daga auglýsigafresti vegna íbúakosninga verður 20 daga frestur og kosningaaldur færður niður í 16 ár.
Lagt fram til kynningar.
16.
Fundarboð - Orkufundur 2023
Stjórn Samtaka orkusveitarfélaga boðar Orkufund 2023 þann 10. maí nk. kl. 10:00 - 12:00 á Hótel Hilton, Reykjavík. Fundinum verður einnig streymt.
Lagt fram til kynningar.