Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1087. fundur
1. júní 2023 kl. 10:00 - 12:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir formaður
Gauti Árnason varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 52
Málsnúmer 2305014F
Fundargerðin samþykkt.
2.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 256
Málsnúmer 2305018F
Fundargerðin samþykkt.
3.
Almannavarnanefnd - 67
Málsnúmer 2303020F
Fundargerðin samþykkt.
4.
Samþykktir almannavarnanefndar Hornafjarðar
Málsnúmer 202305091
Bæjarráð samþykkir samþykktir almannavarnarnefndar og vísar þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar.
5.
Áhyggjur af fjölgun ferðamanna - Álag á innviðum
Málsnúmer 202305098
Ályktun frá almannavarnarnefnd verður sett sem bókun.
Bæjarráð tekur heilshugar undir ályktun Almannavarnarnefndar. Fjöldi ferðafólks eykst með hverju árinu og er öryggisviðbragð víða um sveitarfélagið í engu samræmi við fjölda fólks sem dvelur hér og fer hér um. Bæjarráð hvetur yfirvöld til að finna tafarlaust varanlega lausn til að auka neyðarviðbragð og tryggja öryggi ferðafólks, íbúa og þeirra sem starfa í sveitarfélaginu. Þá lýsir bæjarráð yfir vilja til samtals og samstarfs við Slysavarnarfélagið Landsbjörgu svo tryggja megi áframhaldandi viðveru Láglendisvaktar félagsins í Skaftafelli í sumar.
Bókun almannavarnarnefndar er eftirfarandi:

"Almannavarnarnefnd Hornafjarðar hefur auknar áhyggjur af öryggismálum í Öræfum vegna mikillar fjölgunar ferðamanna sem fara um og dvelja á svæðinu. Eina neyðaraðstoðin á svæðinu að staðaldri er Björgunarsveitin Kári. Hátt í klukkustundar bið er í viðbótarbjargir inn á svæðið ýmist frá Hornafirði eða Kirkjubæjarklaustri í um 100 kílómetra fjarlægð. Neyðarviðbragð sem tiltækt er á þessu svæði er í engu samræmi við þann mikla fjölda ferðamanna sem þar dvelur og fer um. Yfir sumarmánuði er mjög algengt að um 1.000 manns gisti í Skaftafelli yfir nótt og því til viðbótar eru fjölmargir gististaðir í Öræfum.

Nauðsynlegt er að bregðast við síauknu álagi á það viðbragð sem er á svæðinu og gera ráðstafanir til að stytta viðbragðstíma vegna óhappa og slysa. Aukin viðvera lögreglu auk heilbrigðisstarfsmanns í Öræfum er bráðnauðsynleg og væri mikil innspýting á neyðarviðbragði. Láglendisvakt Landsbjargar hefur undanfarin ár sýnt og sannað gildi sitt sem viðbótarviðbragð þegar mesti fjöldi ferðamanna er á svæðinu yfir sumarmánuðina.

Mikilvægt er að finna varanlega lausn til að auka neyðarviðbragð á svæðinu. Mætti þar meðal annars horfa til reynslu og útfærslu sem er í Þjóðgarðinum á Þingvöllum varðandi heilbrigðisstarfsmann."
6.
Félagslegt leiguhúsnæði 2023
Málsnúmer 202301040
Skúli greindi frá stöðu á íbúða sveitarfélagsins, í eignasafni sveitarfélagsins eru 40 íbúðir en stefnan hefur verið að selja íbúðir úr eignasafninu. Biðlisti eftir félagslegu leiguhúsnæði bendir ekki til þess að þörf sé fyrir þeim fjölda íbúða. Unnið er að sölu fimm íbúða á þessu ári.
7.
Samningur um samræmda móttöku flóttafólks
Málsnúmer 202304055
Þann 13. janúar var samþykktur samningur um móttöku flóttafólks, markmið með samningnum er að tryggja flóttafólki jafna og samfellda þjónustu sama hvar það býr á landinu.
Hildur Ýr greindi frá stöðu flóttafólks í sveitarfélaginu.
8.
Sorpútboð 2023
Málsnúmer 202108112
Útboðsgögn fyrir sorphirðu, rekstur söfnunarstöðvar og rekstur urðunarstaðar ásamt jarðgerð lögð fram til samþykktar ásamt kostnaðaráætlun.
Bæjarráð samþykkir útboðsgögnin og felur starfsmönnum að auglýsa útboðið.
9.
Malbikunarframkvæmdir 2023
Málsnúmer 202302035
Brynja greindi frá stöðu á undirbúningi á malbikunarframkvæmdum. Colas stefnir á að koma með malbikunarstöð til Hafnar og óskar eftir að sveitarfélagið skuldbindi sig að kaupa meira malbik en samið var um eftir útboðið.
Bæjarráð samþykkir þær tillögur sem umhverfis- og skipulagsstjóri leggur til.
10.
Gamlabúð - auglýsing vegna leigu
Málsnúmer 202303072
Bæjarstjóri fundaði með samningsaðilum í gær og greindi frá niðurstöðu á fundinum. Árdís fór yfir samningsdrög sem eru í vinnslu.
Vinnu við gerð samninginn vísað til starfsmanna.
11.
Heppuskóli - Grunur um rakaskemmdir
Málsnúmer 202301103
Björn greindi frá tilboðum sem bárust í viðhald á þaki Heppuskóla og Slökkvistöð.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboðum í viðgerðir á þaki Heppuskóla og slökkvistöð.
Vísað til vinnu og greiningu fjármálastjóra og gerðar viðauka.
12.
Beiðni - Styrkur vegna markaðsherferðar
Málsnúmer 202305102
Erindi frá Ríki Vatnajökuls þar sem óskað er eftir styrk til þess að klára framleiðslu á markaðsefninu "meet the locals"
Vísað til atvinnu- og ferðamálafulltrúa.
13.
Beiðni - Áframhaldandi styrkur til Vísinda- og rannsóknarsjóðs Suðurlands
Málsnúmer 202305109
Erindi frá Háskólasamfélagi Suðurlands þar sem óskað er eftir framlengingu á gildandi samningi.
Bæjarráð samþykkir að endurnýja samninginn.
14.
Erindi til allra sveitarfélaga
Málsnúmer 202305108
Erindi frá Skógræktarfélagi Íslands.
Lagt fram til kynningar.
15.
Umsögn um útgáfu leyfa - Ungmennadansleikur
Málsnúmer 202305105
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn við tækifærisleyfi fyrir ungmennadansleik í Sindrabæ.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn.
16.
Umsögn um útgáfu leyfa - Humarhátíð miðsvæði
Málsnúmer 202305104
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn við tækifærisleyfi fyrir Humarhátíð á miðsvæði Höfn.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn.
17.
Umsögn um útgáfu leyfa - Humarhátíð dansleikur
Málsnúmer 202305103
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn við tækifærisleyfi og tímabundnum áfengisleyfi fyrir dansleik á Humarhátíð í Íþróttahúsinu á Höfn.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn.
18.
Fundargerðir - stjórn Nýheima þekkingarseturs
Málsnúmer 202303020
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
19.
Fundargerðir - Samtök orkusveitarfélaga 2023
Málsnúmer 202302041
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
20.
Fundargerðir - Samband íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 202303059
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
21.
Fundir bæjarráðs og bæjarstjórnar
Málsnúmer 202209078
Á meðan bæjarstjórn er í sumarfríi í júlí mun bæjarráð funda annan hvorn fimmtudag. Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.