Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1088. fundur
8. júní 2023 kl. 10:00 - 11:25
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir varamaður
Gauti Árnason varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 59
Málsnúmer 2305019F
Fundargerðin samþykkt.
2.
Gamlabúð - auglýsing vegna leigu
Málsnúmer 202303072
Samningur um rekstur Gömlubúðar lagður fram.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga frá samningnum í samræmi við umræður á fundinum.
3.
Frumkvöðlahreiður í Hornafirði
Málsnúmer 202201087
Lagt fram til kynningar og afgreiðslu málsins frestað.
4.
Hverfisráð - Íbúaráð
Málsnúmer 202211120
Íbúaráð í Öræfum var stofnað 5. júní gerð verður grein fyrir því á fundinum í stjórn eru Sunneva B. Helgadóttir formaður, Matthildur Þorsteinsdóttir og Madalin I. Huminiuc varamenn eru Jón Ágúst Guðjónsson, Jolanta Bien og Laurent Jégu. Íbúaráð Nes og Lón var stofnað 7. júní í stjórn eru Ásta Steinunn Eiríksdóttir, Ásthildur Gísladóttir og Ólöf Þórhalla Magnúsdóttir varamaður Herdís Ingólfsdóttir Waage, formaður verður kosin á næsta fundi.Íbúaráð í Suðursveit og Mýrum var stofnað 7. júní í stjórn eru Bjarni Haukur Bjarnason formaður, Ari Hannesson varaformaður og Erla Rún Guðmundsdóttir.
Bæjarráð fagnar því að íbúaráð eru nú fullskipuð og hafa tekið til starfa.
Íbúaráðunum er ætlað að ná enn betur fram sjónarmiðum íbúa í dreifbýli og bæjarráð hlakkar til samstarfs við íbúaráðin.
5.
Ósk um styrk - Listaverkabók um líf og listaverk Svavars Guðnasonar
Málsnúmer 202305100
Erindi frá Knúti Bruun þar sem hann óskar eftir að bæjarráð veiti styrk til útgáfu listaverkabókar um líf og listaverk Svavars Guðnasonar.
Bæjarráð vísar erindinu til kynningar í atvinnu- og menningarmálanefnd.
6.
Nýheimar samstarfssamningur
Málsnúmer 202005033
Samstarfsamningurinn lagður fram til upplýsinga.
Bæjarstjóri skrifaði undir áframhaldandi samstarfsamning við Nýheima Þekkingarsetur.
7.
Humarhátíð 2023
Málsnúmer 202301049
Humarhátíðarnefnd óskar eftir að sveitarfélagið bjóði gestum Humarhátíðar frítt í sund.
Bæjarráð samþykkir að veita frítt í sund á Humarhátíð á laugardegi og sunnudegi.
8.
Umsókn um lóð - Álaugarvegur 12
Málsnúmer 202305064
Umsókn Lofts Jónssonar um lóð að Álaugarvegi 12 lögð fram.
Bæjarráð óskar eftir upplýsingar um byggingaráform og hvaða starfsemi er áformuð á lóðinni.
9.
Umsókn um lóð - Hafnarbraut 13
Málsnúmer 202305046
Umsókn Íshússins um lóð að Hafnarbraut 13 lögð fram.
Bæjarráð óskar eftir upplýsingum um byggingaráform lóðarumsækjenda.
10.
Umsögn um útgáfu leyfa - Nónhamar ehf.Rekstrarleyfi
Málsnúmer 202305076
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir að bæjarráð veiti umsögn um leyfi til reksturs gististaðar í flokki II - H frístundahús.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn.
11.
Sala á eignum sveitarfélagsins
Málsnúmer 201910048
Fyrirhuguð er sala á Sandbakkavegi 6 íbúð 203 leigjendur hafa hug á að nýta forkaupsrétt.Verðmat frá fasteignasölunni Medial ehf.
Bæjarráð samþykkir verðmatið og felur starfsmönnum að ganga frá sölunni.