Bæjarráð Hornafjarðar
1090. fundur
29. júní 2023
kl.
10:00
-
13:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir
formaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir
varamaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Fræðslu- og frístundanefnd - 102
Fundargerðin samþykkt.
2.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 61
3.
Gamlabúð - auglýsing vegna leigu
Búið er að opna Gömlubúð með upplýsingamiðstöð fyrir ferðafólk með aðgengi að salernum. Menningarmiðstöð Hornafjarðar mun sjá um reksturinn fram á haust. Stefnt er að því að auglýsa reksturinn að nýju í haust.
4.
Endurnýjun Jafnréttisáætlunar
Bæjarráð samþykkir erindisbréf fyrir starfshóp um jafnréttisáætlun.*
5.
Samgönguáætlun 2023-2027
Drög að samgönguáætlun 2024-2038 er nú kynnt í samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar og verður opið fyrir athugasemdir og ábendingar til og með mánudeginum 31. júlí 2023 slóðin er https://samradsgatt.island.is/oll-mal/$Cases/Details/?id=3484.
Lagt fram til kynningar og áframhaldandi vinnu starfsmanna.
6.
Samgöngumál á Suðurlandi
Fyrir komandi ársþing Samtaka sveitarfélaga á Suðurlandi ætlar samgöngunefnd samtakanna að skila af sér uppfærðri samgönguáætlun. Óskað er eftir svörum aðildarsveitarfélaganna við framlögðum spurningum um samgöngumál á Suðurlandi.
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.
7.
Ósk um niðurfellingu á gatnagerðargjöldum
Björgunarfélag Hornafjarðar óskar eftir að gatnagerðargjöld verði felld niður á lóðinni Sæbraut 5.Samkvæmt samningi Björgunarfélagsins við sveitarfélagið skuldbindur sveitarfélagið sig til að styrkja Björgunarfélagið fyrir lóðargjöldum og vinna að sameiginlegri lausn hvað varðar gatnagerðargjöld.
Bæjarráð tekur jákvætt í beiðnina og felur bæjarstjóra og fjármálastjóra að útfæra beiðnina.
8.
Framkvæmd byggingar hjúkrunarheimilis
Bæjarráð samþykkti aukakostnað vegna breytingu á byggingu nýs hjúkrunarheimilis í tölvupósti 15. júní.
Um er að ræða:
Samþykki verkkaupa fyrir:
1. Breytingar á grunnlögnum og færslu á fituskilju
2. Bráðabirgðar húsnæðis eldhúss
3. Breytingar á CLT einingum
Heildarkostnaður við þessar breytingar er 17.237.364 kr.
Fyrirvarar:
Samþykki sveitarfélagsins miðast við 20,2% af þessum kostnaði og óskað er eftir nánari kostnaðaráætlun fyrir eldhúseiningar.
Bæjarráð vísar málinu til fjármálastjóra til gerðar viðauka.
Um er að ræða:
Samþykki verkkaupa fyrir:
1. Breytingar á grunnlögnum og færslu á fituskilju
2. Bráðabirgðar húsnæðis eldhúss
3. Breytingar á CLT einingum
Heildarkostnaður við þessar breytingar er 17.237.364 kr.
Fyrirvarar:
Samþykki sveitarfélagsins miðast við 20,2% af þessum kostnaði og óskað er eftir nánari kostnaðaráætlun fyrir eldhúseiningar.
Bæjarráð vísar málinu til fjármálastjóra til gerðar viðauka.
9.
Smölun ágangsfés
Nýtt álit frá innviðaráðuneytinu var gefið úr vegna stjórnsýslu Snæfellsbæjar í máli sem sneri um smölun sveitarfélagsins á ágangsfé. Í því eru fyrri leiðbeiningar ráðuneytisins um skyldur sveitarfélaga varðandi smölun á ágangsfé.
Atvinnu- og ferðamálafulltrúa falið að hafa samband við Samband íslenskra sveitarfélaga um mótun sameiginlegra verklagsregna.
10.
Fyrirspurn - Verndun Topphóls við vegaframkvæmdir
Erindi frá Náttúrustofu Suðausturlands þar sem bent er á að vernda þurfi Topphól sem liggur í veglínu nýja fljótavegarins. Ljóst er að hér er um minjastað að ræða sem hafi farið fram hjá skrásetjurunum við skráningu minja árið 2006 og hefur því ekki verið tekið tillit til hólsins við útfærslu framkvæmdanna sökum þess að þekking um staðsetningu og sögu hans lá ekki fyrir.
Bæjarráð harmar gildi Topphóls sem minjastaðar hafi ekki komið fram í fornleifaskráningu vegna mats á umhverfisáhrifum vegagerðar við Hornafjarðarfljót fór fram en sú skýrsla var gefin út árið 2006. Bæjarstjóri hefur farið yfir málið með Vegagerðinni og verktaka.
Minjastofnun Íslands hefur þegar heimilað að minjarnar víki. Í umsögn Minjaverndar frá 16. maí sl. segir meðal annars: Sökum óvissu um aldur minjanna og vegna þess að minjarnar voru ekki skráðar og framkvæmdir því langt komnar heimilar Minjastofnun að minjar þessar víki.
Minjastofnun Íslands hefur þegar heimilað að minjarnar víki. Í umsögn Minjaverndar frá 16. maí sl. segir meðal annars: Sökum óvissu um aldur minjanna og vegna þess að minjarnar voru ekki skráðar og framkvæmdir því langt komnar heimilar Minjastofnun að minjar þessar víki.
11.
Flugsæti til Hafnar - útboðsmál
Erindi frá Vegagerðinni þar sem lagðar eru fram upplýsingar um útboðsmál vegna flugsamgangna til Hornafjarðar.
Bæjarráð gerir athugasemdir við áform Vegagerðarinnar um verðkönnun á flugi til Hornafjarðar á þessum tíma. Þar er opnað á notkun minni flugvéla á flugleiðinni, 9 farþega, og flugvéla sem ekki eru þrýstijafnaðar. Á flugleiðinni hefur flugfélagið Ernir flutt allt að 12 þúsund farþega á ári og hefur mikil ánægja verið með þjónustuna bæði hjá íbúum og atvinnulífinu, ekki síst ört vaxandi ferðaþjónustu.
Bæjarráð hvetur Vegagerðina til að semja við Flugfélagið Erni um áframhaldandi flug til Hornafjarðar þar til innanlandsflug fer í heildarútboð í maí 2024, í stað þess að setja þjónustuna í uppnám fyrir nokkra mánuði.
Bæjarráð hvetur Vegagerðina til að semja við Flugfélagið Erni um áframhaldandi flug til Hornafjarðar þar til innanlandsflug fer í heildarútboð í maí 2024, í stað þess að setja þjónustuna í uppnám fyrir nokkra mánuði.
12.
Fundir bæjarráðs og bæjarstjórnar
Bæjarráð samþykkir að fundir bæjarráðs verði kl. 10:00 á þriðjudögum og bæjarstjórnarfundir verði kl. 15:00 annan fimmtudag í mánuði.
13.
Ábending - Hæfi skipulagsfulltrúa Sveitarfélags Hornafjarðar
Erindi frá Skipulagsstofnun þar sem stofnunin óskar eftir upplýsingum um hæfi skipulagsfulltrúa sveitarfélagsins.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara erindinu fyrir hönd sveitarfélagsins.
14.
Beiðni - Frítt í sund á Umhyggjudegi
Erindi frá Umhyggju félagi um hag langveikra barna. Samtökin vinna að skipulagningu Umhyggjudags í lok ágúst og óska eftir að sveitarfélagið taki þátt í deginum með því að veita fólki frítt í sund á milli kl. 14:00 og 16:00 þann dag.
Bæjarráð samþykkir að taka þátt í verkefninu eins og óskað er eftir.
15.
Umsókn - Breyting á rekstrarleyfi
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn um breytingu á rekstrarleyfi fyrir gistingu á Litla Horni.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn.
16.
Umsögn um útgáfu leyfa Birkifell ehf
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn um breytingu á gildandi rekstarleyfi fyrir Birkifell ehf.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn.
17.
Ósk um leyfi fyrir flugeldasýningu á Jökulsárlóni
Erindi frá Björgunarfélaginu þar sem óskað er eftir umsögn sveitarfélagsins vegna fyrirhugaðrar flugeldasýningar 12. ágúst nk.
Bæjarráð samþykkir að flugeldasýningin fari fram og veitir jákvæða umsögn.
18.
Fundargerðir - Samband íslenskra sveitarfélaga
Fundargerðirnar lagðar fram til kynningar.
19.
Fundargerð 173 - Heilbrigðisnefnd Austurlands
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
20.
Fundargerðir stjórnar SASS
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
21.
Umsókn um styrk
Umsókn hljómsveitarinnar Fókus, sigurvegara Músíktilrauna um styrk til upptöku á stuttskífu í Stúdíóinu Sundlauginni.
Bæjarráð samþykkir að veita hljómsveitinni Fókus 160 þúsund króna styrk og vísar málinu til vinnu fjármálastjóra og gerðar viðauka.
22.
Umsögn um útgáfu leyfa - Humarhátíð gömludansaball tækifærisleyfi
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn við útgáfu á tækifærisleyfi fyrir áfengisveitingar á gömludansaballi.
Bæjarráð veitti jákvæða umsögn í gegn um tölvupóst, lagt fram til upplýsinga.
23.
Umsögn um útgáfu leyfa - Humarhátíð gömludansaball í Sindrabæ
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn við tækifærisleyfi fyrir gömludansaball.
Bæjarráð veitti jákvæða umsögn í gegn um tölvupóst, lagt fram til upplýsinga.
24.
Landeignaskrá - Hagi, stofnun landeignar Heima-Hagi
Marta K. Grönvold Björnsdóttir óskar eftir stofnun nýrrar lóðar, Heima-Hagi, úr jörð Haga samkvæmt framlögðum uppdráttum.Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við stofnun lóðar, þar sem hún samræmist skipulagsáætlun.
Bæjarráð telur að stofnun lóðarinnar hafi ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar, sbr. 6. gr. jarðalaga nr. 81/2004.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn og samþykkir að stofnuð verði ný lóð sem beri nafnið Heimahagi, úr landi Haga.*
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn og samþykkir að stofnuð verði ný lóð sem beri nafnið Heimahagi, úr landi Haga.*
25.
Breyting á deiliskipulagi Miðbæjar Hafnar í Hornafirði - fjölbýlishúsalóðir
Breyting á deiliskipulagi miðbæjar Hafnar - Sandbakkavegur, var í kynningu frá 4. maí til 15. júní 2023 í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.Svæðið sem breytingin nær yfir afmarkast af Sandbakkavegi í vestri, Litlubrú í norðri, Hafnarbraut í austri og núverandi íbúðarbyggð við Sandbakkaveg í suðri. Í tillögu að breytingu skipulagsins eru afmarkaðar þrjár lóðir sunnan Nettó fyrir fjölbýlishús á 2-3 hæðum.Umsagnir bárust frá Minjastofnun Íslands og HAUST, engin athugasemd barst.
Bæjarráð samþykkir tillögu að breytingu á deiliskipulagi miðbæjar Hafnar við Sandbakkaveg skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.*
26.
Kyljuholt á Mýrum - Deiliskipulag
Deiliskipulag Kyljuholts var í kynningu 4. maí til 15. júní í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Skipulagið tekur yfir 4 ha. svæði innan jarðar Kyljuholts. Afmarkaðar eru raðhúsalóðir fyrir nýbyggingar og afmörkuð lóð fyrir núverandi íbúðarhús á svæðinu.Umsagnir bárust frá Minjastofnun Íslands, HAUST og Rarik, engin athugasemd barst.
Bæjarráð samþykkir tillögu að deiliskipulagi Kyljuholts skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.*
27.
Deiliskipulag - Víkurbraut
Unnið er að vinnu við deiliskipulagi fyrir nýjan miðbæ. Í drögunum er gert ráð fyrir að breyta legu Víkurbrautar á Höfn og mynda sveig á götuna til vesturs á stuttum götukafla. Lagt er fram minnisblað þar sem fjallað er um forsendur fyrir breyttri legu, ásamt kostum og ókostum við breytinguna.
Bæjarráð er jákvætt fyrir breyttri legu Víkurbrautar í samstarfi við framkvæmdaraðila.
28.
Umsókn um afnot af bæjarlandi fyrir malbikunarstöð
Erindi frá Malbikunarstöðinni Colas þar sem óskað er eftir aðstöðu fyrir stöðina á Ægissíðu á meðan malbikunarframkvæmdir standa yfir.
Bæjarráð samþykkir staðsetningu fyrir malbikunarstöð í Ægissíðu að því tilskildu að umsókaraðili skil svæðinu í sama ásigkomulagi og hann tók við því.
29.
Fyrirspurn til skipulagsstjóra - skógræktaráform í landi Selbakka
Umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir Skógrækt í landi Selbakka L232272 á Mýrum.
Bæjarráð samþykkir að veitt verði framkvæmdaleyfi til skógræktar á því landsvæði sem fellur utan hverfisverndar skv. gildandi aðalskipulagi sveitarfélagsins. Jafnframt er gerð sú krafa á framkvæmdaraðila að gæta að útbreiðslu trjáa út fyrir skilgreint framkvæmdarsvæði.*
30.
Barnaverndarlög, samvinna Fjarðabyggðar og Hornafjarðar um barnaverndarþjónustu
Samningur um sameiginlega barnaverndarþjónustu Fjarðabyggðar og Sveitarfélagsins Hornafjarðar lagður fram til samþykktar til síðari umræðu. Samningurinn er gerður í samræmi við 10., 11. og 12. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 þar sem fjallað er um umdæmi barnaverndarþjónustu og 96. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Samningurinn hefur verið uppfærður að lokinni umfjöllunar í mennta- og banamálaráðuneytinu fyrirliggjandi gögn eru um barnaverndarþjónustu milli Fjarðabyggðar og Sveitarfélagsins Hornafjarðar ásamt fylgiskjali um fullnaðarafgreiðsluheimildir.
Bæjarráð samþykkir samning um barnaverndarþjónustu og fylgiskjal um fullnaðarafgreiðsluheimildir.*
31.
Laun kjörinna fulltrúa og nefndarmanna
Villa var í samþykkt um kjör fulltrúa sveitarfélagsins vegna funda og ráðstefna. Í 3. gr. var dagsetning og viðmiðunarupphæð lagfærð til fyrra horfs. Í 5. gr. var lagfærð prósenta vegna mótframlags vinnuveitenda í lífeyrissjóð og áheyrnarfulltrúa ungmennaráðs bætt við undir nefndir og ráð.
Bæjarráð samþykkir breytingar á samþykkt um kjör fulltrúa Sveitarfélagsins Hornafjarðar vegna funda og ráðstefna.