Bæjarráð Hornafjarðar
1094. fundur
22. ágúst 2023
kl.
10:00
-
13:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir
formaður
Gauti Árnason
varaformaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
varamaður
Starfsmenn
Bryndís Bjarnarson
Ólöf Ingunn Björnsdóttir
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Fræðslu- og frístundanefnd - 103
Fundargerð samþykkt.
2.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 62
Fundargerð samþykkt.
3.
Skráningardagar í leikskóla
Unnið hefur verið að innleiðingu svokallaðra skráningadaga í leikskólanum. Í þeim felst að teknir verða upp 20 skráningardagar á ári þar sem ekki er reiknað með börnum í leikskólann nema þau séu sérstaklega skráð í skólann þessa daga. Þetta er gert til að koma til móts við fulla styttingu vinnuvikunnar í leikskólum og verður reynt að koma stórum hluta styttingar hjá starfsfólki að á þessum dögum.Foreldrar greiða sérstaklega fyrir skráningardagana en á móti verða leikskólagjöld lækkuð sem nemur einum mánuði á ári.
Bæjarráð samþykkir að unnið verði að innleiðingu skráningardaga leikskóla og að könnun á mögulegri nýtingu þeirra verði lögð fyrir foreldra.
4.
Gjaldskrá vegna skráningadaga á leikskóla
Gjaldskrá leikskóla hækkar 1. ágúst á hverju ári í samræmi við vísitölu og hefur ný gjaldskrá verið lögð fram. Að þessu sinni er lagt til að hún lækki sem nemur 20 leikskóladögum á ári eða um 8,4% og tekið verði upp sérstakt gjald vegna skráningardaga.
Bæjarráð samþykkir breytingar á gjaldskrá leikskóla.
5.
Reglur um starfsemi leikskóla
Uppfærðar reglur um starfsemi leikskóla vegna skráningardaga lagðar fram.Þær breytingar sem nú eru gerðar á reglunum miða fyrst og fremst að því að aðlaga þær að hugmyndum um skráningardaga.
Bæjarráð samþykkir uppfærðar reglur um starfsemi leikskóla og vísar þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar.
6.
Leikskólinn - starfshópur um leikskólamál
Fræðslu- og frístundanefnd er jákvæð fyrir stofnun samráðshóps um leikskólamál og leggur til að í honum verði tveir kjörnir fulltrúar einn frá meirihluta og einn frá minnihluta og a.m.k. annar þeirra komi úr fræðslu- frístundanefnd. Einn fulltrúi frá leikskólanum sem einnig situr í leikskólaráði og einn fulltrúi frá foreldrum auk sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs sem einnig verði starfsmaður samráðshópsins. Kjörinn fulltrúi frá meirihlutanum verði formaður hópsins og skal hópurinn skila inn tillögum fyrir 1. febrúar 2024 eða skýrslu um starfið.Auk þess leggur fræðslu- og frístundanefnd til að samhliða stofnun samráðshóps verði komið á fót leikskólaráði sem verði ráðgefandi og starfi við hliðina á leikskólastjórum á sama tíma eða til 1. febrúar 2024. Í leikskólaráði sætu leikskólastjórar, deildarstjórar og sviðsstjóri og myndu þeir vinna að úrbótum í innri málefnum skólans og leita til annarra starfsmanna og utanaðkomandi aðila eftir þörfum.Fræðslu- og frístundanefnd leggur til að skipað verði í bæði starfshóp og leikskólaráð og þeir aðilar sem sinna þessu fái greitt aukalega fyrir setu í þessum ráðum þegar fundað er utan vinnutíma. Kjörnir fulltrúar skili inn tillögu að fulltrúa, til starfsmanns og starfsmaður óski eftir tillögu að fulltrúa foreldra úr foreldraráði og fulltrúi leikskólans verði valinn í leikskólaráði.
Bæjarráð samþykkir að stofnaðir verði starfshópar um leikskólamál og leikskólaráð eins og fræðslu- og frístundanefnd leggur til. Í ráðunum verði einn fulltrúi frá hverjum stjórnmálaflokki sem á fulltrúa í bæjarstjórn. Bæjarráð áréttar að báðir hópar starfi saman að málefnum leikskólans með það að markmiði að styðja við og efla leikskólastarfið.
Starfsmönnum falið að vinna erindisbréf fyrir starfshópana.
Starfsmönnum falið að vinna erindisbréf fyrir starfshópana.
7.
Sorphirða og urðun - Tilboð - Haust 2022
Brynja gerir grein fyrir samningum við Hringrás og Funa ehf.
Ekki er búið að skrifa undir samningana en unnið er því í vikunni.
8.
Byggingarleyfisumsókn - Vesturbraut 6, raðhús
Erindi frá Mikael ehf. þar sem óskað er eftir frest á framkvæmdum á lóðinni Vesturbraut 6, vegna anna við framkvæmdir fyrir aðra byggingaraðila.
Bæjarráð veitir frest til 1. október nk.
9.
Framkvæmd byggingar hjúkrunarheimilis
Ný greiðsluáætlun og greiðsluhlutfall sveitarfélagsins lagðar fram.
Bæjaráð ítrekar bókun sína frá því 9. júní 2022 þar sem þess er krafist að sökum verulegra tafa á verkefninu að það fjármagn sem sveitarfélagið lagði fram á tímabilinu 2019 til 2021, áður en framkvæmdir hófust, um 196 milljónir króna, verði verðbætt og vaxtareiknað í greiðsluáætlun um verkið og gangi upp í framkvæmdakostnað sveitarfélagsins.
Bæjarstjóra falið að óska eftir fundi með FSRE og fjármálaráðuneytinu um málið.
Bæjarstjóra falið að óska eftir fundi með FSRE og fjármálaráðuneytinu um málið.
10.
Kröfubréf - Skaðabótakrafa vegna vanefnda á samningi
Svarbréf frá lögfræðingi Litla Horns lagt fram, ekki er um efnislegt svar vegna Litla Horns heldur vegna athugasemda bæjarráðs um vanæhæfi Auðuns sem fyrrum lögfræðings Hornafjarðar.
Lagt fram til kynningar.
11.
Fundargerðir - Samtök orkusveitarfélaga 2023
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
12.
Flugsæti til Hafnar - útboðsmál
Starfsmenn funduðu með Vegagerðinni þar sem farið var yfir ferli verfyrirspurna um flug til Hafnar/Hornafjarðar.
Á fundinum kom fram að Vegagerðin er bjartsýn að klára samninga um flug til Hornafjarðar fljótlega. Einnig kom fram á fundinum að við næsta útboð verður gerð krafa um lágmark 19 sæta flugvélar, það útboð mun fara fram á næsta ári.
Bæjarráð fagnar því að þeirri óvissu sem ríkti í flugsamgöngum til Hornafjarðar hafi verið eytt og sjónarmið sveitarfélagsins hafi hlotið hljómgrunn.
Bæjarráð fagnar því að þeirri óvissu sem ríkti í flugsamgöngum til Hornafjarðar hafi verið eytt og sjónarmið sveitarfélagsins hafi hlotið hljómgrunn.