Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1097. fundur
12. september 2023 kl. 10:00 - 11:20
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir formaður
Gauti Árnason varaformaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson varamaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 257
Málsnúmer 2308012F
Fundargerðin samþykkt.
2.
Dýpkun á Grynnslum 2022
Málsnúmer 202203093
Vegagerðinni var fyrr í sumar falið að hefja undirbúning aðgerða við dýpkun innsiglingarleiðarinnar um Grynnslin. Vegagerðin leggur til að samið verði beint við Björgun án útboðs. Þar sem þeir hafa boðið lægra en erlendir aðilar, tímarammi er stuttur og möguleiki á að ná verðinu niður ef verktaki er með í skilmálum samningsins. Samkvæmt minnisblaði frá Vegagerðinni kemur fram að dýpkunarskipið Sóley verður til taks til þess að dýpka á Grynnslunum frá 2. janúar til 15. mars 2024.Vegagerðin leggur til að keyptur verði nýr eingeisla mælir á Björn lóðs, nemur kostnaður um 5-8 m.kr. Vegagerðin mun greiða fyrir búnaðinn en leggur til að Hornafjarðarhöfn sjái um mælingar á eigin kostnað. Lagt er til að Hornarfjarðarhöfn verði verkkaupi og nýti heimildir til veitutilskipunar svo hægt sé að semja beint við verkaka. Vegagerðin mun greiða allan kostnað af verkinu.
Bæjarráð lýsir ánægju með að dýpkunarskipið Sóley verði til taks hér á Höfn. Væntingar höfðu þó staðið til þess að skipið kæmi fyrr og næði að nýta haustið til að grafa skurðinn í Grynnslin og viðhalda honum yfir háveturinn í stað þess að hefja dýpkun þegar veður eru hvað verst, í janúar.
Bæjarráð samþykkir að Hornafjarðarhöfn verði verkkaupi þó að Vegagerðin beri allan kostnað af verkinu. Bæjarráð felur starfsmönnum að vinna áfram að málinu í samstarfi við Vegagerðina.
3.
Beiðni - Lóðarhafaskipti Ófeigstangi 14 og Álaugarvegur 10
Málsnúmer 202308069
Gauti vék af fundi undir þessum lið.Beiðni um að lóðarhafar Skinney - Þinganes hf. á Ófeigstanga 14 og Þingvað ehf. Álaugarvegi 10 skipti um lóð.
Bæjarráð samþykkir lóðarskiptin þar sem ríkar og málefnalegar ástæður eru fyrir lóðaskiptunum.
4.
Ferðamennskusamfélagið
Málsnúmer 202212030
Sveitarfélagið Hornafjörður ásamt samstarfsaðilum hlaut styrk úr Sóknaráætlun Suðurlands til að vinna að gerð stöðu- og þarfagreiningar á ferðamennskusamfélaginu Hornafirði. Markmiðið með fyrsta hluta vinnunar er að undirbyggja stefnumótun með áherslu á sjálfbæra ferðamennsku, byggðaþróun, menningu, menntun, nýsköpun og rannsóknir. Samstarfsaðilar sveitarfélagsins eru Rannsóknarsetur HÍ í Hornafirði, FAS og Þekkingarsetrið Nýheimar og SASS. Ragnhildur Jónsdóttir fyrrum fræðslustjóri sveitarfélagsins er höfundur rannsóknarinnar.
Lagt fram til kynningar.
5.
Forkaupsréttur á skipi
Málsnúmer 202309006
Erindi frá Bátum og búnaði ehf. þar sem óskað er eftir að sveitarfélagið taki afstöðu hvort það ætli að nýta sér forkaupsrétt á skipinu Sigurbjörgu SF710 sem stendur til að selja til kaupanda á Patreksfirði.
Bæjarráð samþykkir að Sveitarfélagið Hornafjörður muni ekki nýta sér forkaupsrétt á Sigurbjörgu SF710 enda er ekki um sölu aflaheimilda að ræða.
6.
Vatnsból í Nesjum
Málsnúmer 201910107
Farið yfir stöðu á fyrirhugaðri nettengingu við vatnsbólið í Nesjum.
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.
7.
Gjaldskrá byggingamála
Málsnúmer 202110086
Bæjarráð óskaði eftir að greina tvær ólíkar tölur 7% eða 9% og áhrif á einstaklinga og sveitarfélagið í sambandi við áætlaðan kostnað og innviði.
Vísað til áframhaldandi vinnu starfsmanna.
8.
Starfshópur um skattlagningu orkuvinnslu
Málsnúmer 202308064
Erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem aðildarsveitarfélög innan Samtaka orkusveitarfélaga eru hvött til þess að senda umsögn í samráðsgátt.
Bæjarráð hefur nú þegar sent inn umsögn.