Bæjarráð Hornafjarðar
1099. fundur
26. september 2023
kl.
10:00
-
11:25
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir
formaður
Gauti Árnason
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Fræðslu- og frístundanefnd - 104
Fundargerðin samþykkt.
2.
Leikskólaráð
Fræðslu- og frístundanefnd leggur til að starfsmenn þurfi ekki að greiða fyrir skráningardaga sinna barna ef þeir þurfa að vinna á skráningardögum og vísar málinu til bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir að starfsmenn þurfi ekki að greiða fyrir vistun barna sinna á skráningardögum.
3.
Námsvist utan lögheimilissveitarfélags
Fært í trúnaðarbók.
4.
Sala á eignum sveitarfélagsins
Minnisblað frá sviðsstjóra velferðarsviðs lagt fram um forsendur verðmats á Bjarnahól 2.
Bæjarráð samþykkir forsendurnar og felur sviðsstjóra að vinna áfram að málinu.
5.
Gamlabúð - auglýsing vegna leigu
Ein umsókn barst frá Páli Guðbrandssyni.
Bæjarráð óskar eftir fundi með umsækjanda.
6.
Millilandaflugvöllur í Hornafirði
Svar frá Isavia við fyrirspurn bæjarráðs á fundi með stjórn Isavia þar sem bæjarráð óskaði eftir svörum við því hvaða breytingar þarf að gera á Hornafjarðarflugvelli til þess að hann uppfylli kröfur um millilandaflugvöll.
Bæjarráð þakkar fyrir greinargóð svör og felur bæjarstjóra að vinna áfram að málinu.
7.
Fundargerðir stjórnar SASS
Fundargerðirnar lagðar fram til kynningar.