Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1101. fundur
10. október 2023 kl. 10:00 - 12:25
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir formaður
Gauti Árnason varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 259
Málsnúmer 2309016F
Fundargerðin samþykkt.
2.
Velferðarnefnd - 27
Málsnúmer 2309022F
Fundargerðin samþykkt.
3.
Íbúaráð Öræfum - 1
Málsnúmer 2308011F
Frestað til næsta fundar.
4.
Starfsumhverfi leikskóla
Málsnúmer 202008018
Hafdís greindi frá breytingum á kjarasamningum starfsmanna í leikskóla.
Breyting á kjarasamningum voru vegna heildarsérákvæði hjá AFL sem áttu ekki lengur við og voru úreld nema eitt um veikindakafla sem fjallar um veikindadaga barna, sem er verð að samræma við alla starfshópa. Fatapeningagreiðslur verða eins og hjá öllum örðum starfshópun en þau fá útiföt í staðin fyrir peninga sem þau þurftu að borga skatta af og dugði oft ekki fyrir útifötum.
5.
Endurnýjun Jafnréttisáætlunnar
Málsnúmer 201907018
Endurnýjun á jafnréttisáætlun var lögð fyrir allar fastanefndir sveitarfélagsins. Engar efnislegar breytingar voru gerðar á henni í yfirferðinni.
Bæjarráð samþykkir jafnréttisáætlunina og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
6.
Umsóknir í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða 2023
Málsnúmer 202310022
Atvinnu- og ferðamálafulltrúi ásamt sviðsstjóra umhverfis og skipulagssviðs komu á fundinn og gerðu grein fyrir vinnu við umsókn í framkvæmdasjóð ferðamannastaða. Umsóknarfrestur í sjóðinn er til 19. október.
Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu.
7.
Viðaukar fjárhagsáætlunar 2023
Málsnúmer 202305001
Fjármálastjóri fór yfir viðauka IV við fjárhagsáætlun ársins. Meðfylgjandi yfirlit sýna áhrif viðaukans á upphaflega samþykkta áætlun ársins. Viðbótarfjárheimildum verði mætt með lækkun á handbæru fé.
Bæjarráð samþykkir viðauka IV og vísar honum til afgreiðslu bæjarstjórnar.
8.
Kaup á listaverkum Svavarssafn
Málsnúmer 202212026
Frestað til næsta fundar.
9.
Beiðni - Lóðarhafaskipti Ófeigstangi 16
Málsnúmer 202310013
Bæjarráð er jákvætt fyrir málinu og felur starfsmönnum að vinna áfram að málinu með hlutaðeigandi.
10.
Ósk um afnot á gömlu steypustöðinni fyrir Knattspyrnudeildina
Málsnúmer 202309093
Erindi frá knattspyrnudeild Sindra þar sem óskað er eftir aðstöðu í gömlu steypustöðinni til þess að telja umbúðir.
Bæjarráð gefur heimild fyrir afnotum af húsnæðinu og felur starfsmönnum að gera samning við knattspyrnudeildina.
11.
Uppbygging innviða á Jökulsárlóni
Málsnúmer 202310027
Fjármála- og efnahagsráðuneytið og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið óska eftir markaðsaðilum til samtals um mögulega aðkomu einkaaðila að uppbyggingu fasteigna og innviða við Jökulsárlón.Til skoðunar er að bjóða út uppbyggingu og rekstur innviða ásamt mögulegu rekstrar- eða sérleyfi fyrir ákveðinn rekstur á svæðinu. Leitað er til markaðsaðila til þess að kanna hvort áhugi sé fyrir verkefninu.
Forsvarsmenn FASK gerðu grein fyrir áhuga heimamanna á að bjóða í uppbyggingu og rekstur innviða á Jökulsárlóni.