Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1102. fundur
17. október 2023 kl. 10:00 - 15:25
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir formaður
Gauti Árnason varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 66
Málsnúmer 2310002F
Fundargerðin samþykkt.
2.
Íbúaráð Öræfum - 1
Málsnúmer 2308011F
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
3.
Íbúaráð - Nes-og lón - 1
Málsnúmer 2309019F
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
4.
Kvennaverkfall 24.október
Málsnúmer 202310056
Boðað hefur verið til kvennaverkfalls 24. október nk.
Bæjarráð felur bæjarstjóra í samráði við forstöðumenn stofnanna að undirbúa daginn og gera ráðstafanir.
Ekki verði dregið af launum kvenna og kvára vegna fjarvista í tengslum við verkfallið.
Bæjarráð hvetur konur og kvár til að taka þátt í baráttu gegn kynbundnu ofbeldi og að taka þátt í viðburðinum og mæta í kröfugöngu við Ráðhúsið kl. 11:30.
Vegna verkfallsins mun bæjarráð færa fund sinn sem er áætlaður þriðjudaginn 24. október, til mánudagsins 23. október.
5.
Skipurit 2020
Málsnúmer 202001015
Bæjarstjóri gerði grein fyrir breytingum á skipuriti sveitarfélagsins.
Bæjarráð samþykkir að auglýsa nýja stöðu sviðsstjóra stjórnsýslusviðs og felur bæjarstjóra að auglýsa starfið.
Bæjarráð felur fjármálastjóra að vinna kostnaðarmat á þeim breytingum sem lagðar eru til á skipuriti sveitarfélagsins.
6.
Fjárhagsáætlun 2024-2027
Málsnúmer 202308073
Rammaáætlanir deilda lagðar fram og yfirfarnar.
Vísað til áframhaldandi vinnu fjármálastjóra.
7.
Starfsmannamál umhverfis- og skipulagssviðs
Málsnúmer 202310055
Minnisblað bæjarstjóra um störf á umhverfis- og skipulagssviði lagt fram.
Fjármálastjóra falið að kostnaðarmeta breytingar á sviðinu og uppfæra launaáætlun fyrir næsta ár.
8.
Ósk um aukið samstarf
Málsnúmer 202310026
Erindi frá Leikfélagi Hornafjarðar þar sem óskað er eftir um auknu samstarfi við sveitarfélagið. Fram kemur að Framhaldskóli Austur-Skaftafellssýslu hafi slitið samstarfi við leikfélagið en skólinn hefur lagt til fjármagn til leikstjóra á meðan Leikfélagið sá um aðra vinnu og fjármögnun á öðrum þáttum leiksýninga.
Vísað til umræðu og ákvarðanatöku samhliða vinnu við styrkveitingar í fjárhagsáætlun 2024.
9.
Ósk um umsög - Tillaga til þingályktunar um samgönguáætlum fyrir árin 2024-2038
Málsnúmer 202310054
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis óskar eftir umsögn við tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2024-2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2024 - 2028.Umsagnarfrestur er til 26. október.
Bæjarstjóra falið að vinna að málinu og afgreiðslu næsta fundar.
10.
Fundargerðir HAUST
Málsnúmer 202310053
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
11.
Umsögn um rekstarleyfi fyrir Vonia ehf.
Málsnúmer 202310058
Erindi frá Sýslumanninuum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn við rekstrarleyfi fyrir Vonia ehf. rekstur veitinga í flokki II veisluþjónusta og veitingaverslun.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn.