Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1104. fundur
31. október 2023 kl. 10:00 - 13:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir formaður
Gauti Árnason varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 56
Málsnúmer 2310011F
Fundargerðin samþykkt.
2.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 260
Málsnúmer 2310001F
Fundargerðin samþykkt.
3.
Uppbygging innviða á Jökulsárlóni
Málsnúmer 202310027
Ferðamálafélag Austur- Skaftafellssýslu (FASK), sendi erindi til atvinnu- og menningarmálanefndar vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar við Jökulsárlón. Óskað er eftir því að sveitarfélagið láti vinna lögfræðiálit vegna málsins.
Bæjarráð þakkar FASK erindi og lýsir mikilli ánægju með þann stórhug og samstöðu sem ferðaþjónustuaðilar á svæðinu hafa sýnt í verki sl. misseri. Bæjarráð telur þó ekki að forsendur séu fyrir því að sveitarfélagið láti vinna lögfræðiálit, eins og FASK óskar eftir í sínu erindi.

Bæjarráð ítrekar að fyrirhuguð uppbygging á innviðum og ferðaþjónustu við Jökulsárlón sé unnin þéttu samstarfi við heimafólk hér í Hornafirði, og minnir á markmið í lögum Vatnajökulsþjóðgarðs, um að leitast við að styrkja byggð og atvinnustarfsemi í nágrenni þjóðgarðsins.
4.
Kaup á listaverkum Svavarssafn
Málsnúmer 202212026
Farið var yfir kostnað við listasýningar í Svavarssafni.
Vísað til áframhaldandi vinnu bæjarstjóra.
5.
Fjárhagsáætlun 2024-2027
Málsnúmer 202308073
Fjármálastjóri fór yfir forsendur fjárhagsáætlunar.
Bæjarráð samþykkir fjárhagsáætlun 2023-2026 og vísar henni til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
Bæjarráð vísar fjárhagsáætlun einnig til frekari úrvinnslu og framsetningu hjá starfsmönnum og KPMG.
6.
Staða sveitarsjóðs 2023
Málsnúmer 202308074
Fjármálasjóri gerði grein fyrir stöðu á rekstri sveitarfélagsins.
Rekstur sveitarsjóðs er traustur. Tekjur eru umfram áætlun og ekki hefur þörf á lántöku það sem af er ári. Þó ber að hafa í huga að ekki hefur tekist að framkvæma jafn mikið og upp var lagt með og munar þar mest um að viðbygging við Leikskólann Sjónarhól klárast ekki á þessu ári.
7.
Gjaldskrár fræðslu- og frístundasviðs 2023
Málsnúmer 202308039
Málinu frestað.
8.
Starfsmannamál umhverfis- og skipulagssviðs
Málsnúmer 202310055
Málið tekið fyrir að nýju þar sem það var læst fyrir birtingu, eftir síðasta fund bæjarráðs.
Óskað hefur verið eftir að auglýsa eftir skipulagsfulltrúa á umhverfis- og skipulagssvið. Samþykkt með tveim atkvæðum. Ásgerður K. Gylfadóttir situr hjá.
9.
Framkvæmdir 2023
Málsnúmer 202302088
Óskað er eftir viðbótafjármagni til þess að klára framkæmdir við Báruna og Hrollaugsstaði.
Bæjarráð samþykkir að aukafjármagn í framkvæmdir við Báruna og Hrollaugsstaði og vísar málinu til fjármálastjóra til gerðar viðauka.
10.
Ósk um leyfi á uppsetningu á vefmyndavélum á fasteignir sveitarfélagsins
Málsnúmer 202310122
Erindi frá Sveinbirni Imsland þar sem hann óskar eftir að setja upp vefmyndavélar á eignir sveitarfélagsins. Óskað er eftir að setja myndavélar á Vöruhúsið, Gamla vatnstankinn og Nýja vatnstankinn.
Bæjarráð óskar eftir frekari upplýsingum og áliti persónuverndarfulltrúa á málinu.
11.
Fundargerðir - Samband íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 202303059
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
12.
Framkvæmd byggingar hjúkrunarheimilis
Málsnúmer 202306046
Sveitarfélagið hefur óskað eftir samtali við heilbrigðisráðuneytið um kostnaðarhlutdeild vegna byggingar nýs hjúkrunarheimilis hér í Hornafirði ef talsverðar tafir hafa verið á verkinu.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna að málinu áfram.