Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1105. fundur
7. nóvember 2023 kl. 10:00 - 11:50
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir formaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir varamaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 67
Málsnúmer 2310016F
Fundargerðin samþykkt.
2.
Íbúaráð - Suðursveit og Mýrar - 1
Málsnúmer 2310008F
Fundargerðin samþykkt og málefnum Holts vísað til afgreiðslu starfsmanna.
3.
Fjárhagsáætlun 2024-2027
Málsnúmer 202308073
Fjármálastjóri og bæjarstjóri fóru yfir fjárhagsáætlun 2024-2027.
Fjárhagsáætlun 2024-2027 vísað til fyrri umræðu bæjarstjórnar.
4.
Lántaka 2023
Málsnúmer 202311005
Fjármálastjóri greindi frá undirbúningi við lánsumsókn.
Bæjarráð samþykkir að vísa afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
5.
Viðaukar fjárhagsáætlunar 2023
Málsnúmer 202305001
Fjármálastjóri fór yfir viðauka V við fjárhagsáætlun ársins.
Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.
6.
Gjaldskrár fræðslu- og frístundasviðs 2023
Málsnúmer 202308039
Bæjarráð samþykkir gjaldskrár fræðslu- og frístundasviðs í samræmi við umræður á fundinum og vísar þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar.
7.
Gjaldskrá 2024
Málsnúmer 202310087
Gjaldskrá Menningarmiðstöðvar lögð fram.
Bæjarráð samþykkir gjaldskrána og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
8.
Umsókn um lóð - Borgartún 3 og 5
Málsnúmer 202108114
Lóðarhafi óskar eftir framlengingu á lóðaúthlutun á lóð nr. 5 við Borgartún L229627 vegna. Ástæða frestsins er vegna vanefnda verktaka og hás vastastigs í landinu.
Bæjarráð óskar eftir nánari upplýsingum og tímaáætlun um framkvæmdir.
9.
Umsókn um lóð - Júllatún 10
Málsnúmer 202310141
Umsókn Þingvað ehf. á lóð að Júllatúni 10.
Bæjarráð samþykkir lóðarúthlutunina og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
10.
Umsókn um lóð - Júllatún 8
Málsnúmer 202311027
Umsókn Þingvað ehf. um lóð að Júllatúni 8.
Bæjarráð samþykkir lóðarúthlutunina og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
11.
Umsókn um lóð - Hafnarbraut 6
Málsnúmer 202109071
Bæjarráð óskaði eftir skýringu á ósk um breytingu á skipulagi fyrir lóðina Hafnarbraut 6. Í svarbréfi kemur fram að áætlað er að byggja hús með íbúðum og veslunarrými. Óskað er eftir fresti á framkvæmdum á meðan skipulagsvinna stendur yfir.
Starfsmanni fali að skoða hvort hugmyndir lóðarhafa falla að gildandi deiliskipulagi.
12.
Umsókn um lóð Ósland lóð K (Sandeyri 10)
Málsnúmer 202002027
Erindi frá lóðarhafa á Sandeyri 10 í Óslandi þar sem óskað er eftir allt að sex mánaða fresti á framkvæmdum á þeim forsendum m.a. að öll samskipti við framleiðendur erlendis eru hafin og vinna við hönnun sömuleiðis. Arkitekt verkefnisins á þessu stigi hefur þurft að breyta og endurskipuleggja lóðirnar frá grunni vegna verulegrar breytingar á deiliskipulagi nærliggjandi lóða og heildaryfirbragði svæðisins í heild sinni.
Bæjarráð samþykkir að veita frest til 30. apríl 2024.
13.
Umsókn um lóð Ósland lóð J (Sandeyri 8)
Málsnúmer 201904026
Erindi frá lóðarhafa á Sandeyri 8 í Óslandi þar sem óskað er eftir frest á framkvæmdum á þeim forsendum m.a. að öll samskipti við framleiðendur erlendis eru hafin og vinna við hönnun sömuleiðis. Arkitekt verkefnisins á þessu stigi hefur þurft að breyta og endurskipuleggja lóðirnar frá grunni vegna verulegrar breytingar á deiliskipulagi nærliggjandi lóða og heildaryfirbragði svæðisins í heild sinni.
Bæjarráð samþykkir að veita frest til 30. apríl 2024.
14.
Fundargerðir - Samband íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 202303059
Fundargerðin lögð fram til samþykktar.