Bæjarráð Hornafjarðar
1106. fundur
14. nóvember 2023
kl.
10:00
-
12:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir
formaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir
varamaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
varamaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Almannavarnanefnd - 68
Fundargerðin samþykkt.
2.
Velferðarnefnd - 28
Fundargerðin samþykkt.
3.
Stuðningur við Grindavík
Bæjarráað Hornafjarðar vill koma eftifarandi kveðju til íbúa Grindavíkur:
Kæru Grindvíkingar.
Fyrir hönd Sveitarfélagsins Hornafjarðar sendum við ykkur okkar hlýjustu strauma í þeim miklu áskorunum og óvissu sem þið standið nú frammi fyrir - hugur okkar er hjá ykkur. Það er aðdáunarvert að fylgjast með ykkar fumlausu viðbrögðum og miklu samstöðu á erfiðum tímum.
Þið getið treyst því að við Hornfirðingar munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að veita ykkur alla þá aðstoð sem við getum.
Bæjarráð Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Kæru Grindvíkingar.
Fyrir hönd Sveitarfélagsins Hornafjarðar sendum við ykkur okkar hlýjustu strauma í þeim miklu áskorunum og óvissu sem þið standið nú frammi fyrir - hugur okkar er hjá ykkur. Það er aðdáunarvert að fylgjast með ykkar fumlausu viðbrögðum og miklu samstöðu á erfiðum tímum.
Þið getið treyst því að við Hornfirðingar munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að veita ykkur alla þá aðstoð sem við getum.
Bæjarráð Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
4.
Samningur um rekstur umdæmisráðs barnaverndar á landsbyggðinni
Minniháttarbreytingar á samning um umdæmisráð barnaverndar lagðar fram til samþykktar, velferðarnefnd gerir ekki athugasemd við breytingar á samningnum.
Bæjarráð samþykkir breytingar á samningi um umdæmisráð barnaverndar.
5.
Gjaldskrár 2024
Velferðarnefnd leggur til breytingar á gjaldskrá velferðarsviðs. Þær breytingar sem gerðar voru á gjaldskránni eru að matur fylgi innkaupaverði. Kaffi í dagþjónustu aldraðra mun kosta 200 kr. og kaka 500 kr. Félagsleg heimaþjónusta hækkar í 2.245 kr.
Bæjarráð samþykkir gjaldskrána og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
6.
Notendaráð um málefni fatlaðs fólks
Notendaráð Sveitarfélagsins Hornafjarðar um málefni fatlaðs fólks heyrir undir velferðarnefnd Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Hlutverk notendaráðs um málefni fatlaðs fólks er að vera formlegur vettvangur samráðs og samstarfs við sveitarstjórn um hagsmuni fatlaðs fólks þar sem fjallað er um þjónustu við fatlað fólk, framkvæmdhennar og þróun.
Bæjarráð samþykkir erindisbréf fyrir notendaráð um málefni fatlaðs fólks og vísar því til afgreiðslu bæjarstjórnar.
7.
Fjárhagsáætlun 2024-2027
Fjármálastjóri gerði grein fyrir styrkjum og framlögum sveitarfélagsins.
Íbúafundir um fjárhagsáætlun verða haldnir í Nýheimum 24. nóvember í kl. 12:00. Fundir verða í dreifbýli samhliða íbúafundum um aðalskipulag á Fosshótel Lindabakka 27. nóvember kl:17 og í Hofgarði 28. nóvember kl. 14:00.
8.
Samþykkt um umgengni og þrifnað utan húss
Erindi frá HAUST þar sem óskað er eftir að bæjarráð gefi umsögn um hvort þær lagfæringar sem gerðar hafa verið samþykktinni séu það efnislitlar að ekki þurfi að setja þær í tveggja umræðna ferli bæjarstórnar.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi lagfæringar á samþykktinni og telur þær vera það efnislitlar að þær þurfi ekki tveggja umræðna umfjöllun bæjarstjórnar.
9.
Beiðni um tilnefningar í svæðisráð suðursvæðis í Vatnajökulsþjóðgarði
Erindi frá umhverfis-,orku- og loftlagsráðherra þar sem óskað er eftir að Sveitarfélagið Hornafjörður tilnefni þrjá aðalfulltrúa og þrjá varafulltrúa í svæðisráð suðursvæðis í Vatnajökulsþjóðgarði.
Frestað til næsta fundar.
10.
Markaðsstofa Suðurlands - ósk um endurnýjun samnings
Erindi frá Markaðsstofu Suðurlands þar sem óskað er eftir endurnýjun á samningi.
Bæjarráð samþykkir að endurnýja samninginn við Markaðstofu Suðurlands.
11.
Beiðni - Frestur til framkvæmda á lóð Hagaleira 3
Lóðarhafi að lóðinni Hagaleiru 3 óskar eftir frest á framkvæmdum vegna seinkunar á afhendingu hússins.
Bæjarráð samþykkir frest á framkvæmdum í samræmi við tímaáætlun lóðarhafa.
12.
Umsókn um lóð: Hagaleira 14
Mikael ehf. óskar eftir að frestur á lóðarframkvæmdum verði veittur þar sem uppsteypa á parhúsinu stendur yfir.
Bæjarráð samþykkir frest á framkvæmdum í samræmi við tímaáætlun lóðarhafa.