Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1110. fundur
12. desember 2023 kl. 10:00 - 12:20
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir formaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir varamaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 69
Málsnúmer 2312003F
Fundargerðin samþykkt.
2.
Sorpmál 2023
Málsnúmer 202310160
Tillögur að þrepaskiptri kostnaðarþátttöku íbúa og fyrirtækja í sorpmálum kynntar fyrir bæjarráði.Lagt er upp með að málaflokkurinn standi undir sér eins og lög gera ráð fyrir árið 2027.
Bæjarráð samþykkir breytingu á gjaldskrá vegna sorphirðu og sorpeyðingargjalda í samræmi við breytta löggjöf sem tók gildi síðustu áramót. Hækkunin nemur 1,04%-28,5% eða 15% að meðaltali á heimili. Hækkun á gjöldum er misjöfn eftir samsetningu sorpíláta. Íbúar munu geta skráð sína samsetningu sorpíláta í íbúagátt á hornafjordur.is/ibuagatt, á nýju ári.
Vegna ákvæða laga um að greitt sé fyrir allan úrgang munu fyrirtæki taka þátt í rekstrarkostnaði urðunarstaðar og móttökustöðvar með föstu gjaldi á atvinnuhúsnæði.
Upplýsingar varðandi breytingarnar verða kynntar nánar á vef sveitarfélagsins og í Eystrahorni.
Vísað til vinnu fjárhagsáætlunar.
3.
Gjaldskrá byggingarmála
Málsnúmer 202110086
Bæjarráð samþykkir gjaldskrána og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
4.
Fjárhagsáætlun 2024
Málsnúmer 202308073
Ásgerður gerir athugasemd við að öll gögn hafi ekki legið fyrir, fyrir fundinn.
Bæjarráð samþykkir að vísa fjárhagsáætlun 2024 til síðari umræðu bæjarstjórnar.
5.
Fjárhagsáætlun 2025-2027
Málsnúmer 202312045
Bæjarráð vísar þriggja ára áætlun til afgreiðslu bæjarstjórnar.
6.
Slökkvibíll
Málsnúmer 202312043
Slökkvibíll sem er á fjárhagsáætlun 2023 kemur ekki fyrr en á næsta ári.
Lagt fram til kynningar.
7.
Úthlutun byggðarkvóta 20232024
Málsnúmer 202312015
Erindi frá matvælaráðuneytinu þar sem tilkynnt er um úthlutun byggðarkvóta fyrir fiskveiðiárið 2023/2024. Úthlutunin er sú sama og á síðasta fiskveiðiári.
Vinnu við umsókn um sérreglur vísað til atvinnu- og ferðamálafulltrúa.
8.
Grænbók í málefnum innflytjenda og flóttafólks birt í samráðsgátt stjórnvalda
Málsnúmer 202311082
Lagt fram til kynningar.
9.
Til umsagnar 509.mál - húsnæðisstefna fyrir árin 2024-2038 ásamt fimm ára aðgerðaráætlun fyrir árin 2024-2028
Málsnúmer 202312005
Lagt fram til kynningar.
10.
Ósk um framlengingu á samningi
Málsnúmer 202312028
Erindi frá Sindra þar sem óskað er eftir framlengingu á samningi um aðstöðu fyrir möttöku gjaldskyldra umbúða.
Bæjarráð samþykkir að framlengja samninginn um eitt ár.
11.
Umsókn um tækifærisleyfi til áfengisveitinga - Dansleikur Knattspyrnudeildar og Körfuknattleiksdeildar Sindra
Málsnúmer 202312039
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn.
12.
Ungmennaráð 2023-2024
Málsnúmer 202306028
Ungmennaráð óskar eftir fundi með bæjarráði 8. janúar 2024 kl. 16:00.
Bæjarráð þakkar fyrir boðið og samþykkir að mæta á fund ungmennaráðs 8. janúar nk.
13.
Fundargerðir - Samband íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 202303059
Fundargerðin lögð fram til kynningar.