Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1112. fundur
9. janúar 2024 kl. 10:00 - 13:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir formaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir varamaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Bryndís Bjarnarson
Jóna Benný Kristjánsdóttir
Fundargerð ritaði:
Bryndís Bjarnarson stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Íbúaráð - Nes og Lón - 2
Málsnúmer 2312019F
Fundargerðinni frestað til næsta fundar.
2.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 70
Málsnúmer 2312016F
Fundargerðin samþykkt.
3.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 58
Málsnúmer 2312013F
Fundargerðin samþykkt.
4.
Lóðarúthlutanir- Innbæ
Málsnúmer 202308042
Anna Lilja Ragnarsdóttir fulltrúi Sýslumanns stýrði úrdrætti lóða við Silfurbotn 1-5 þrjár umsóknir bárust. Umsækjendur eru Berglind Gerða Libungan, Þingvað ehf. og Verkfærni ehf. Sædís Ösp Valdemarsdóttir var viðstödd fyrir hönd Verkfærni.
Eyrún Fríða Árnadóttir dró út lóðarumsækjanda og var Berlind Gerða Libungan dregin út.
Bæjarráð samþykkir að vísa lóðarúthlutuninni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
5.
Útboð 2.Stækkun leikskóla á Hornafirði - Sjónarhóll
Málsnúmer 202311096
Tvö tilboð bárust í verkið, kostnaðaráætlun hljóðar upp á 319.901.014 kr.
Þingvað ehf. frávikstilboð 439.928.557 kr. 38% yfir kostnaðaráætlun.
Hrafnshóll ehf. frávikstilboð 595.000.000 kr. 86% yfir kostnaðaráætlun.
Við yfirferð kemur í ljós að það vantar tvo liði í kostnaðaráætlun.
Lagfærður útreikningur kostnaðaráætlunar er því 332.109.294 kr.
Þingvað ehf. er því 33% yfir kostnaðaráætlun og Hrafnshóll ehf. 79% yfir kostnaðaráætlun.
Starfsmönnum falið að óska eftir skýringum á ákveðnum liðum í tilboðunum.
6.
Gjaldskrá sorphirðu og sorpeyðingu
Málsnúmer 202401057
Bæjarráð samþykkir gjaldskrá fyrir sorphirðu og sorpeyðingu og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
7.
Gjaldskrá söfnunarstöðvar
Málsnúmer 202401058
Bæjarráð samþykkir gjaldskrá fyrir söfnunarstöð og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar
8.
Framkvæmd byggingar hjúkrunarheimilis
Málsnúmer 202306046
Bæjarráð lýsir einróma vonbrigðum sínum með svar heilbrigðisráðuneytisins við erindi og minnisblaði Hornafjarðar og Reykjanesbæjar, um samtal vegna kostnaðarskiptingu á milli ríkis og sveitarfélaganna varðandi framleiðslueldhús. Ekki verður séð að nokkur rök geti legið fyrir því að ríkið taki ekki jafn mikinn þátt í stofnkostnaði framleiðslueldhúsa eins og öðrum þáttum í stofnanaþjónustu hjúkrunarheimila.

Sveitarfélagið fer enn á ný fram á að heilbrigðisráðuneytið taki að sama hlut þátt kostnaði við að reisa framleiðslueldhús líkt og um framreiðslueldhús (móttökueldhús) væri að ræða og þar verði fylgt sömu kostnaðarskiptingu eins og gert er ráð fyrir í lögum um heilbrigðisþjónustu, þannig þar sem ríkið ber 85% af stofnkostnaði á móti 15% framlagi sveitarfélaganna.

Þá lýsir bæjarráð furðu sinni með skilning ráðuneytisins á því að kostnaður við flutning á núverandi eldhúsi á meðan á framkvæmdum stendur falli að öllu leiti á sveitarfélagið - slíkt getur ekki staðist skoðun.

Bæjarráð felur bæjarstjóra og starfsmönnum að vinna málið áfram.
9.
Húsnæðisáætlun - Hornafjörður 2024
Málsnúmer 202311080
Meginmarkmið sveitarfélagsins í húsnæðismálum er að skapa íbúum tækifæri til þess að búa í öruggu húsnæði. Áhersla er lögð á að íbúar sem þarfnast stuðnings með sín húsnæðismál hafi forgang. Við framkvæmd húsnæðisstefnu verður litið til þess að hún nái fram að ganga óháð eignarhaldi íbúða þ.e. íbúðanna sjálfra, leigufélaga, annarra samtaka eða sveitarfélagsins í samræmi við lög um húsnæðismál.
Bæjarráð samþykkir húsnæðisáætlun 2024 og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Starfsmönnum falið að uppfæra áætlunina í samræmi við umræður á fundinum.
10.
Öræfanet: Framkvæmdir við ljósleiðara
Málsnúmer 202003029
Erindi frá Mílu um yfirtöku á gagnaveitu Hornafjarðar.
Starfsmönnum falið að greina kosti við framtíðar rekstrarfyrirkomulag Gagnaveitu Hornafjarðar.
11.
Skipulag - Stækkun á lóð Hótel Jökull
Málsnúmer 202312091
Umvherfis- og skipulagsnefnd vísaði málinu til bæjarráðs. Eigendur Hótels Jökuls ehf. óska eftir stækkun á lóð í kring um hótelið skv. uppdrætti.
Bæjarráð óskar eftir frekari rökstuðningi og fyrirætlan lóðarumsækjanda.
Viðhengi
stækkun.PNG
12.
Gjaldskrá vegna útleigu á húsnæði og munum í eigu sveitarfélagsins
Málsnúmer 202401050
Gjaldskrá vegna útleigu á húsnæði og munum í eigu Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2024.
Bæjarráð samþykkir gjaldskrána og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
13.
Umsókn um lóð - Víkurbraut 34
Málsnúmer 202110058
Erindi frá lóðarhafa þar sem óskað er eftir framlengingu á frestum vegna lóðarúthlutana.
Bæjarráð samþykkir að veita frest til 15. maí næstkomandi.
14.
Umsókn um lóðir - Sandeyri 2-7
Málsnúmer 202205127
Erindi frá lóðarhafa þar sem óskað er eftir framlengingu á frestum vegna lóðarúthlutana.
Bæjarráð samþykkir að veita frest til 15. maí næstkomandi.
15.
Umsókn um lóð - Álaugarvegur 10
Málsnúmer 202302007
Erindi frá lóðarhafa þar sem óskað er eftir framlengingu á frestum vegna lóðarúthlutana.
Bæjarráð óskar eftir tímasettri framkvæmdaáætlun innan tveggja vikna.
16.
Umsókn um lóð - Júllatún 8
Málsnúmer 202311027
Lóðarhafa hefur verið kynnt að úthlutun lóðarinnar er fallin úr gildi.
Starfsmönnum falið að auglýsa lóðina.
17.
Umsókn um lóð - Júllatún 10
Málsnúmer 202310141
Lóðarhafa hefur verið kynnt að úthlutun lóðarinnar er fallin úr gildi.
Starfsmönnum falið að auglýsa lóðina.
18.
Til umsagnar 27.mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis
Málsnúmer 202401007
Lagt fram til kynningar.
19.
Þrettándabrenna Mána 2024
Málsnúmer 202312128
Bæjarráð veitti jákvæða umsögn í gegn um tölvupóst.
20.
Fundargerðir - Samband íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 202303059
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
21.
Fundargerðir - stjórn Nýheima þekkingarseturs
Málsnúmer 202303020
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
22.
Fundargerðir stjórnar SASS
Málsnúmer 202301088
Fundargerðin lögð fram til kynningar.