Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1115. fundur
30. janúar 2024 kl. 10:00 - 13:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir formaður
Gauti Árnason varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Jóna Benný Kristjánsdóttir
Fundargerð ritaði:
Jóna Benný Kristjánsdóttir Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 60
Málsnúmer 2401015F
Fundargerð lögð fram til kynningar.
Fundargerð samþykkt einróma.
2.
Menningarstefna 2024-2030
Málsnúmer 202306056
Menningarstefna lögð fram til kynningar fyrir bæjarráð áður en hún fer til umsagnar í nefndum.
Menningarstefnu er vísað til umsagnar í nefndum sveitarfélagsins.
3.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 262
Málsnúmer 2401014F
Fundargerð lögð fram til kynningar.
Fundargerð samþykkt einróma.
4.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 72
Málsnúmer 2401010F
Fundargerð lögð fram til kynningar.
Fundargerðin samþykkt einróma.
5.
Umferðaröryggi og neyðarviðbragð í Öræfum
Málsnúmer 202401151
Starfsmenn umhverfis- og skipulagssviðs hafa sett upp minnisblað um umferðaröryggi og neyðarviðbragð í Öræfum og óska eftir umfjöllun og viðbrögðum um málefnið í bæjarráði.
Bæjarráð Hornafjarðar lýsir enn og aftur yfir þungum áhyggjum af stöðu mála þegar kemur að umferðaröryggi og öryggisviðbragði í Hornafirði. Bæjarráð skorar á Vegagerðina, Innviðaráðherra og ríkisstjórnina að leggja tafarlaust það fé til sem þarf til að bæta vetrarþjónustu á svæðinu og gera þjóðveg eitt öruggari enda umferðarþunginn stöðugt að aukast.

Enn fremur er skorað á að Heilbrigðisstofnun Suðurlands og Lögreglustjórann á Suðurlandi að tryggja ásættanlegt öryggisviðbragð á svæðinu með fastri viðveru bráðaviðbragðsaðila í Öræfum og Suðursveit allt árið um kring.
6.
Umsókn - Lóð undir verslun og þjónustu
Málsnúmer 202307031
Farið yfir drög að samningi um tímabundið lóðarvilyrði við Suðurhús ehf.
Bæjarráð samþykkir samninginn um tímabundið lóðarvilyrði og felur bæjarstjóra að ganga frá samningnum við Suðurhús ehf.
7.
Leyfisumsókn - götu- og torgsala á Sandbakka
Málsnúmer 202401140
Óskað eftir leyfi til að selja minjagripi úr bifreið við Sandbakkaveg.
Bæjarráð vísar málinu til atvinnu- og ferðamálafulltrúa til afgreiðslu samkvæmt núverandi samþykkt um götu- og torgsölu í Sveitarfélaginu Hornafirði.
8.
Úttekt á starfsemi og framtíðarfyrirkomulagi á náttúrustofum.
Málsnúmer 202401137
Bréf frá Umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytinu.
Lagt fram til kynningar.
9.
Stýrihópur um byggingu nýs íþróttahúss
Málsnúmer 202401091
Stýrihópur um nýtt íþróttahús. Tilnefningar í starfshópinn og erindisbréf til umsagnar.
Frestað til næsta fundar bæjarráðs.
10.
Erindi frá Umf. Sindra vegna stýrihóps um byggingu nýs íþróttahúss
Málsnúmer 202401091
Frestað til næsta fundar bæjarráðs.
11.
Unga fólkið aftur heim
Málsnúmer 202312038
Kynning Nýheima þekkingarseturs á þróunarverkefninu Ungt fólk og efling byggðar. Óskað eftir að sveitarfélagið leggi verkefninu til 25% stöðu vegna verkefnisins. Áætlaður launakostnaður vegna 25% stöðu er 3,1 milljón á fyrsta ári verkefnisins en síðan er vonast til að öflun styrkja geti tryggt framhald þess.
Bæjarráð er jákvætt fyrir erindinu og felur fjármálastjóra sveitarfélagsins að meta fjárhagsleg áhrif þess og gera viðauka við fjárhagsáætlun.