Bæjarráð Hornafjarðar
1117. fundur
13. febrúar 2024
kl.
10:00
-
12:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir
formaður
Gauti Árnason
varaformaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
varamaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Jóna Benný Kristjánsdóttir
Fundargerð ritaði:
Jóna Benný Kristjánsdóttir
sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 73
Fundargerð lögð fyrir bæjarráð til staðfestingar.
Bæjarráð samþykkir fundargerðina einróma.
2.
Velferðarnefnd - 30
Fundargerð velferðarnefndar lögð fram til staðfestingar.
Bæjarráð samþykkir fundargerðina einróma.
3.
Skipulag - Stækkun á lóð Hótel Jökull
Minnisblað umhverfis- og skipulagsstjóra varðandi umsókn eigenda Hótels Jökuls um stækkun lóðar lagt fram.
Bæjarráð samþykkir einróma stækkun samkvæmt umsókn á svæði 1. Bæjarráð hafnar einróma stækkkun á svæði 2 og 3 þar sem ekki eru komin framtíðaráform um uppbyggingu á þeim svæðum. Bæjarráð samþykkir að settar verði kvaðir um aðkomu að hótelinu á svæði 2.
4.
Fundargerðir stjórnar SASS 2024
Fundargerð lögð fram til kynningar.
Lögð fram til kynningar.
5.
Rekstarleiga bifreiða stuðnings- og virkniþjónustu
Minnisblað vegna reksturs bifreiða velferðarsviðs árið 2023 lagt fram.
Bæjarráð vísar breytingum á rekstrarleigu til fjármálastjóra til gerðar viðauka II við fjárhagsáætlun.
6.
Til umsagnar 629.mál Barnaverndarlög (endurgreiðslur)
Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar 629. mál Barnaverndarlög (endurgreiðslur).
Lagt fram til kynningar.
7.
Útboð á skólaakstri 2024-2028
Í útboðsgögnum um skólaakstur í sveitarfélaginu varðar hluti gagna frístunda- og fimleikaakstur. Frístundaakstur er í boði fyrir börn frá Höfn í Suðursveit síðdegis á starfstíma skóla og hefur verið í boði síðustu ár. Skólaakstur er eitt af lögbundnum hlutverkum sveitarfélaga en það gildir ekki um frístunda- og fimleikaakstur. Í útboðsgögnum frá sveitarfélaginu, sem eru á vef Ríkiskaupa, kemur fram að almenningi sé boðið að nýta frístundaaksturinn, þó ekki fimleikaaksturinn, og var sú hugmynd sett fram til að gefa almenningi kost á að nýta ferðina og auka þannig þjónustu við íbúa sveitarfélagsins. Bæjarráði bárust athugasemdir við þennan þátt útboðsins.
Bæjarráð tekur tillit til athugasemda sem hafa borist. Sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs er falið að gera breytingu á útboðsgögnum í samvinnu við Ríkiskaup.
8.
Aðgerðaráætlun 2023 Barnvænt sveitarfélag
Kynning á aðgerðaráætlun og athugasemdum frá UNICEF.
Bæjarráð lýsir einróma ánægju með gagnlegar og uppbyggilegar ábendingar frá UNICEF. Brugðist hefur verið við ábendingunum og UNICEF hefur verið send uppfærð aðgerðaráætlun til staðfestingar.
9.
Til umsagnar - Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum til að bæta stöðu námsmanna (fæðingarorlof, atvinnuleysistryggingar og námslán).
Lagt fram til kynningar.