Bæjarráð Hornafjarðar
1118. fundur
20. febrúar 2024
kl.
10:00
-
12:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir
formaður
Gauti Árnason
varaformaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
varamaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Jóna Benný Kristjánsdóttir
Fundargerð ritaði:
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Mánagarður
Haldinn var samráðsfundur með helstu notendum Mánagarðs eftir að ábendingar bárust bæjarráði um að skýra þyrfti notkun og umgengni í húsinu. Fyrir liggur fundargerð eftir samráðsfundinn þar sem fram koma ýmsar ábendingar og tillögur að lausnum, m.a. varðandi núverandi umgengnisreglur.
Forstöðumanni íþróttamannvirkja er falið að skerpa á umgengnis- og leigureglum auk þess að vinna að niðurstöðum fundar sem haldinn var með notendum hússins.
2.
Leikskólinn - starfshópur um leikskólamál
Óskað er eftir að bæjarráð taki tillögur skýrslu um leikskólamál til efnislegrar meðferðar og afgreiðslu.
Bæjarráð hefur yfirfarið skýrslu starfshópsins og felur sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs að vinna að eftirfarandi tillögum starfshópsins:
1. Ráðning verkefnastjóra í tímabundið starf til eins árs til að styðja við faglegt starf, móttöku nýrra starfsmanna og stækkun leikskólans.
2. Uppfæra reglur um styrki og sveigjanleika til náms hjá starfsfólki leikskólans.
3. Bæta við einum skipulagsdegi á næsta skólaári og færa starfsmannafundi í samræmi við tillögur starfshópsins.
4. Hækka heilsueflingarstyrk starfsfólks sveitarfélagsins úr 15.000 kr. í 20.000 kr. auk þess sem starfsfólk sveitarfélagsins fái frítt í sund frá og með 1. apríl 2024.
Tillögunum er jafnframt vísað til fjármálastjóra til gerðar viðauka II við fjárhagsáætlun.

3.
Slökkvibifreið Scania
Slökkviliðsstjóri kom og gerði grein fyrir vettvangsferð til Póllands þar sem hann, ásamt sviðsstjóra mannvirkjasviðs, lögðu lokahönd á frágang nýrrar slökkvibifreiðar sem er væntanleg til landsins um miðjan apríl.
Bæjarráð þakkar greinargóða kynningu. Bifreiðin mun stórbæta aðstöðu slökkviliðsins og öryggi í sveitarfélaginu.
4.
Viðmiðunarreglur um snjómokstur
Á síðustu dögum hafa ítrekað borist beiðnir um snjómokstur og hálkuvarnir í dreifbýli. Ekki eru til reglur um vetrarþjónustu í sveitarfélaginu og ekki er fjallað um snjómokstur í dreifbýli í umferðaröryggisáætlun.
Bæjarráð felur umhverfis- og skipulagsstjóra að vinna áfram í reglum um snjómokstur og hálkuvarnir í sveitarfélaginu.
5.
Beiðni um tilnefningar í vatnasvæðanefnd
Fjórar vatnasvæðanefndir starfa á landinu og eru mikilvægur hluti í gerð næstu vatnaáætlunar Íslands sem mun taka gildi í byrjun árs 2028. Fyrsti fundur vatnasvæðanefnda var haldinn 4. desember sl. og er næsti fundur fyrirhugaður í apríl næstkomandi. Sveitarfélagið hefur ekki tilnefnt aðila í nefndina sbr. bréf sem sent var hingað 1. nóvember 2022 og þarf því að tilnefna í nefndina. Tilnefna þarf fulltrúa, annan til vara sem og fulltrúa náttúruverndar- eða umhverfisnefndar sveitarfélags ef slík nefnd starfar á svæðinu.
Bæjarráð tilnefnir Brynju Dögg Ingólfsdóttur, umhverfis- og skipulagsstjóra, sem fulltrúa í nefndina og Bartek Andresson Kass, sviðsstjóra mannvirkjasviðs til vara.
6.
Fundargerðir - Samband íslenskra sveitarfélaga 2024
Leiðrétt fundargerð 942 fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 26. janúar 2024. Fundargerðin er birt á vef sambandsins með þeim gögnum sem lögð voru fram á fundinum. Ekki kemur fram hjá þeim hvaða leiðréttingar voru gerðar.
Lagt fram til kynningar.
7.
Krafa fjármála- og efnahagsráðuneytisins um þjóðlendur á svæði 12
Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur gert kröfu í eyjar og sker skv. meðfylgjandi skjali.
Í breytingarlögum nr. 34/2020 við lög um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta nr. 58/1998, er heimild sem tekur til landsvæða utan strandlengju meginlandsins. Þar kemur skýrt fram að Íslenska ríkið má ekki gera neinar kröfur í svæði sem orðið er hluti af meginlandi Íslands og Óbyggðanefnd hefur heldur enga heimild til að taka slík svæði fyrir.
Miklar breytingar hafa orðið á landi, sérstaklega fyrir suðurströndinni, vegna framburðar jökulvatna, sjávarfalla, landriss og ýmissa landfyllinga, ekki síst hér í Hornafirði. Kröfulýsing ríkisins tekur ekki tillit til þessa og gerir kröfur í fjölda eyja og skerja sem nú eru landföst þó að örnefnin séu óbreytt, þ.e. eyjar og sker.
Bæjarráð Hornafjarðar skorar á Óbyggðanefnd að falla tafarlaust frá þessum kröfum og stofna ekki til frekari málsmeðferðar vegna svæða sem lög heimila ekki að verði tekin til umfjöllunar með tilheyrandi kostnaði og tímasóun.

8.
Endurbætur og viðhald í Ekru
Félag eldri Hornfirðinga hóf samtal við sveitarfélagið um mögulegar breytingar og viðhald í Ekru.
Bæjarráð þakkar gott frumkvæði Félags eldri Hornfirðinga og mun hér eftir sem hingað til styðja vel við bakið á þeirra starfi. Bæjarstjóra, ásamt sviðsstjóra velferðarsviðs og umsjónarmanni viðhalds og fasteigna, er falið að vinna áfram að málinu í samstarfi við Félag eldri Hornfirðinga og íbúa í Ekru.
9.
Uppbygging innviða á Jökulsárlóni
Skýrsla Deloitte um greiningu á mögulegri aðkomu einkaaðila að uppbyggingu á nauðsynlegum innviðum í þágu náttúruverndar og ferðamennsku við Jökulsárlón lögð fram til kynningar. Skýrslan var unnin fyrir Fjármálaráðuneytið og Umhverfis, orku og loftslagsráðuneytið.
Bæjarráð fagnar því að nú sé loks fyrirhuguð uppbygging innviða við Jökulsárlón sem er ein mesta náttúruperla landsins. Aldrei hafa fleiri gestir komið að Jökulsárlóni á einu ári heldur en á síðasta ári, eða tæplega milljón manns. Núverandi aðstaða við Lónið, ekki síst salernisaðstaða, annar á engan hátt slíkum fjölda og er í raun svo döpur að hún er orðsporsáhætta fyrir ferðaþjónustu í landinu.
Sú skýrsla sem nú er komin út er vel unnin og dregur upp fjórar sviðsmyndir um mögulega aðkomu einkaaðila að uppbyggingu við Jökulsárlón.
Bæjarráð leggur áherslu á, að hvaða leið sem farin verður í uppbyggingunni, að útgangspunkturinn sé ætíð í takti við lög um Vatnajökulsþjóðgarð og markmið hans, að leitast sé við að styrkja byggð og atvinnustarfsemi í nærsamfélagi þjóðgarðsins.
Bæjarráð vekur einnig athygli á málþingi um framtíðaruppbyggingu við Jökulsárlón sem haldið verður í Nýheimum miðvikudaginn 13. mars næstkomandi. Á fundinn mætir Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Auglýsing um málþingið birtist í þessari viku.

10.
Hreindýraeftirlit
Eitt hreindýr fór vestur yfir Jökulsárlón á Breiðamerkusandi og er komið yfir á annað svæði. Mikið hefur verið rætt og ritað um þetta mál í tölvupóstsamskiptum á milli lögreglunnar, Umhverfisstofnunar, MAST, dýralækna, sveitarfélagsins o.fl. auk þess sem Öræfingur hefur mætt í ráðhúsið til að ræða málið.
Í fyrsta skipti í áratugi hefur hreindýr nú farið vestur fyrir Jökulsárlón. Svæðið í Öræfum er líflamba-sölusvæði sem er laust við riðu og garnaveiki. Bændur í Öræfum höfðu samband við sveitarélagð og lýstu yfir áhyggjum sínum af þessu og hefur sveitarfélagið verið í sambandi við Umhverfisstofnun (UST) og Matvælastofnun (MAST).
Nú liggur fyrir bæði MAST og UST að ekki sé heimild í lögum, rök eða ástæður til að fella dýrið eða aðhafast frekar vegna þess. Þá er ekki til stefna um útbreiðslusvæði hreindýra. Niðurstaða MAST segir líka að það liggi engar smitsjúkdómalegar ástæður eða rök fyrir að fella þurfi umrætt hreindýr.
Eftir stendur þá kannski spurningin, á að hleypa hreindýrum vestur fyrir Lón og í Öræfasveit?
Í huga bæjarráðs er það ekki æskilegt en ekki er skýrt hvar sú ákvörðun liggur enda er ekki til stefna um útbreiðslusvæði hreindýra.
Ekki er á hreinu hvar boltinn liggur með slíka ákvörðun en stjórnvöld, ofar Matvælastofnun og Umhverfisstofnun, þurfa að skoða og það og svara.
Starfsmönnum er falið að fylgja málinu eftir við stjórnvöld, en bæjarráð óskar einnig eftir umsögn frá íbúaráði Öræfa um málið.

11.
Umsókn um útgáfu leyfa - rekstrarleyfi, Gistiheimilið Hali, Breiðabólsstaður 4, veitingahús
Erindi frá sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn um leyfi til reksturs veitinga í flokk II - A Veitingahús.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn.
12.
Umsögn um útgáfu leyfa - rekstrarleyfi, Gistiheimilið Hali, Beiðabólsstaður 4, minna gistiheimili.
Erindi frá sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn um leyfi til reksturs gististaðar í flokki II - C Minna gistiheimili.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn.
13.
Umsögn um útgáfu leyfa - rekstrarleyfi, Gistiheimilið Hali, Breiðabólsstaður 4, hótel.
Erindi frá sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn um leyfi til reksturs gististaðar í flokki II - A hótel.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn.
14.
Umsókn um útgáfu leyfa - rekstrarleyfi, Litli Lundur, minna gistiheimili
Erindi frá sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn um leyfi til reksturs gististaðar í flokki II - C minna gistiheimili.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn.
15.
Til umsagnar 112.mál - frumvarp til laga um breytingu á barnalögum, nr.762003 (greiðsla meðlags)
Óskað er eftir umsögn um framvarp til laga um breytingu á barnalögum (greiðsla meðlags). Þetta hefur ekki farið fyrir nefnd þar sem óskað er eftir umsögn fyrir 27. febrúar.
Lagt fram til kynningar.
16.
Fundartími bæjarstjórnar
Tillaga um að færa næsta fund bæjarstjórnar fram til 7. mars 2024 vegna Landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Bæjarráð samþykkir tillögu um nýjan fundartíma.