Bæjarráð Hornafjarðar
1121. fundur
12. mars 2024
kl.
10:00
-
12:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir
formaður
Gauti Árnason
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Jóna Benný Kristjánsdóttir
Fundargerð ritaði:
Jóna Benný Kristjánsdóttir
Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 75
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
Fundargerðin einróma samþykkt.
2.
Velferðarnefnd - 31
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
Fundargerðin einróma samþykkt.
3.
Fundargerðir - Samtök orkusveitarfélaga 2024
Fundargerðin lögð fram til kynningar
4.
Sala á Benz slökkvibifreið
Slökkviliðsstjóri leggur fram minnisblað vegna sölu á Benz slökkvibifreið sveitarfélagsins og óskar eftir leyfi til að selja bifreiðina. Fjármagnið sem fæst fyrir bifreiðina verður nýtt til að koma upp björgunartækjum í bifreið sem sveitarfélagið og Björgunarfélagið Kári eru að vinna að í sameiningu.
Bæjarráð samþykkir fyrirhugaða sölu á bifreiðinni MU 869 og felur slökkviliðsstjóra að auglýsa bifreiðina.
5.
Ósk um umsögn um drög að borgarstefnu
Minnisblað sviðsstjóra stjórnsýslusviðs vegna umsagnar um borgarstefnu lagt fram.
Bæjarráð leggur áherslu á almenningssamgöngur við borgarsvæðin í umsögn sinni og felur sviðsstjóra stjórnsýslusviðs að ljúka umsögninni.
6.
Umsókn um lóð - Álaugarvegur 10
Melatangi ehf. óskar eftir breytingum vegna uppbyggingar á lóð að Álaugarvegi 10. Fyrirhugað er að sameina hluta lóðar við lóð nr. 8 og öðrum hluta við lóð nr. 12. Númeri lóðar 12 yrði þá breytt í nr. 10. Lóðarhafar þessara lóða eru sammála um að með nýju fyrirkomulagi muni nýtingarmöguleikar lóðanna aukast. Umhverfis - og skipulagsnefnd lagði til að bæjarráð samþykkti erindi umsækjanda.
Bæjarráð samþykkir beiðnina og felur umhverfis- og skipulagsstjóra að undirbúa málið og leggja það fyrir bæjarstjórn.
7.
Starfsemi velferðarsviðs 2024
Minnisblað sviðsstjóra velferðarsviðs varðandi starfsemi sviðsins árið 2024. Málinu vísað til bæjarráðs til umfjöllunar skv. umræðum á 31. fundi velferðarnefndar.
Bæjarráð þakkar góða kynningu og yfirferð á skipulagi velferðarsviðs og samþykkir framlagðar tillögur samkvæmt minnisblaðinu. Sviðsstjóra velferðarsviðs er falið að vinna áfram að málinu.
8.
Samningur um samræmda móttöku flóttafólks
Drög að endurnýjun samnings um samræmda móttöku flóttafólks lögð fram. Velferðarnefnd telur að samningurinn sé skref í rétta átt en leggur áherslu á að áframhaldandi vinna fari fram þar sem unnið er að sanngjörnum samningi til framtíðar.
Bæjarráð þakkar góða yfirferð á samningsdrögum og tekur undir bókun velferðarnefndar. Sviðsstjóra velferðarsviðs er falið að ganga frá samningnum.
9.
Krafa um endurgreiðslu gatnagerðagjalda Hagaleira 11
Fyrirmæli innviðaráðuneytisins skv. 3. tölul. 2. mgr. 112. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 lögð fram. Lagt er fyrir bæjarráð að fella úr gildi ákvörðun sína frá 6. janúar 2021 um að hafna beiðni málshefjanda um niðurfellingu gatnagerðargjalda vegna Hagaleiru 11 á Höfn og taka beiðni málshefjanda til lögmætrar meðferðar. Ráðuneytið fer fram á að vera upplýst um lögmæta niðurstöðu sveitarfélagsins í málinu eigi síðar en 8. apríl n.k. Málið snýst um beiðni um niðurfellingu gatnagerðargjalda á lóð sem úthlutað var eftir að reglur um tímabundna niðurfellingu gatnagerðargjalda lóða hjá sveitarfélaginu féllu úr gildi. Sveitarfélagið hefur litið svo á að fulls jafnræðis hafi verið gætt við úthlutanir lóða. Sjónarmið sveitarfélagsins hafa ekki fengið efnislega umfjöllun hjá ráðuneytinu þrátt fyrir ítrekaða beiðni sveitarfélagsins þar að lútandi.
Í ljósi málsmeðferðar ráðuneytisins felur bæjarráð sviðsstjóra stjórnsýslusviðs að fá lögfræðiálit á málinu áður en ákvörðun um framhaldið verður tekin.
Bæjarstjóra er falið að kynna málsaðilum sjónarmið sveitarfélagsins í málinu og hvernig framhaldi þess verður háttað.
Bæjarstjóra er falið að kynna málsaðilum sjónarmið sveitarfélagsins í málinu og hvernig framhaldi þess verður háttað.
10.
Áskorun til sveitarfélaga vegna kjarasamninga 2024
Skorað er á sveitarstjórnir að taka þátt og sýna samstillt átak til að liðka fyrir gerð langtímakjarasamninga til að kveða niður vexti og verðbólgu.
Bæjarráð óskar eftir samantekt frá fjármálastjóra á breytingum á gjaldskrám sem áttu sér stað um áramót. Í framhaldinu verða þær endurskoðaðar með tilliti til framkominnar áskorunar.