Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1125. fundur
16. apríl 2024 kl. 10:00 - 11:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir formaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir varamaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Jóna Benný Kristjánsdóttir Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði:
Jóna Benný Kristjánsdóttir Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Velferðarnefnd - 32
Málsnúmer 2404005F
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
2.
Umsókn um lóð - Álaugarvegur 13 og 15
Málsnúmer 202106060
Lóðarhöfum var gefinn tveggja vikna frestur til að skila inn tímaáætlun vegna framkvæmda. Bréf var sent á lóðarhafa að loknum bæjarráðsfundi 26. mars sl.Lóðarhafar óska eftir fresti til að leggja fram verk- og tímaáætlun til 3. maí nk.
Bæjarráð samþykkir frest til að leggja fram verk- og tímaáætlun til 3. maí næstkomandi. Berist áætlun ekki fyrir þann tíma fellur úthlutun lóðar úr gildi án frekari fyrirvara.

Samþykkt samhljóða.
3.
Umsókn um lóð - Borgartún 3 og 5
Málsnúmer 202108114
Lóðarhöfum var gefinn tveggja vikna lokafrestur til að skila inn tímaáætlun vegna framkvæmda. Bréf var sent á lóðarhafa að loknum bæjarráðsfundi 26. mars sl.Drög að tímaáætlun hafa borist frá lóðarhafa.
Bæjarráð getur ekki fallist á framlagða verk- og tímaáætlun um áætluð verklok haustið 2025 með hliðsjón af þeim tíma sem þegar hefur liðið frá úthlutun lóðarinnar en henni var úthlutað í september 2021. Í ljósi þess að mikill skortur er á byggingarlóðum í Öræfum óskar bæjarráð eftir nýrri verk- tímaáætlun þar sem verklok eru fyrir árslok 2024. Verk- og tímaáætlun skal hafa borist fyrir 26. apríl 2024. Að öðrum kosti fellur úthlutun lóðarinnar úr gildi án frekari fyrirvara.

Samþykkt samhljóða.
4.
Útboð á skólaakstri 2024-2028
Málsnúmer 202312026
Fulltrúi Ríkiskaupa, bæjarstjóri og sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs hittu tilboðsgjafa í leið 1 á teamsfundi þar sem farið var yfir forsendur tilboðs.
Bæjarráð hafnar tilboði 785 FHM ehf. í útboði fyrir skólaakstur á leið 1 en felur bæjarstjóra og sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs að taka upp samningaviðræður við tilboðsgjafa um skólaakstur á leið 1.

Samþykkt samhljóða.
5.
Kjörstaðir í Sveitarfélaginu Hornafirði
Málsnúmer 202206063
Umfjöllun um kjörstaði hefur farið fram í íbúaráðum Suðursveitar og Mýra annars vegar og Nesja og Lóns hinsvegar. Eftirfarandi eru bókanir íbúaráðanna um málið: Meirihluti íbúaráðs Nesja og Lóns leggur til að kjörstöðum verði ekki fækkað í sveitarfélaginu. Íbúaráð Suðursveitar og Mýra hvetur bæjarráð til að fækka ekki kjörstöðum í sveitarfélaginu. Kjörstaðir í félagsheimilum eru hluti af menningu og hafa samfélagsleg áhrif. Einnig telur íbúaráð að kjörsókn muni vera minni ef kjörstöðum er lokað, oft eru kosningar á þeim tíma sem mikið er að gera í dreifbýli.
Bæjarráð þakkar íbúaráðunum fyrir umfjöllun um málið. Að fengnu samráði við íbúaráðin hefur bæjarráð ákveðið að kjörstaðir í sveitarfélaginu verði áfram fimm í komandi forsetakosningum. Að þeim kosningum loknum verður fjöldi kjörstaða í sveitarfélaginu tekinn aftur til umfjöllunar og endurskoðunar.

Samþykkt samhljóða.