Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1126. fundur
23. apríl 2024 kl. 10:00 - 14:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir formaður
Gauti Árnason varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Jóna Benný Kristjánsdóttir
Bryndís Bjarnarson
Fundargerð ritaði:
Jóna Benný Kristjánsdóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Íbúaráð - Suðursveit og Mýrar - 4
Málsnúmer 2404010F
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
2.
Íbúaráð - Nes og Lón - 4
Málsnúmer 2404008F
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
3.
Fræðslu- og frístundanefnd - 111
Málsnúmer 2404009F
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
5.
Ársreikningur Sveitarfélagsins Hornafjarðar 2023
Málsnúmer 202404081
Bæjarstjórn var boðuð á fundinn og mætti undir þessum dagskrárlið þar sem Sigurjón Örn Arnarson, löggiltur endurskoðandi frá KPMG fór yfir ársreikning sveitarfélagsins.
Bæjarráð þakkar vandaða yfirferð og samþykkir samhljóða árseikning sveitarfélagsins fyrir árið 2023.

Bæjarráð vísar ársreikningi sveitarfélagsins til afgreiðslu og fyrri umræðu bæjarstjórnar.
6.
Urðunarstaður Grænt bókhald 2023
Málsnúmer 202404066
Verkefnastjóri umhverfismála og KPMG hafa tekið saman grænt bókhald fyrir urðunarstaðinn á Mel í landi Syðri-Fjarðar í Lóni. Samtals voru urðuð 1.874 tonn af úrgangi á urðunarstaðnum árið 2023 og þar af voru 1.422 tonn, eða 76% úrgangs, grafin. Urðaður úrgangur dróst saman um 133 tonn frá árinu 2022 og 167 tonn frá árinu 2021. Af heildarúrgangi á urðunarstaðnum voru 351 tonn, sem samsvarar um 19%, safnað frá heimilum.
Bæjarráð samþykkir grænt bókhald fyrir urðunarstaðinn í Lóni. Bæjarfulltrúar munu skrifa undir rafrænt á bæjarstjórnarfundi á morgun, miðvikudaginn 24. apríl.
7.
Ný urðunarrein fyrir urðunarstaðinn í Lóni
Málsnúmer 202404065
Verkefnastjóri umhverfismála kynnti áform um nýja urðunarrein fyrir urðunarstaðinn í Lóni og óskaði eftir samþykki til að hefja framkvæmdir.
Bæjarráð vísar málinu til fjármálastjóra til mats á fjárhagslegum áhrifum.

Samþykkt samhljóða.
8.
Beiðni um leyfi til að setja upp Ledskjá á Jökulfellsvöll
Málsnúmer 202404068
Knattspyrnudeild Sindra óskar eftir leyfi til að setja ledskjá, sem verður vallarklukka fyrir knattspyrnuvöllinn, á austurvegg Hafnarskóla. Skjárinn er 5,5m x 3m og mun lýsa allan sólarhringinn og auglýsingar birtast þegar ekki eru leikir á vellinum.
Bæjarráð er jákvætt fyrir erindinu en felur umsjónar-, eftirlits- og ábyrgðarmanni fasteigna að óska eftir frekari upplýsingum frá Knattspyrnudeild Sindra varðandi framkvæmd, viðhald og eftirlit.
9.
Mannréttindastefna
Málsnúmer 202301007
Mannréttindastefnan hefur verið tekin fyrir í nefndum sveitarfélagsins og er nú vísað til bæjarráðs til samþykkis.
Bæjarráð samþykkir mannréttindastefnuna samhljóða og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
10.
Örútboð fyrir rafmagnskaup
Málsnúmer 202403063
Upplýsingar um tilboð sem bárust í örútboð á raforku lagðar fram. Tilboði frá Orkusölunni, sem átti lægsta tilboðið, 10,00 kr/kWst m. vsk, var tekið í samræmi við skilmála örútboðsins. Önnur tilboð bárust frá Straumlind, 10,42 kr/kWst m. vsk og Orku náttúrunnar, 11,00 kr/kWst m. vsk.
Lagt fram til kynningar.
11.
Fráveita og bílastæði Kátakot
Málsnúmer 202308003
Upplýsingar úr verðfyrirspurn um plan og lagnir við Kátakot lagðar fram. Eitt tilboð barst, frá Gröfuþjónustu Olgeirs ehf.
Bæjarráð samþykkir tilboð frá Gröfuþjónustu Olgeirs ehf. sem barst í plan og lagnir við Kátakot að fjárhæð 18.386.737 kr., eða sem nemur 97% af kostnaðaráætlun.

Samþykkt samhljóða.
12.
Girðingar við Þjóðveg 1
Málsnúmer 202404052
Íbúaráð Suðursveitar og Mýra hvetur sveitarfélagið til að fara í samtal við Vegagerðina um girðingar við Þjóðveg 1. Einnig er lögð áhersla á að eins girðing sé lögð í öllu sveitarfélaginu.
Bæjarráð óskar eftir að atvinnu- og ferðamálafulltrúi taki saman minnisblað um ábyrgð, skuldbindingar og skyldu sveitarfélaga, bænda og Vegagerðarinnar í tengslum við girðingar meðfram þjóðvegum og lausagöngu búfjár.
13.
Söfnun á heyrúlluplasti
Málsnúmer 202404042
Íbúaráð Nesja og Lóns leggur til að söfnun á heyrúlluplasti verði í janúar/febrúar og í júní í stað þess að safna á haustin þar sem ekki er farið að gefa búfé á þeim tíma.
Bæjarráð þakkar ábendinguna. Í nýju sorphirðudagatali er gert ráð fyrir að heyrúlluplasti verði safnað í dreifbýli um miðjan nóvember, miðjan febrúar og í byrjun júlí sem bæjarráð vonar að þjóni ólíkum þörfum bænda.

14.
Göngu- og hjólastígur í Nes
Málsnúmer 202404055
Íbúaráð Nesja og Lóns leggur áherslu á að farið verði í vinnu við gerð göngu- og hjólastígs á milli Hafnar og Nesjahverfis.
Áætlað er að leggja göngu- og hjólastíg á milli Hafnar og Nesjahverfis. Umhverfis- og skipulagsstjóra er falið að skoða möguleika á styrkveitingum til verkefnisins.
15.
Refaveiðar í sveitarfélaginu
Málsnúmer 202404056
Mikil aukning á refum var rædd í íbúaráði Nesja og Lóns. Umhverfis- og skipulagsstjóri mætti á fund íbúaráðs og ítrekaði að mikilvægt væri að tilkynna særðan búfénað eftir dýrbíta til sveitarfélagsins svo hægt væri að bregðast við.
Bæjarráð þakkar ábendinguna og hvetur íbúa til að tilkynna særðan búfénað til sveitarfélagsins svo hægt sé að bregðast við. Samkvæmt reglum um refa- og minnkaveiði skulu bændur eða aðrir á þeirra vegum sem veiða refi, sem stafar hætta af, tilkynna slíka veiði til sveitarfélagsins svo fljótt sem auðið er. Tilkynningar skulu berast símleiðis eða í tölvupósti á afgreiðslu ráðhússins.
16.
Hverfisráð - Íbúaráð
Málsnúmer 202211120
Íbúaráð Suðursveitar og Mýra og íbúaráð Nesja og Lóns leggja til við bæjarráð að íbúaráðin fái að starfa áfram í ljósi þess að ráðin hafa einungis starfað einn vetur og hafa hug á að halda áfram með þau málefni sem þau hafa unnið að. Í erindisbréfi íbúaráða kemur fram að fyrstu íbúaráðin verði skipuð af bæjarráði til eins árs.
Bæjarráð lýsir yfir ánægju með það góða starf og mikilvæga samtal sem hefur átt sér stað við íbúaráðin og þakkar fulltrúum fyrir þeirra vinnu. Um leið óskar bæjarráð eftir að núverandi fulltrúar sitji annað ár eða út kjörtímabilið sé það vilji fulltrúanna. Stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúa er falið að bera það undir íbúaráðin og breyta erindisbréfinu í kjölfarið.
17.
Umsögn um tillögu til þingsályktunar um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu vindorku á Íslandi
Málsnúmer 202404083
Lagt fram til kynningar.
18.
Umsögn um frumvarp til laga um verndar- og orkunýtingaráætlun (virkjunarkostir í vindorku)
Málsnúmer 202404082
Lagt fram til kynningar.
19.
Umsögn Samtaka orkusveitarfélaga um áform um breytingar á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun
Málsnúmer 202404067
Stjórn samtaka orkusveitarfélaga hefur sent inn umsögn í samráðsgátt stjórnvalda vegna máls nr. S-79/2024 um áform um breytingar á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun.
Lagt fram til kynningar.
20.
Málþing um öryggisinnviði
Málsnúmer 202404080
Sveitarfélögin í Skaftafellssýslum héldu sameiginleg málþing um öryggisinnviði 17. apríl sl. Minnisblað bæjarstjóra er lagt fram til kynningar.
Bæjarráð þakkar þeim sem skipulögðu málþingið ásamt hagsmunaaðilum fyrir góða mætingu á málþingið og mjög innihaldsríkar umræður. Næstu skref eru að stofna samráðshóp hagsmunaaðila í Skaftafellssýslum og mun sá hópur beita sér fyrir tafarlausum aðgerðum af hálfu stjórnvalda þegar kemur að öryggi íbúa og ferðamanna í sveitarfélögunum.

Bæjarráð er einhuga um að fela bæjarstjóra að keyra málið áfram í samráði við atvinnu- og ferðamálafulltrúa.