Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1127. fundur
30. apríl 2024 kl. 10:00 - 12:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir formaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir varamaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Jóna Benný Kristjánsdóttir Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði:
Jóna Benný Kristjánsdóttir Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Humarhátíð 2024
Málsnúmer 202404087
Humarhátíðin verður haldin hátíðleg 28.-30. júní í ár og unnið er að skipulagningu hátíðarinnar.Þeir sem áhuga hafa á að taka þátt geta haft samband við hátíðarstjórn með tölvupósti á netfangið: humarhatidarnefnd@gmail.comAtvinnu- og menningarmálanefnd vísar drögum að samningi við humarhátíðarstjórn til bæjarráðs til samþykkis.
Bæjarráð samþykkir samninginn samhljóða með áorðnum breytingum.
2.
Samráðsfundur um landsbyggðarstrætó
Málsnúmer 202404109
Upplýsingar um fyrirhugaðan fund Vegagerðarinnar og sveitarfélagsins um endurskoðun á leiðarkerfi landsbyggðarstrætó lagðar fram.
Bæjarráð fagnar því að Vegagerðin boði til þessa fundar og leggur áherslu á að hægt verði að nýta almenningssamgöngur á milli staða innan sveitarfélagsins en ekki aðeins á milli landshluta.
Umhverfis- og skipulagsstjóri og sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs mæta á fundinn.
3.
IceNAP - Umsókn um styrk í LIFE áætlun ESB
Málsnúmer 202404105
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið leiðir nú styrkumsókn til Evrópusambandsins um innleiðingu fyrstu aðlögunaráætlunar Íslands vegna loftslagsbreytinga. Kveðið er á um slíka áætlun í lögum um loftslagsmál og er hún þegar í mótun innan ráðuneytisins. Stefnt er að innleiðingu árin 2025 til 2029. Þátttaka felur í sér tækifæri til að móta og framkvæma aðgerðir sem falla undir aðlögun að loftslagsbreytingum og hefðu heimillisfesti undir aðlögunaráætlun. Styrkurinn byggir á raunkostnaði og er 60% af heildarkostnaði við verkefnið. Mótframlag er því 40% en getur verið í formi vinnuframlags.
Bæjarráð felur umhverfis- og skipulagsstjóra að leggja fram greiningu á þeim verkefnum sem sveitarfélagið gæti tekið þátt í.

Samþykkt samhljóða.
4.
Umsókn um lóð Ósland lóð K (Sandeyri 10)
Málsnúmer 202002027
Góð framkvæmd ehf. óskar eftir framlengingu á lóðarúthlutun og upphafi framkvæmda á lóðum J og K í Útbæ, þar sem umhverfis- og skipualgsnefnd ákvað þann 8. apríl sl. að leggja til við bæjarstjórn að auglýsa breytingu á deiliskipulagi á lóðunum og gera má ráð fyrir að samþykkt deiliskipulag liggi ekki fyrir fyrr en í fyrsta lagi í júní.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að veita Góðri framkvæmd ehf. frest til 23. júlí 2024 til að leggja fram byggingarleyfisumsókn.
5.
Forsetakosningar 2024
Málsnúmer 202404111
Velja þarf þrjá aðila á hvern kjörstað í sveitarfélaginu auk jafnmargra varamanna.
Bæjarráð felur yfirkjörstjórn sveitarfélagsins að manna kjörstaði.

Samþykkt samhljóða.
6.
Skipurit 2024
Málsnúmer 202401128
Óskað var eftir að upplýst yrði um ráðningarferli fjármálastjóra sveitarfélagsins.
Ásgerður Kristín Gylfadóttir B-lista leggur fram eftirfarandi bókun:

"Samkvæmt 51.gr í Samþykkt um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Hornafjarðar um ráðningu í æðstu stjórnunarstöður, ræður bæjarstjórn lykilstjórnendur hjá sveitarfélaginu. Mikilvægt er að ráðning æðstu stjórnenda sé skýr og rekjanleg þannig að nafn þess sem ráðinn er komi fram í bókun bæjarstjórnar.
Í ljósi þess gerir undirrituð athugasemd við að ráðning lykilstjórnenda s.s. fjármálastjóra sem heyrir beint undir bæjarstjóra samkvæmt breytingu á skipuriti frá 17. okt sl, sé ekki tekin fyrir sem sérliður í bæjarstjórn eða a.m.k bókað með skýrum hætti með nafni viðkomandi undir þeim lið sem breytingin á við."

Eyrún Fríða Árnadóttir og Hjördís Edda Olgeirsdóttir vísa í meðfylgjandi minnisblað og ítreka að ráðningarferli fjármálastjóra sé í fullu samræmi við samþykktir sveitarfélagsins og sveitarstjórnarlög.
7.
Umsókn um lóð - Borgartún 3 og 5
Málsnúmer 202108114
Verk-og tímaáætlun frá lóðarhafa hefur borist.
Bæjarráð samþykkir samhljóða framlagða verk- og tímaáætlun.
8.
Sala á eignum sveitarfélagsins
Málsnúmer 201910048
Yfirlýsingar vegna kvaða tengdum félagslegum kaupleiguíbúðum eru á íbúðum að Sandbakkavegi 2 og 4.
Bæjarráð felur sviðsstjóra stjórnsýslusviðs að láta aflýsa yfirlýsingum um kvaðir, dags. 16.01.1992 og dags. 24.10.1991. af fasteignunum að Sandbakkavegi 2 og 4.

Samþykkt samhljóða.
9.
Aukaaðalfundur SASS 2024
Málsnúmer 202404112
Lagðar eru fram upplýsingar um aukaaðalfund SASS 2024 sem haldinn verður í Akóges salnum í Vestmannaeyjum föstudaginn 7. júní nk. Óskað er eftir að sveitarfélögin tilkynni þátttöku fulltrúa sinna með því að fylla út rafrænt skráningarform fyrir 30. maí nk.
Lagt fram.
10.
Úrskurður - Kæra vegna gatnagerðagjalda Hagaleiru 11
Málsnúmer 202202048
Samkvæmt 33.gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Hornafjarðar skulu mál sem eru endurupptekin af bæjarráði lögð fyrir bæjarstjórn til endanlegrar afgreiðslu. Á fundi bæjarráðs þann 9. apríl sl. hafnaði bæjarráð að nýju niðurfellingu gatnagerðargjalda lóðarinnar að Hagaleiru 11.
Bæjarráð vísar ákvörðun sinni frá 9. apríl sl. um að hafna niðurfellingu gatnagerðargjalda lóðarinnar að Hagaleiru 11 til bæjarstjórnar til endanlegrar afgreiðslu.
11.
Til umsagnar 930.mál - lagareldi
Málsnúmer 202404110
Atvinnuveganefnd Alþingis sendir til umsagnar 930. mál - Lagareldi. Frestur til að senda inn umsögn er til og með 8. maí nk.
Lagt fram.
12.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 78
Málsnúmer 2404016F
Lagt fram.
13.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 63
Málsnúmer 2404020F
Lagt fram.
14.
Fundargerðir Nýheima þekkingarseturs 2024
Málsnúmer 202401088
Lagt fram.
15.
Yfirtaka og uppbygging eigna - Félagslegt leiguhúsnæði
Málsnúmer 202309012
Uppfærð viljayfirlýsing um uppbyggingu á leiguíbúðum í Sveitarfélaginu Hornafirði lögð fram.
Bæjarráð samþykkir viljayfirlýsinguna og vísar henni til staðfestingar bæjarstjórnar.