Bæjarráð Hornafjarðar
1129. fundur
14. maí 2024
kl.
10:00
-
12:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir
formaður
Gauti Árnason
varaformaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
varamaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Stýrihópur um byggingu nýs íþróttahúss
Breyting á skipun í stýrihóp um byggingu nýs íþróttahúss.
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir víkur úr hópnum vegna anna. Í stað hennar tekur sæti Eyrún Fríða Árnadóttir. Einnig mun sviðsstjóri fræðslu og frístundasviðs taka við sem starfsmaður hópsins í stað umsjónar-, eftirlits- og ábyrgðamanni fasteigna sveitarfélagsins.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
2.
Íþróttahús - hönnun
Fundargerð fundar frá 8. maí sl. sem er fundur númer 8 hjá stýrihópnum.
Lagt fram til kynningar.
3.
Fræðslu- og frístundanefnd - 112
Lagt fram til kynningar.
4.
Málþing um öryggisinnviði og öryggisviðbragð í Öræfum og Suðursveit í sumar
Lögð fram minnisblöð um eftirfylgni við vel heppnaðan fund: - Öryggisinnviðir - Stofnun samráðshóps - 10.05.2024 - minnisblað bæjarstjóra - Minnisblað Atv. og Ferðam.fltr. vegna samráðshóps hagaðila um öryggisinnviði í Skaftafellssýslum - Öryggisinnviðir - Sumarviðbragð í Öræfum og Suðursveit minnisblað bæjarstjóra--------Stofnun samráðshóps um öryggisinnviði í Skaftafellssýslum Á málþingi um um öryggisinnviði sem sveitarfélögin í Skaftafellssýslum héldu 17. apríl sl., kom fram hugmynd um stofnun samráðshóps hagsmunaaðila um öryggisinnviði og viðbragð á svæðinu. Hugmyndin kom frá lögreglustjóranum á Suðurlandi en í máli hans kom fram að uppsveitir Árnessýslu hafi stofnað slíkan vettvang sem nefnist „Gullna hringborðið“. Hugmyndin að stofnun slíks vettvangs fékk góðar undirtektir fundarins. --------Sumarviðbragð HSU og Lögreglunnar á Suðurlandi í Öræfum og SuðursveitHeilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU)mun hafa reyndan sjúkraflutningsmann staðsettann í Öræfum á fullbúnum sjúkrabíl frá 1. júní til 31.ágúst 2024. Föst viðvera sjúkraflutningsmanns verður í Skaftafelli frá klukkan 10 til 12 alla daga og við Jökulsárlón frá klukkan 13 til 15 (tímasetningar gætu þó breyst eitthvað á tímabilinu). Fyrir utan þessa viðveru er viðkomandi til staðar allan sólarhringinn ef um útkall er að ræða. Síðastliðið sumar var þetta fyrirkomulag reynt í einn mánuð og það kom fram mikil ánægja með fyrirkomulagið, hjá viðbragðsaðilum, starfsfólki þjóðgarðsins sem og ferðamönnum og ferðaþjónustuaðilum.Framlag sveitarfélagsins til verkefnisins verður að leggja til húsnæði fyrir viðbragðsaðila. Þá mun Lögreglan á Suðurlandi mun einnig vera með tvo lögreglumenn á vakt frá klukkan 10 að morgni til klukkan 18 í Öræfum og Suðursveit í sumar. Gert er ráð fyrir að þetta fimm til sex daga vikunnar frá 1. júní til loka ágúst.
Bæjarráð þakkar góða yfirferð og felur bæjarstjóra ásamt atvinnu- og ferðamálafulltrúa að undirbúa stofnun samráðshóps með helstu hagsmunaðilum í samræmi við ályktun fundarins.
5.
Framtíð Miklagarðs
Ljóst er að Mikligarður þarfnast mikilla og kostnaðarsamra endurbóta.
Farið yfir stöðu mála varðandi húsnæði sveitarfélagsins, Miklagarð sem stendur við Krosseyjarveg við höfnina á Höfn. Bæjarstjóra falið að gera úttekt á Miklagarði í samráði við starfsfólk ásamt því að leita álits fasteignasala.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
6.
IceNAP - Umsókn um styrk í LIFE áætlun ESB
Okkur hefur borist boð um að taka þátt í LIFE umsókn á vegum URN til Evrópusambandsins vegna innleiðingar á loftslagsáætlun Íslands.
Lagt fram minnisblað sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs um þá þætti verkefnissins sem gætu mögulega fallið að stefnu og áherslum sveitarfélagsins.
Sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs falið vinna áfram að málinu.
Samþykkt samhljóða.
Sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs falið vinna áfram að málinu.
Samþykkt samhljóða.
7.
Áskorun til sveitarfélaga vegna kjarasamninga 2024
Lögð fram samantekt á breytingum á gjaldskrám vegna áskorunnar til sveitarfélaga að taka þátt og sýna samstillt átak til að liðka fyrir gerð langtímakjarasamninga til að kveða niður vexti og verðbólgu.
Sveitarfélagið Hornafjörður hækkaði ekki gjaldskrár um áramót er snerta barnafjölskyldur og fólk í viðkvæmri stöðu. Þær gjaldskrár eru uppfærðar í ágúst ár hvert og mun sveitarfélagið gæta þess að þegar hækkun á sér stað í ágúst nk. að þeim hækkunum verði stillt í hóf enda hafi sveitarfélagið lýst yfir vilja sínum að hækka ekki gjaldkskrár umfram 3,5%.
Varðandi gjaldfrjálsar skólamáltíðir mun endanleg útfærsla á því liggja fyrir þegar ríki hefur útfært sína kostnaðarþátttöku og farið verði í breytingar á gjaldskrám sveitarfélagsins seinna á árinu.
Samþykkt samhljóða.
Varðandi gjaldfrjálsar skólamáltíðir mun endanleg útfærsla á því liggja fyrir þegar ríki hefur útfært sína kostnaðarþátttöku og farið verði í breytingar á gjaldskrám sveitarfélagsins seinna á árinu.
Samþykkt samhljóða.
8.
Fundir bæjarstjórnar og bæjarráðs sumarið 2024
Farið yfir fundardagskrá bæjarstjórnar og bæjarráðs sumarið 2024.
Fundir bæjarráðs og bæjarstjórnar í sumar verða eftirfarandi:
--------
Bæjarráð fundar á tveggja vikna fresti frá og með 18. júní til og með 13. ágúst.
Bæjarstjórn mun funda 13. júní og koma saman aftur eftir sumarleyfi 15. ágúst.
Samþykkt samhljóða.
--------
Bæjarráð fundar á tveggja vikna fresti frá og með 18. júní til og með 13. ágúst.
Bæjarstjórn mun funda 13. júní og koma saman aftur eftir sumarleyfi 15. ágúst.
Samþykkt samhljóða.
9.
Hafnarbraut 26 til sölu
Nýlega var eignin Hafnarbraut 26. auglýst til sölu.
Upp kom hugmynd hjá bæjarráði að skoða kaup á Hafnarbraut 26. Húsið stendur við aðalgötu bæjarins og eigninni fylgir stór og mikil lóð.
Bæjarráð felur bæjarstjóra taka málið áfram og gera minnisblað fyrir næsta fund bæjarráðs.
Samþykkt samhljóða.
Bæjarráð felur bæjarstjóra taka málið áfram og gera minnisblað fyrir næsta fund bæjarráðs.
Samþykkt samhljóða.
10.
Hraðhleðslustöðvar - Fyrirspurn til skipulagsstjóra
Fyrirspurn frá Orkusölunni vegna hraðhleðslustöðva við verslunarmiðstöðina á Höfn. Lögð er fram tillaga um að tvö stæði verði hleðslustæði.
Bæjarráð samþykkir erindið og staðsetninguna og felur sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs að vinna lóðablað.
Málinu vísað til bæjarstjórar.
Samþykkt samhljóða.
Málinu vísað til bæjarstjórar.
Samþykkt samhljóða.