Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1130. fundur
21. maí 2024 kl. 13:00 - 15:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir formaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir varamaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Jóna Benný Kristjánsdóttir Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði:
Jóna Benný Kristjánsdóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Fræðslu- og frístundanefnd - 113
Málsnúmer 2405004F
Fundargerð fræðslu- og frístundanefndar frá 113. fundi nefndarinnar lögð fram til kynningar.
2.
Velferðarnefnd - 33
Málsnúmer 2405006F
Fundargerð velferðarnefndar frá 33. fundi nefndarinnar lögð fram til kynningar.
3.
Farsældarráð
Málsnúmer 202405053
Stjórn SASS kallar eftir afstöðu sveitarfélagsins til viðaukasamnings við sóknaráætlun landshluta um að landshlutasamtökin fái fjárhagslegan stuðning til að ráða verkefnastjóra í tvö ár til að útfæra starfsemi farsældarráða samkvæmt 5. gr. farsældarlaga. Þá er óskað eftir umboði sveitarfélagsins til að gera slíkan viðaukasamning undir merkjum sóknaráætlunar við mennta- og barnamálaráðuneytið.
Bæjarráð samþykkir að veita stjórn SASS umboð til að gera viðaukasamning undir merkjum sóknaráætlunar við Mennta- og barnamálaráðuneytið og vísar málinu til bæjarstjórnar til staðfestingar.

Samþykkt samhljóða.
4.
Málstefna
Málsnúmer 202309020
Aðgerðaráætlun við málstefnu sveitarfélagsins lögð fram. Óskað er eftir að bæjarráð samþykki aðgerðaráætlunina svo hægt sé að fylgja málstefnunni eftir með markvissum aðgerðum.
Bæjarráð samþykkir aðgerðaráætlunina og vísar kostnaðarmati á tillögum sem þar koma fram til fjármálastjóra til mats á fjárhagslegum áhrifum.

Samþykkt samhljóða.
5.
Starfsemi Kátakots
Málsnúmer 202403078
Kostnaðaráætlun vegna endurbóta á Kátakoti lögð fram.
Bæjarráð samþykkir að farið verði í endurbætur á aðstöðu Kátakots í samræmi við framlagða kostnaðaráætun og vísar málinu til fjármálastjóra til mats á fjárhagslegum áhrifum og gerðar viðauka IV við fjárhagsáætlun.

Samþykkt samhljóða.
6.
Útboð: SINDRABÆR - BREYTINGAR 2024
Málsnúmer 202403041
Mánudaginn 22. apríl 2024 voru opnuð tilboð í verkið "Sindrabær - breytingar 2024". Eitt tilboð barst í verkið frá Verkfærni ehf. Leiðréttingar hafa verið gerðar á tilboðinu af hálfu tilboðsgjafa og er endanleg tilboðsfjárhæð 351.848.091 kr. eða 24% yfir kostnaðaráætlun sem hljóðar upp 284.534.376 kr.
Bæjarráð samþykkir samhljóða tilboð Verkfærni ehf. í verkið Sindrabær - Breytingar 2024 og vísar umframkostnaði í tilboðinu til fjármálastjóra til mats á fjárhagslegum áhrifum en verkið er þegar í fjárhagsáætlun.

Umsjónar-, eftirlits- og ábyrgðarmanni fasteigna er falið að ganga til samninga við Verkfærni ehf. á grundvelli uppfærðs tilboðs og útboðsgagna.

Samþykkt samhljóða.
7.
Útboð: Hafnarbraut 27 Ráðhús - Útboð 1. áfangi
Málsnúmer 202405047
Umsjónar-, eftirlits- og ábyrgðarmaður fasteigna leggur fram gögn og kostnaðaráætlun varðandi breytingar á 1. hæð ráðhúss Hornafjarðar og óskar eftir heimild til að bjóða verkið út.
Bæjarráð felur fjármálastjóra að meta fjárhagsleg áhrif vegna fyrirhugaðra breytinga og gera viðauka við fjárhagsáætlun. Umsjónar-, eftirlits- og ábyrgðarmanni fasteigna er falið að auglýsa útboðið.

Samþykkt samhljóða.
8.
Vegur á milli Nesja og Hafnar - Hringtorg
Málsnúmer 202405059
Þann 15. maí sl. var fundur þar sem sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs ásamt bæjarstjóra hittu aðila frá Vegagerðinni til að ræða fyrirhugaða vegtenginu frá þéttbýlinu á Höfn við Nesjahverfi yfir nýjan veg um Hornafjarðarfljótin. Áhyggjur eru meðal íbúa og hagsmunaðila um fyrirhugaða vegtengingu um tvö T-gatnamót á veginum. Umferð um veginn er stöðugt að aukast og vegtengingar á þessum kafla eins og þær eru útfærðar í dag munu því miður valda meiri slysahættu en ef hringtorg væri um gatnamótin.
Umferð um gatnamótin á þjóðvegi eitt, frá Höfn til Nesja, mun stóraukast á næstu árum og öryggisins vegna er æskilegt að skoða með opnum huga að endurmeta fyrri hönnun sem gerði ráð fyrir tveimur T-gatnamótum og tengja svæðin saman með einu hringtorgi enda byggir fyrri hönnun á forsendum umferðarmagns sem hafa breyst mikið.

Bæjarstjóra og sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs falið að vinna að málinu áfram.

Samþykkt samhljóða.
9.
Útboð á flugi til Hornafjarðar
Málsnúmer 202405056
Útboð á áætlunarflugi til Hornafjarðar var auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu en um er að ræða sérleyfissamning fyrir árin 2024-2027. Þrjú tilboð bárust en þau voru öll töluvert yfir kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar. Af þeim sökum hafnaði Vegagerðin öllum tilboðum.
Niðurstöður í nýlegu útboði um flug til Hornafjarðar eru mikil vonbrigði. Sá mikli munur sem er á áætluðu fjármagni í verkefnið og þeirra fjárhæða sem bárust frá tilboðsgjöfum gefa til kynna að mögulega hafi fjármagn til verkefnisins verið vanáætlað af hálfu Vegagerðarinnar.

Ekki þarf að tíunda hversu mikilvægar almenningssamgöngur með innanlandsflugi eru til Hornafjarðar. Nýting á þeim flugsætum sem í boði hafa verið til Hornafjarðar er góð og þjónustan mikilvægur hlekkur í gangverki samfélagsins alls.

Bæjarráð vonast eftir árangursríkum samningaviðræðum við tilboðsgjafa en núgildandi samningur rennur út 30. ágúst 2024.
10.
Framtíð Miklagarðs
Málsnúmer 202404108
Minnisblað bæjarstjóra um framtíð Miklagarðs lagt fram. Árið 2021 var unnin kostnaðaráætlun fyrir miklar endurbætur á húsinu þar sem átti að laga það og umhverfi þess. Sú kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 320 milljónir króna. Skv. verðlagsreiknivél Hagstofunnar væri sá kostnaður um 400 m.kr á verðlagi dagsins í dag. Sveitarfélagið Hornafjörður er í miklum innviðafjárfestingum í dag á meðan Mikligarður stendur nánast tómur og húsinu er ekki sýndur sá sómi sem það á skilið. Sökum mikilla framkvæmda sem í gangi eru og eru framundan er erfitt að sjá að endurbygging og lagfæringar á Miklagarði rúmist í áætlunum næstu ára. Þess vegna er betra að finna húsinu nýtt hlutverk og nýja eigendur sem gætu kynnt sínar hugmyndir um uppbyggingu Miklagarðs fyrir bæjaryfirvöldum
Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.

Samþykkt samhljóða.
11.
Umsókn um lóð - Álaugarvegur 13 og 15
Málsnúmer 202106060
Drög að teikningum af húsi sem verið er að vinna fyrir Sláturfélag Austur-Skaftafellssýslu lagðar fram. Félagið er í fjármögnunarferli fyrir húsnæðið. Þann 16. apríl sl. óskaði bæjarráð eftir að lóðarhafar legðu fram tíma- og verkáætlun en að öðrum kosti félli úthlutun lóðarinnar úr gildi.
Með vísan í bókun bæjarráðs þann 16. apríl sl. fellur lóðarúthlutun að Álaugarvegi 13 - 15 til Sláturfélags Austur-Skaftafellssýslu úr gildi vegna skorts á fullnægjandi tíma- og verkáætlun.
12.
Umsögn um frumvarp til laga um lögræðislög
Málsnúmer 202405029
Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis sendi til umsagnar frumvarp til laga um lögræðislög. Frestur til að senda inn umsögn er til og með 27. maí nk.
Bæjarráð felur sviðsstjóra velferðarsviðs að skoða málið og senda inn umsögn eftir atvikum.

Samþykkt samhljóða.
13.
Umsögn um frumvarp til laga um tekjustofna sveitarfélaga (gjaldfrjálsar skólamáltíðir)
Málsnúmer 202405061
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendi til umsagnar mál nr. 1114, frumvarp til laga um tekjustofna sveitarfélaga (gjaldfrjálsar skólamáltíðir). Umsagnarfrestur er til 31. maí 2024.
Lagt fram til kynningar.
14.
Umsögn Samtaka orkusveitarfélaga um mál nr.899 og 900 á 154.löggjafarþingi
Málsnúmer 202405055
Umsagnir Samtaka orkusveitarfélaga um eftirfarandi mál lagðar fram til kynningar: - Tillögu til þingsályktunar um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu vindorku á Íslandi, 899. mál. - Frumvarp til laga um verndar- og orkunýtingaráætlun (virkjunarkostir í vindorku), 900. mál.
15.
Landskerfi bókasafna hf.
Málsnúmer 202405058
Ársreikningur og samþykktir Landskerfis bókasafna hf. lögð fram til kynningar.
16.
Ársreikningur sjávarútvegssveitarfélaga 2023
Málsnúmer 202405060
Drög að ársreikningi sjávarútvegssveitarfélaga fyrir árið 2023 lagður fram til kynningar.
17.
Fundargerðir - Samtök orkusveitarfélaga 2024
Málsnúmer 202401125
Fundargerð samtaka orkusveitarfélaga nr. 72 lögð fram til kynningar.
17.
Íþróttahús - hönnun
Málsnúmer 202402127
Fundargerð 9. fundar stýrihóps um nýtt íþróttahús lögð fram til kynningar.