Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1132. fundur
4. júní 2024 kl. 10:00 - 12:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir formaður
Gauti Árnason varaformaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson varamaður
Starfsmenn
Jóna Benný Kristjánsdóttir embættismaður
Arndís Lára Kolbrúnardóttir stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir Stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 265
Málsnúmer 2405014F
Fundargerð Hafnarstjórnar frá fundi nr.265 lögð fram til kynningar.
2.
Endurskoðun á samning við S.S.Sport ehf
Málsnúmer 202405100
Minnisblað sviðstjóra fræðslu-og frístundasviðs um samning sveitarfélagsins og S.S. Sport ehf. lagt fram.
Bæjarráð felur sviðsstjóra fræðslu-og frístundarsviðs að taka samtalið við rekstraraðila S.S. Sport um framlengingu á fyrri samningi. Samþykkt samhljóða.
3.
Beiðni um afnot salernisaðstöðu í Mánagarði
Málsnúmer 202404036
Vatnajökull Travel hefur óskað eftir því að fá afnot af salernisaðstöðunni í Mánagarði fyrir sína gesti í sumar þegar annað er ekki í gangi í húsinu. VT munu sinna þrifum, kaupa klósettpappír og slíkt og tryggja að umgengni verði til fyrirmyndar. Rætt hefur verið við hagaðila sem gera ekki athugasemdir við fyrirkomulagið.
Bæjarráð felur staðgengli bæjarstjóra að gera drög að samning við Vatnajökul Travel. Samþykkt samhljóða.
4.
Upplýsingaskilti með götukorti
Málsnúmer 202405119
Kiwanisklúbburinn Ós hefur rekið upplýsinga- og auglýsingaskilti til fjáröflunar í um 30 ár og eru að vinna að endurnýjun og uppsetningu á skiltunum. Óskað er eftir að sveitarfélagið leggi til hönnunar á korti fyrir skiltin í skiptum fyrir merkingar stofnana. Tekjur af framtakinu eru notaðar til styrktar börnum og ungmennum í samfélaginu.
Bæjarráð felur atvinnu- og ferðamálafulltrúa að vinna áfram að málinu og kanna með staðsetningu skilta við nýjan veg og á tjaldstæði Hafnar. Samþykkt samhljóða.
5.
Fjármagn vegna viðhalds lóða
Málsnúmer 202405120
Beiðni umhverfis- og skipulagsstjóra um fjármagn til viðhalds lóða.
Umhverfis-og skipulagsstjóra falið að taka saman verk- og kostnaðaráætlun. Samþykkt samhljóða.
6.
Beiðni um framlengingu á frestum vegna lóðaúthlutunar Sandeyri 2-7
Málsnúmer 202405112
Beiðni um að lóðaúthlutun að Sandeyri 2-7 verði framlengd.
Bæjarráð ítrekar að samkvæmt reglum sveitarfélagsins er tímaáætlun framkvæmda frá lóðarhafa forsenda þess að beiðni um frest sé tekin til ákvörðunar bæjarráðs. Bæjarráð beinir því til lóðarhafa að senda inn tímaáætlun áður en fresturinn rennur út þann 06.06.2024, svo hægt sé að taka afstöðu á næsta fundi bæjarráðs til frekari framlengingar á fresti, annars verður lóðin afturkölluð án frekari aðvarana. Samþykkt samhljóða.
7.
Hafnarbraut 26
Málsnúmer 202405027
Minnisblað bæjarstjóra varðandi Hafnarbraut 26 lagt fram.
Sviðstjóra mannvirkjasviðs falið að vinna áfram að málinu. Samþykkt samhljóða.
8.
Starfsemi Fiskistofu í Hornafirði
Málsnúmer 202405121
Minnisblað bæjarstjóra varðandi starfsemi Fiskistofu í Hornafirði lagt fram til upplýsinga.
Fiskistofa hefur sagt upp leigusamningi á skrifstofuhúsnæði sínu á Höfn, en það mun ekki hafa nein áhrif á starfsemi Fiskistofu á svæðinu í núverandi mynd. Bæjarráð fagnar því að Fiskistofa vilji auka vægi starfa á landsbyggðinni með því að auka störf án staðsetningar.
9.
Umsókn í Framkvæmdasjóð aldraðra
Málsnúmer 202402135
Sveitarfélagið Hornafjörður fékk 90.929.660 kr. framlag til uppsetningar á framleiðslueldhúsi og fjölnotasal í nýja hjúkrunarheimilinu úr Framkvæmdasjóði aldraðra.
Bæjarráð fagnar úthlutuninni og munu fjármunir koma að góðum notum í nýju hjúkrunarheimili. Bæjarstjóra falið að fylgja eftir samskiptum við ráðuneyti vegna úthlutunar. Samþykkt samhljóða.
10.
Viðaukar við fjárhagsáætlun 2024
Málsnúmer 202402017
Fjármálastjóri gerði grein fyrir viðauka IV við fjárhagsáætlun 2024 og fjárhagslegum áhrifum hans ásamt tillögu um hvernig viðaukanum verði mætt. Meðfylgjandi yfirlit sýna áhrif viðaukans á upphaflega samþykkta áætlun ársins. Viðbótarfjárheimildum verður mætt með hækkun á lántöku um 20 milljónir króna. Um er að ræða ósk um aukafjárveitingu vegna endurbóta á Kátakoti og vegna breytinga á 1. hæð ráðhússins.
Bæjarráð samþykkir viðauka IV við fjárhagsáætlun samhljóða og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
11.
Umsögn til þingsályktunar um ferðamálastefnu og aðgerðaáætlun
Málsnúmer 202405087
Atvinnu- og ferðamálafulltrúi hefur unnið minnisblað um umsögn vegna þingsályktunartillögunnar.
Bæjarráð felur atvinnu-og ferðamálafulltrúa að senda inn umsögnina fyrir hönd sveitarfélagsins. Samþykkt samhljóða.
12.
Íþróttahús - hönnun
Málsnúmer 202402127
Fundargerðir 10. og 11. fundar stýrihóps um nýtt íþróttahús ásamt gögnum lögð fram til kynningar.