Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1140. fundur
27. ágúst 2024 kl. 10:00 - 12:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir formaður
Gauti Árnason varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Arndís Lára Kolbrúnardóttir stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir Stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Fræðslu- og frístundanefnd - 115
Málsnúmer 2408002F
Fundargerð Fræðslu- og frístundanefndar - 115 lögð fram til kynningar.
2.
Námskeið fyrir forstöðumenn og stjórnendur
Málsnúmer 202408048
Sviðsstjóri fræðslu- og frístundarsviðs óskar eftir aukafjárveitingu til þess að halda námskeið fyrir forstöðumenn og stjórnendur með mannaforráð. Öflugir stjórnendur með skýra framtíðarsýn eru gríðarlega mikilvægur styrkur fyrir sveitarfélagið og mikilvægt að hlúa vel að þeim og er því lagt til að bjóða upp á stjórnenda/leiðtoga námskeið í vetur. Námskeiðið sem stungið er upp á heitir Leiðtogaþjálfun Kvan.
Bæjarráð vísar málinu til mats á fjárhagslegum áhrifum og gerðar viðauka.
Samþykkt samhljóða.
3.
Endurskoðun á samning við S.S.Sport ehf
Málsnúmer 202405100
Sviðstjóri fræðslu- og frístundasviðs gerir grein fyrir samning og viðauka við samning sem undirritaður var við S.S. Sport.
Samningur lagður fram til kynningar.
4.
Íþróttahús - hönnun
Málsnúmer 202402127
Fundargerð stýrihóps um nýtt íþróttahús númer 16 lögð fram til kynningar.
5.
Gjaldskrár fræðslu- og frístundasviðs 2024-2025
Málsnúmer 202406099
Gjaldskrár sem tilheyra skólum á fræðslu- og frístundasviði hækka frá og með 1. ágúst ár hvert.Hækkun vísitölu framfærslukostnaðar og vísitölu neysluverðs var 5,9% síðastliðið ár en í samræmi við ákvörðun bæjarráðs frá 14. maí sl. um að Sveitarfélagið Hornafjörður stilli hækkunum á gjaldskrám sem snúa að barnafjölskyldum og fólki í viðkvæmri stöðu í hóf leggur fræðslu- og frístundanefnd til að gjaldskrár skólanna verði hækkaðar um 3,5% frá og með 1. ágúst. Gjaldskrá lögð fram til staðfestingar
Bæjarráð staðfestir hækkun á gjaldskrá um 3,5%.
Samþykkt samhljóða.
6.
Reglur um námsvist utan lögheimilissveitarfélags
Málsnúmer 202408049
Reglur um námsvist utan lögheimilissveitarfélags hafa verið endurskoðaðar. Fræðslu- og frístundarnefnd gerði ekki athugasemd við reglurnar og samþykkti þær óbreyttar. Vísað til bæjarráðs til samþykkis.
Bæjarráð samþykkir reglurnar óbreyttar.
Samþykkt samhljóða.
7.
Samstarfsbeiðni frá Verndarvæng fta.
Málsnúmer 202408024
Félagið Verndarvængur fta. óskar eftir stuðning við félagið í formi stofnfés að upphæð 5.000.000 kr sem nýtt verður til að mæta fjárútlátum sem liggja fyrir fyrst um sinn.Frekari fjáraflanir, frá öðrum aðilum myndu þá mæta þeim málum sem gætu komið upp síðar á árinu, sem og að tryggja öruggan rekstrargrundvöll sjóðsins til frambúðar.
Málinu frestað til næsta fundar.
8.
Úrskurður - Kæra vegna gatnagerðagjalda Hagaleiru 11
Málsnúmer 202202048
Lögð fram til kynningar gögn vegna kæru á ákvörðun bæjarráðs um að hafna niðurfellingu gatnagerðargjalda að Hagaleiru 11.
9.
Færsla Hringvegar í Mýrdal
Málsnúmer 202401130
Meðfylgjandi er bréf frá Vinum Vegfarandans, sem er félag fólks sem talar fyrir greiðum og öruggum samgöngum í Mýrdal.Þetta bréf var sent til umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis. Afrit af bréfinu er sent á þingmenn Suðurlands, forstjóra Vegagerðarinnar og sveitarstjóra Mýrdalshrepps, Skaftárhrepps og Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Bæjarráð ítrekar afstöðu sem birtist í bókun bæjarstjórnar frá 08.02.2024. "Fyrst og fremst eigi að byggja ákvörðun um veglínu á umferðaröryggi. Á þeim forsendum leggur Bæjarráð áherslu á að áfram sé unnið að láglendisvegi með göngum í gegnum Reynisfjall. Mun það auka umferðaröryggi til muna fyrir vegfarendur um svæðið og tryggja betur samgöngur að vetri sem eru Hornfirðingum mjög mikilvægar".
Samþykkt samhljóða.
10.
Humarhátíð 2024
Málsnúmer 202404087
Humarhátíðarnefnd óskar eftir frest á skilum lokaskýrslu vegna Humarhátíðar um eina viku.
Bæjarráð samþykkir að veita Humarhátíðarnefnd frest um eina viku.
Samþykkt samhljóða.
11.
Ráðningarsamningur bæjarstjóra 2022-2206
Málsnúmer 202408083
Í 5. grein ráðningarsamnings sveitarfélagsins við bæjarstjóra segir, „Bæjarsjóður greiðir 50% af húsaleigu bæjarstjóra í 24 mánuði frá því hann hefur störf.“ Óskar bæjarstjóri eftir því að framlengja þetta ákvæði út ráðningarsamning, til 2026. Gert er ráð fyrir þessum greiðslum í áætlunum ársins og tekið verður tillit til þessa í áætlun næsta ár.
Sigurjón Andrésson vék af fundi undir þessum lið.
Bæjarráð samþykkir að halda áfram að greiða 50% af húsaleigu bæjarstjóra út kjörtímabilið.
Samþykkt með tveimur atkvæðum. Ásgerður Kristín Gylfadóttir sat hjá.