Bæjarráð Hornafjarðar
1142. fundur
10. september 2024
kl.
10:00
-
11:45
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir
formaður
Gauti Árnason
varaformaður
Björgvin Óskar Sigurjónsson
varamaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
Stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 84
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar númer 84 lögð fram til kynningar.
2.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 264
Fundargerð Hafnarstjórnar Hornafjarðar númer 264 lögð fram til kynningar.
3.
Umf.Sindri - Samningur 2024
Samningur Sveitarfélagsins Hornafjarðar við ungmennafélag Sindra rennur út um áramót og stendur til að nýr samningur verði undirritaður á 90 ára afmæli félagsins 1. desember næstkomandi. Bæjarráð óskaði eftir samtali við aðalstjórn Sindra um fyrirhugaða endurnýjun á samning. Svör aðalstjórnar við spurningum frá bæjarráði lögð fram.
Bæjarráð þakkar aðalstjórn kærlega fyrir gott samtal um nýjan samning.
4.
Forvarnarstyrkur frá afkomendum Rafns Eiríkssonar og Ástu Karsldóttur
Afkomendur Rafns Eiríkssonar og Ástu Karlsdóttur hafa ákveðið að gefa sveitarfélaginu styrk til forvarnarstarfs að upphæð 250.000 krónur í minningu foreldra sinna.
Bæjarráð þakkar kærlega fyrir höfðinglega gjöf. Sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs falið að fylgja eftir hvaða verkefni styrkurinn nýtist í og verður það kynnt þegar þar að kemur.
5.
Íþróttahús - hönnun
Fundargerð stýrihóps um nýtt íþróttahús númer 18 lögð fram til kynningar
6.
Humarhátíð 2024
Humarhátíð 2024 lukkaðist vel þó veður hafi sett strik í reikninginn og kvölddagskrá föstudagsins færð inn í íþróttahúsið. Blíðviðri lét þó sjá sig á laugardegi svo allt gekk vel þar eftir. Þrátt fyrir veður lukkaðist hátíðin vel og hátíðargestir ánægðir.
Bæjarráð þakkar humarhátíðarnefnd fyrir vel heppnaða Humarhátíð og vonar að hátíðin verði jafn vel heppnuð á næsta ári. Sviðsstjóra stjórnsýslusviðs falið að ræða við humarhátíðarnefnd 2024 um áframhaldandi umsjón og undirbúning að hátíðinni árið 2025.
7.
Kaup á húsnæði - Hafnarbraut 58
Lóðarleigusamningur að Hafnarbraut 58 er útrunninn. Á lóðinni stendur gamalt trésmíðaverkstæði og er lóðin innan ÍB5. Eigendur hafa óskað eftir samtali við sveitarfélagið um eignina. Óskað er eftir heimild til að fá matsmenn til að meta eignina og hefja í kjölfarið samtal við seljendur um að sveitarfélagið leysi lóðina til sín og greiði sannvirði hússins í samræmi við 8. gr. lóðarleigusamningsins.Minnisblað sviðstjóra stjórnsýslusviðs lagt fram.
Bæjarráð veitir heimild til þess að fá matsmann til þess að meta eignina. Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
8.
Framkvæmd - Leikvöllur Leirusvæðis
Kostnaðaráætlun og teikningar af frágangi leikvallar og opin svæðis á Leirunni lagt fram.
Bæjarráð lýsir yfir ánægju með hönnun leikvallarins. Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu.
9.
Umsögn um breytingu á gildandi rekstrarleyfi - Gististaður í flokki II B stærra gistiheimili - Viking Kaffi Guesthouse - 2180259
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn um breytingu á gildandi rekstrarleyfi til reksturs gististaða í flokki II fyrir gistingu á Viking Kaffi Guesthouse.
Bæjarráð veitir samhljóða jákvæða umsögn.