Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1150. fundur
5. nóvember 2024 kl. 10:00 - 11:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir varamaður
Gauti Árnason varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Jóna Benný Kristjánsdóttir Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Arndís Lára Kolbrúnardóttir stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir Stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 269
Málsnúmer 2410012F
Fundargerð hafnarstjórnar Hornafjarðar númer 269 lögð fram til kynningar.
Bæjarráð tekur undir bókun Hafnarstjórnar og lýsir yfir þungum áhyggjum af áhrifum mögulegs loðnubrests enda vinnsla uppsjávarafla ein af meginstoðum atvinnulífsins í Hornafirði.

Ef ekki verður loðnuvertíð á næsta ári verður það annað árið í röð sem tekjutap af þeim völdum dynur yfir sveitarfélagið og samfélagið hér.

Haustmælingar á loðnu gáfu þó vísbendingar um að hægt verði að gefa út upphafskvóta og því leggur bæjarráð Hornafjarðar áherslu á að Hafrannsóknarstofnun verði fjárhagslega undir það búin að fara í öflugar bergmálsmælingar í byrjun næsta árs til að hægt sé að ganga úr skugga um hvort ekki sé hægt að heimila þessar þjóðhagslega mikilvægu veiðar.

Það er skýlaus krafa sjávarbyggða á Íslandi að ríkisvaldið sjái til þess að jafn mikilvæg stofnun og Hafrannsóknarstofnun sé fullfjármögnuð og gert kleift að halda úti öflugum rannsóknum á fiskistofnum þjóðarinnar til að hægt sé að tryggja sjálfbærar veiðar sem skipta sköpum fyrir sveitarfélögin og íslenskt efnahagslíf.

Samþykkt samhljóða.
2.
Endurskoðun reglna um sérstakan húsnæðisstuðning
Málsnúmer 202407009
Á 1148. Fundi bæjarráðs Sveitarfélagsins Hornafjarðar var mál 202407009 tekið fyrir þar sem beiðni um breytingu á 11. gr. á reglum Sveitarfélagsins Hornafjarðar um sérstakan húsnæðisstuðning var hafnað. Þann 24.10. 2024 var óskað eftir rökstuðningi vegna höfnunarinnar.
Lagður fram rökstuðningur vegna ákvörðunar í máli númer 202407009.
Samþykkt samhljóða.
3.
Reglur um akstur foreldra í dreifbýli vegna þátttöku barna þeirra í íþrótta- og tómstundastarfi fjarri heimili
Málsnúmer 201101068
Á fundi fræðslu- og frístundarnefndar þann 17.04.2024 var lagt til við bæjarráð að reglur um akstur foreldra í dreifbýli vegna þátttöku barna þeirra í íþrótta- og tómstundastarfi fjarri heimili yrðu felldar úr gildi þar sem frístundarakstur hefur tekið við hlutverkinu.
Bæjarráð samþykkir að fella reglurnar úr gildi.
Samþykkt samhljóða.
4.
Styrkir og framlög 2025
Málsnúmer 202410111
Áætlaðir styrkir og fjárframlög árið 2025 lagt fram.
Bæjarráð samþykkir styrki og fjárframlög fyrir árið 2025 og vísar til áframhaldandi vinnu.
5.
Styrkbeiðni- Bók um Svavar Guðnason
Málsnúmer 202410112
Í undirbúningi er útgáfa á stórri listaverkabók um listamanninn Svavar Guðnason.Bókin sem um ræðir verður ca. 250-300 síður og verður gefin út í tvennu lagi annars vegar á íslensku og hins vegar á ensku. Aðaltexta bókarinnar skrifar Anna Jóhannsdóttir listfræðingur en hún er jafnframt í hlutastarfi hjá Listasafni Íslands. Auk hennar ritar danski listfræðingurinn Jens Tang Kristensen grein í bókina sem fjallar um tengsl Svavars við alþjóðlega myndlist. Gert er ráð fyrir að bækurnar komi út á fyrri hluta ársins 2026. Bókin verður ríkulega myndskreytt með verkum Svavars. Í sambandi við útgáfu bókarinnar verður haldin stór yfirlitssýning á verkum Svavars í Listasafni Íslands og verður Anna Jóhannsdóttir sýningarstjóri sýningarinnar. Sýning verður einnig hengd upp í Copra safninu í Amstelveen í Hollandi og í stóru listasafni í Danmörku sem endanlega á eftir að ganga frá hvaða safn verður fyrir valinu. Einn tilgangur með útgáfu þessarar bókar er að tengja Svavar betur við alþjóðlegt listasvið, endurnýja tengsl hans í gegnum Copra-hreyfinguna.Sótt er um styrk vegna útgáfukostnaðar við bókina.
Bæjarráð samþykkir að veita styrk upp á 1.000.000 krónur og vísar málinu til mats á fjárhagslegum áhrifum.
Samþykkt samhljóða.
6.
Aðalfundur HAUST 2024
Málsnúmer 202410105
Aðalfundur Heilbrigðiseftirlits Austurlands bs. verður haldinn á Höfn í Hornafirði þann 6. nóvember nk. kl 14:00.
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri fer með atkvæði sveitarfélagsins á fundinum.
7.
Hjúkrunarheimiliði Skjólgarður 50 ára.
Málsnúmer 202410104
Hjúkrunarheimilið Skjólgarður fagnar 50 ára afmæli þann 8. nóvember næstkomandi og bíður bæjarstjórn í léttann afmælisfögnuð.
Lagt fram til kynningar