Bæjarráð Hornafjarðar
1152. fundur
19. nóvember 2024
kl.
10:00
-
10:45
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir
formaður
Gauti Árnason
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Jóna Benný Kristjánsdóttir
Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
Stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Íbúaráð - Suðursveit og Mýrar - 6
Fundargerð íbúaráðs Suðursveitar og Mýra númer 6, lögð fram.
Bæjarráð heimilar tiltekt í Holti í samstarfi við menningarmiðstöðina og sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs.
2.
Lóðamál - Hafnarbraut 56, afskráning lóðar
Lóð við Hafnarbraut 56 er 22 þúsund fermetra viðskipta og þjónustulóð á svæði sem skipulagt hefur verið fyrir Hagahverfi þar sem Gamlabúð stóð. Óskað er eftir samþykki bæjarráðs til þess að aflýsa lóðaleigusamning og afskrá lóðina.
Sviðsstjóra mannvirkjasviðs falið að aflýsa lóðarleigusamningi og afskrá lóðina.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
3.
Gjaldskrá 2025 fyrir söfnunarstöð úrgangs á Höfn í Sveitarfélaginu Hornafirði
Gjaldskrá 2025 fyrir sorphirðu lögð fram.
Bæjarráð samþykkir gjaldskrár 2025 fyrir söfnunarstöð, sorpeyðingu og sorphirðu og vísar þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
4.
Umsögn um útgáfu rekstrarleyfis - Veitingaleyfi - Hafnarbraut 4 - F2180643- Vonia ehf
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn vegna rekstrarleyfis að Hafnarbraut 4 til veitingu veitinga í flokki II - E Kaffihús.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn með sömu fyrirvörum og byggingarfulltrúi gerir.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
5.
Krafa fjármála- og efnahagsráðuneytisins um þjóðlendur á svæði 12
Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs leggur fram minnisblað um kröfu ríkisins í þjóðlendumálinu um eyjar og sker á svæði 12.
Lögmaður er að vinna í málinu fyrir hönd sveitarfélagsins en kröfulýsingarfrestur er til 13. janúar 2025.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
6.
Atvinnu- og rannsóknasjóður. Staða sjóðsins og styrkverkefna.
Við skoðun á atvinnu- og rannsóknarsjóð var fjármununum ráðstafað í sjóðinn árið 2021. Stærsti hluti fjármagnsins fór í styrk til Sláturfélags Austur-Skaftafellssýslu vegna reksturs sláturhúss árið 2022.
Bæjarráð felur aðalbókara að greina fjárhagsstöðu atvinnu- og rannsóknarsjóðs. Einnig felur bæjarráð sviðsstjóra stjórnsýslusviðs að óska eftir nánari upplýsingum um styrk til Sláturfélags Austur- Skaftafellssýslu.
7.
Fundargerð stjórnar Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum
fundargerð nr. 77 frá stjórnarfundi Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum og skýrsla frá EFLU um raforkuverð á Íslandi frá árinu 2024, lagðar fram.
Lagt fram til kynningar.