Bæjarráð Hornafjarðar
1155. fundur
10. desember 2024
kl.
10:00
-
12:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir
varamaður
Gauti Árnason
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
Stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Almannavarnanefnd - 69
Fundargerð Almannavarnarnefndar númer 69 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
2.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 90
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar númer 90 lögð fram.
Lagt fram til kynningar
3.
Beiðni um framlengingu á frestum vegna lóðaúthlutunar Sandeyri 2-7
Á fundi bæjarráðs 22. október var lóðarhafa veittur frestur til þess að afla sér byggingarleyfis til 3. desember samkvæmt byggingarfulltrúa hafa fullnægjandi gögn ekki borist. Lóðarhafi mætti á fundinn ásamt samstarfsmanni.
Í ljósi þess að nýjar upplýsingar og gögn hafa borist, óskar bæjarráð eftir nánari upplýsingum um verkefnið þar á meðal uppfærðri tímaáætlun. Sviðsstjóra mannvirkjasviðs falið að vinna áfram að málinu. Afgreiðslu frestað til næsta fundar bæjarráðs.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
4.
European City Facility
Drög að umsókn um styrk í European City Facility verkefni ásamt leyfisbréfi lagt fram.
Lagt fram til kynningar.
5.
Beiðni um stofnun og úthlutun lóðar - Miðós 17B
Óskað er eftir staðfestingu á að Skinney- Þinganes sé lóðarhafi lóðar númer 17b við Ófeigstanga og að útbúin verði lóðarleigusamningur þess efnis.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að lóðarleigusamningur verði gerður við Skinney-Þinganes fyrir lóð að Ófeigstanga 17b.
Sviðstjóra mannvirkjasviðs falið að ganga frá samning.
Samþykkt samhljóða.
Sviðstjóra mannvirkjasviðs falið að ganga frá samning.
Samþykkt samhljóða.
6.
Íþróttahús - hönnun
Fundargerð stýrihóps um nýtt íþróttahús númer 24 lögð fram ásamt innsendum erindum frá Alberti Eymundssyni og Ungmennasambandinu Úlfljót varðandi málið.
Lagt fram til kynningar.
7.
Fjárhagsáætlun 2025
Hér er lögð fram til síðari umræðu fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árið 2025 ásamt langtímaáætlun til ársins 2028. Einnig fylgir sundur liðuð framkvæmdaáætlun til ársins 2028.Helsta breytingin frá fyrri umræðu er breyting á launum kjörinna fulltrúa og nákvæmari langtíma framkvæmdaáætlun sveitarfélagsins. Þá er í 2024 tölunum uppfærsla á lánum og afborgunum þeirra vegna kaupsamnings Leigufélagsins Bríetar ehf. og sveitarfélagsins um kaup þess fyrrnefnda á 18 íbúðum. Bríet yfirtekur þau lán sem eru á eignunum að fjárhæð um 130 m.kr. ásamt því að sveitarfélagið eignast nýtt hlutafé í Leigufélaginu Bríet að fjárhæð um 280 m.kr.
Bæjarráð vísar fjárhagsáætlun 2025-2028 til síðari umræðu í bæjarstjórn með þeim breytingum sem ræddar voru á fundinum.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
8.
Samstarfssamningur við Nýheima Þekkingarsetur
Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs leggur til að gerður verði ótímabundinn samningur, með 6 mánaða uppsagnarfresti, við Nýheima Þekkingarsetur um þau málefni sem setrið sinnir í samvinnu við og af hálfu sveitarfélagsins. Mikilvægt er að tryggja setrinu ákveðið fjármagn á ársgrundvelli til að sinna þeim verkefnum sem kveðið er á um í samningunm en í dag er staðan sú að fjármagn er háð fjárhagsáætlanagerð hvers árs og því er mikil óvissa í áætlanagerð setursins vegna komandi árs þar til fjárhagsáætlun sveitarfélagsins hefur verið samþykkt. Í samningum er kveðið á um samstarf um verkefnin Hornafjörður Náttúrulega, HeimaHöfn og byggðaþróunarmál, sem nema til samans einu stöðugildi.
Bæjarráð samþykkir framalagðan samning en leggur til að samningurinn sé til þriggja ára með endurskoðunnar ákvæði og leggur fyrir bæjarstjórn til samþykktar.
9.
Ósk um tilnefningu í stjórn Þórbergssetur
Með tilvísan í skipulagsskrá Þórbergssetur sf.https://thorbergur.is/index.php?option=com_content&view=article&id=13&Itemid=116er óskað eftir tilnefningu nýs aðila í stjórn Þórbergsseturs sf. Menningarmiðstöð Hornafjarðar hefur ævinlega átt þar einn fulltrúa en þar sem Eyrún Helga Ævarsdóttir hefur hætt störfum þarf að skipa nýjan stjórnarmann og varamann til þátttöku í stjórn Þórbergsseturs. Næsti fundur í stjórn Þórbergssetur er fyrirhugaður 16. desember næstkomandi.
Bæjarráð tilnefnir Kristínu Völu Þrastardóttur forstöðumann Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar í stjórnina.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
10.
Stjórnskipulag almannavarna á Suðurlandi
Unnið hefur verið að því að endurskoða stjórnskipulag almannavarna í umdæminu hér á Suðurlandi.Stjórnskipulagsáætlun fyrir aðgerðarstjórn á Suðurlandi segir fyrir um skipulag og stjórnun aðgerða í umdæmi lögreglustjórans á Suðurlandi.Áætlunin er unnin af lögreglustjóranum á Suðurlandi, í samstarfi við almannavarnarsviði ríkislögreglustjóra, almannavarnanefndir Árnessýslu, Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu og Hornafjarðar.Stjórnskipulag aðgerðarstjórnar á Suðurlandi nær yfir allar almannavarnaraðgerðir og aðrar aðgerðir í umdæmi lögreglustjórans á Suðurlandi.Tillaga að endurskoðuðu stjórnskipulagi lagt fram.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við endurskoðað stjórnskipulag.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
11.
Samfélagsleg áföll - Langtímaviðbrögð sveitarfélagsins
Almannavarnanefnd fól sviðsstjóra almannavarna hjá Lögreglustjóranum á Suðurlandi og bæjarstjóra að stofna stýrihóp um endurskoðun á áætlun um langtímaviðbrögð sveitarfélagsins við samfélagslegum áföllum.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við stofnun stýrihóps.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
12.
Framkvæmd byggingar hjúkrunarheimilis
Samningaviðræður hafa þróast áfram. Meðfylgjandi er erindi til handa verkkaupum. Einnig er meðfylgjandi erindi lögmanna aðila vegna þessa til frekari skýringa. Erindið lýtur að því að upplýsa um stöðuna og afla frekara umboðs til samningsumleitana.Bæjarráð hafði áður bókað þann 24/9 2024: Bæjarráð fyrir hönd Sveitarfélagsins veitir FSRE heimild til að leita sátta við verktaka, en gerir jafnframt kröfu um að eiga fulltrúa í þeim viðræðum. Bæjarstjóra er falið að vera fulltrúi sveitarfélagsins í viðræðunum.Bæjarráð áréttar að verkið sjálft, undirbúningur þess og öll samskipti við hönnuði sem að verkinu koma, hafa verið á hendi FSRE en ekki sveitarfélagsins.
Bæjarráð fyrir hönd Sveitarfélagsins veitti FSRE heimild til að leita sátta við verktaka þann 24. september sl. Bæjarráð áréttar kröfu sína um að eiga fulltrúa í viðræðunum og felur bæjarstjóra að vera fulltrúi sveitarfélagsins í viðræðunum.
Bæjarráð ítrekar að verkið sjálft, undirbúningur þess og öll samskipti við hönnuði sem að verkinu koma, hafa verið á hendi FSRE en ekki sveitarfélagsins og að sveitarfélagið geti á engan hátt borið ábyrgð á þeim hluta verkefnisins.
Samþykkt samhljóða.
Bæjarráð ítrekar að verkið sjálft, undirbúningur þess og öll samskipti við hönnuði sem að verkinu koma, hafa verið á hendi FSRE en ekki sveitarfélagsins og að sveitarfélagið geti á engan hátt borið ábyrgð á þeim hluta verkefnisins.
Samþykkt samhljóða.
13.
Beiðni um styrk til myndbandsgerðar
Miðstöð slysavarna barna óskar eftir styrk að upphæð 50.000 krónur fyrir gerð fræðslumyndbands um slysavarnir ungra barna á heimilum og öryggi þeirra í bílum.
Bæjarráð samþykkir að veita styrk að upphæð 50.000 fyrir gerð fræðslumyndbands.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
14.
Samþykkt um kjör fulltrúa Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Samband íslenskra sveitarfélaga hefur á síðustu árum unnið að úrbótatillögum til að bæta starfsaðstæður kjörinna fulltrúa. Verkefnið er hluti af aðgerðaráætlun stjórnvalda á sviði sveitarstjórnarmála og er ætlað að sporna gegn óvenju mikilli endurnýjun kjörinna fulltrúa, með tilheyrandi áhrifum á sveitarstjórnir. Ein af lykilástæðum þess að mikil endurnýjun er á meðal kjörinna fulltrúa er að erfitt getur reynst að samþætta störf sín í bæjarstjórn við annað launað starf. Ein af aðgerðunum sem sambandið hefur lagt til er viðmiðunartafla um laun kjörinna fulltrúa. Markmiðið með slíkri töflu er að tryggja að kjörnir fulltrúar hljóti laun í samræmi við álag og vinnustundir á mánuði og auðvelda þeim að minnka við sig í öðrum störfum til að sinna sveitarstjórn. Samkvæmt viðmiðunartöflu sambandsins er lagt upp með að sveitarfélög með íbúa á bilinu 1501-3000 íbúa greiði sveitarstjórnarfulltrúum á bilinu 11,67% - 16,6% af þingfararkaupi. Bæjarstjóri leggur því fram endurskoðaða samþykkt um samþykkt kjörinna fulltrúa út frá þessum viðmiðum Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Bæjarráð vísar samþykktinni til bæjarstjórnar.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
15.
Samningur við Félag eldri Hornfirðinga
Nýr samningsdrög við Félag eldri Hornfirðinga lagður fram.
Bæjarráð samþykkir samhljóða nýjann samning við Félag eldri Hornfirðinga og felur bæjarstjóra að undirrita samninginn.