Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1156. fundur
17. desember 2024 kl. 10:00 - 12:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir formaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir varamaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Arndís Lára Kolbrúnardóttir stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Fræðslu- og frístundanefnd - 120
Málsnúmer 2412004F
Fundargerð fræðslu- og frístundarnefndar númer 120 lögð fram.
2.
Íþróttahús - hönnun
Málsnúmer 202402127
Fundargerð stýrihóps um nýtt íþróttahús númer 25 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
3.
Beiðni um framlengingu á frestum vegna lóðaúthlutunar Sandeyri 2-7
Málsnúmer 202405112
Lóðarhafa var gefin frestur til þess að afla byggingarleyfis til 6. október 2024, sá frestur var framlengdur til 3. desember 2024. Fullnægjandi gögn hafa ekki borist.
Bæjarráð felur sviðsstjóra mannvirkjasviðs að senda lóðarhafa bréf um fyrirhugaða afturköllun lóðar. Lóðarhafa er veittur andmælaréttur til og með fimmtudagsins 2. janúar 2025.
Samþykkt samhljóða.
4.
Viðmiðunarreglur um snjómokstur
Málsnúmer 202402076
Ekki eru til reglur um vetrarþjónustu í sveitarfélaginu og ekki er fjallað um snjómokstur í dreifbýli í umferðaröryggisáætlun. Lögð er fram til samþykktar tillaga um viðmiðunarreglum um snjómokstur í sveitarfélaginu.
Bæjarráð samþykkir viðmiðunarreglur um snjómokstur í sveitarfélaginu.
Samþykkt samhljóða.
5.
European City Facility
Málsnúmer 202411095
Drög að umsókn um styrk í European City Facility verkefni ásamt leyfisbréfi lagt fram.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að senda inn umsóknina.
6.
Fundartími bæjarráðs
Málsnúmer 202412078
Umræður um fundartíma bæjarráðs yfir hátíðarnar.
Næsti fundur bæjarráðs verður haldin 7. janúar 2025. Bæjarstjórn fundar 9. janúar 2025 samkvæmt áætlun.
7.
Styrkveiting vegna framkvæmda við fráveitu 2024
Málsnúmer 202412077
Umsókn um styrk vegna framkvæmda við fráveitur í sveitarfélaginu á árinu 2024 hefurverið samþykkt.Styrkfjárhæðin nemur 30% af staðfestum heildarkostnaði vegna framkvæmda á árinu 2024.
Lagt fram til kynningar.
8.
Styrkumsókn frá Sigurhæðum
Málsnúmer 202412076
Óskað er eftir styrk til Sigurhæða - þjónustu við þolendur kynbundins ofbeldis á Suðurlandi að upphæð 1.249.687 kr.
Bæjarráð samþykkir að veita styrk að upphæð 1.249.687 kr.
Samþykkt samhljóða.
9.
Styrkir Atvinnu- og rannsóknarsjóðs 2025
Málsnúmer 202411085
Staða atvinnu- og rannsóknasjóðs fyrir úthlutun 2025 er 6.716.283 krónur eftir síðustu úthlutun.
Lagt fram til kynningar.
10.
Umsögn um útgáfu tækifærisleyfi - Skóladansleikur.
Málsnúmer 202412034
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn við útgáfu á tækifærisleyfi fyrir skóladansleik á Hafinu.
Bæjarráð veitir samhljóma jákvæða umsögn.
11.
Fundargerðir Heilbrigðisnefndar Austurlands
Málsnúmer 202410097
Fundargerð Heilbrigðisnefndar Austurlands númer 182 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
12.
Fundargerðir - Samband íslenskra sveitarfélaga 2024
Málsnúmer 202401122
Fundargerð stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga númer 959 lögð fam.
Lagt fram til kynningar.
13.
Framkvæmd - Leikvöllur Leirusvæðis
Málsnúmer 202407050
Þrjú tilboð bárust í verkið framkvæmd- Leikvöllur Leirusvæði.Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 25.905.000 krFagurverk. 29.937.400 kr. 115,57% yfir kostnaðaráætlun.Gröfuþjónusta Olgeris. 10.460.126 kr. 40% af kostnaðaráætlun.Hellur og lagnir 30.557.300 kr. 117,96% yfir kostnaðaráætlun.
Hjördís Edda Olgeirsdóttir vék af fundi undir þessum lið.

Bæjarráð samþykkir að ganga til samninga við lægstbjóðanda. Sviðsstjóra mannvirkjasviðs falið að vinna að málinu.
Samþykkt samhljóða.