Bæjarráð Hornafjarðar
1165. fundur
4. mars 2025
kl.
10:00
-
11:45
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir
formaður
Gauti Árnason
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Jóna Benný Kristjánsdóttir
Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
Stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 73
Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar númer 73 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
2.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 272
Fundargerð Hafnarstjórnar Hornafjarðar númer 272 lögð fram.
Bæjarráð óskar eftir minnisblaði um fyrirhugaða samþættingu áhaldahússins og hafnarinnar.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
3.
Íbúaráð Öræfum - 6
Fundargerð íbúaráðs Öræfa númer 6 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
4.
Fundartími bæjarráðs
Færa þarf fund bæjarráðs þann 18. mars vegna fundar bæjarráðs með innviðaráðuneytinu þann dag. Lagt er til að færa fundinn fram um einn dag, eða til 17. mars nk. kl. 10:00.
Samþykkt samhljóða.
5.
Kosning í nefndir
Óskað var eftir samþykki bæjarstjórnar fyrir því að Björgvin Erlendsson víki úr stýrihóp um nýtt íþróttahús og að Hjördís Edda Olgeirsdóttir taki hans stað. Málið var tekið fyrir í tölvupóst og samþykkt þar.
Lagt fram til kynningar
6.
Íþróttahús - hönnun
Fundargerð stýrihóps um nýtt íþróttahús númer 28 ásamt erindi frá forstöðumanni íþróttamiðstöðvar lagt fram.
Umræður um erindi forstöðumanns íþróttamannvirkja sem lagt var fyrir stýrihópinn. Forstöðumaður verður boðaður á fund stýrihósins.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
7.
Kjarasamningur við Kennarasamband íslands
Gögn frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um samkomulag milli ríkis og sveitarfélaga um ábyrgðarskiptingu lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
8.
Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga 2025
Fundargerðir 965., 966., 967., 968. og 969. funda stjórnar Sambandsins frá 18., 19., 20., 21. og 24. febrúar 2025 lagðar fram
Lagt fram til kynningar.
9.
Endurskoðun á regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga
Með vísan til kynningarfundar innviðaráðuneytisins með framkvæmdastjórnum sveitarfélaga um drög að frumvarpi um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, sem haldinn var þann 19. febrúar sl., þar sem u.þ.b. helmingur fulltrúa sveitarfélaga óskaði eftir að fresti til að veita umsögn um frumvarpið í samráðsgátt stjórnvalda, hefur ráðuneytið ákveðið að framlengja samráðsfrestinn til kl. 12:00, miðvikud. 5. mars n.k.
Núgildandi regluverk er ekki fullnægjandi og bæjarráð telur að sveitarfélög skuli fullnýta tekjustofna sína áður en komi til greiðslu úr jöfnunarsjóði.