Bæjarráð Hornafjarðar
1176. fundur
27. maí 2025
kl.
10:00
-
12:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir
formaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir
varamaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 99
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar númer 99 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
2.
Starfsemi Ríkis Vatnajökuls ehf.2025
Fulltrúar frá Ríki Vatnajökuls komu fyrir bæjarráð og kynntu skýrslu stjórnar.
Bæjarráð þakkar fyrir kynninguna. Mikill hugur er í stjórninni að efla starfsemi félagsins og óskar þeim góðs gengis.
3.
Reglur um stuðningsþjónustu
Lögð eru fram tillaga af nýjum reglum um stuðningsþjónustu í Sveitarfélaginu Hornafirði. Reglurnar taka við núverandi reglum um félagslega heimaþjónustu í Sveitarfélaginu Hornafirði. Vinnsla reglanna er partur af úrbótaáætlun á reglum sem snúa að þjónustu stuðnings- og virkniþjónustu.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við reglurnar og vísar þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
4.
Reglur um stoðþjónustu
Lögð eru fram tillaga af nýjum reglum um stoðþjónustu í Sveitarfélaginu Hornafirði. Reglurnar taka við núverandi reglum um félagslega heimaþjónustu í Sveitarfélaginu Hornafirði. Vinnsla reglanna er partur af úrbótaáætlun á reglum sem snúa að þjónustu stuðnings- og virkniþjónustu.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við reglurnar og vísar þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
5.
Endurskoðun reglna um fjárhagsaðstoð
Lögð fram tillaga um uppfærslu á reglum um fjárhagsaðstoð í Sveitarfélaginu Hornafirði. Breytingar snúa að því að uppfæra grunnfjárhæð í samræmi við það sem ákveðið var um áramót, kveða nánar á um hvenær skila beri inn umsóknum, breyting sem felur í sér að umsóknir fari fram í gegnum samræmda gátt á www.island.is og aðrar smávægilegri breytingar.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við breytingu á reglunum og vísar þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
6.
Styrkir til þátttöku ungmenna í íþróttamótum.
Á fundi bæjarráðs þann 20.05.2025 óskaði bæjarráð um upplýsingar um styrki til þátttöku ungmenna í íþróttamótum. Umbeðnar upplýsingar lagðar fram.
Lagt fram til kynningar.
7.
Skólamáltíðir útboð 2025
Enginn tilboð bárust vegna útboðs skólamáltíða.
Sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs er falið að kanna samningsgrundvöll við núverandi samningshafa.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
8.
Framkvæmd byggingar hjúkrunarheimilis
Minnisblað um stöðu framkvæmda hjúkrunarheimilis ásamt ástandsúttekt lagt fram.
Framkvæmdir við nýtt hjúkrunarheimili við Víkurbraut hafa tafist vegna rakaskemmda sem komu í ljós í byrjun árs. Orsökina má rekja til þess að vatn komst að burðarvirki hússins. FSRE (Framkvæmdasýslan Ríkiseignir) hefur brugðist við með ítarlegri greiningu og vinnur nú að úrbótum í samvinnu við sérfræðinga og verktaka.
Unnið er að því að fjarlægja og endurnýja skemmd efni, bæta gæðastjórnun og efla eftirlit. Ný tímaáætlun er í vinnslu en áhersla er lögð á vandaðan frágang og heilnæmt húsnæði.
Þrátt fyrir töf er verkefnið ekki stöðvað og hafa aðilar það að markmiði að ljúka því eins fljótt og unnt er.
Bæjarráð óskar eftir því að fulltrúi FSRE komi á fund þess og geri nánari grein fyrir stöðu mála.
Unnið er að því að fjarlægja og endurnýja skemmd efni, bæta gæðastjórnun og efla eftirlit. Ný tímaáætlun er í vinnslu en áhersla er lögð á vandaðan frágang og heilnæmt húsnæði.
Þrátt fyrir töf er verkefnið ekki stöðvað og hafa aðilar það að markmiði að ljúka því eins fljótt og unnt er.
Bæjarráð óskar eftir því að fulltrúi FSRE komi á fund þess og geri nánari grein fyrir stöðu mála.
9.
Fundargerðir Nýheima þekkingarseturs 2024
Fundargerð ársfundar Nýheima þekkingarseturs lögð fram.
Lagt fram til kynningar
10.
Staða flugs til Hornafjarðar
Vegagerðin vinnur að heildarendurskoðun á innanlandsflugi og óskaði eftir upplýsingum frá sveitarfélaginu. Svör sveitarfélagsins lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
11.
Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga 2025
fundargerð 979. fundar stjórnar Sambandsins frá 16. maí 2025 lögð fram
Lagt fram til kynningar.
12.
Til umsagnar mál nr.351- Frumvarp til laga um veiðigjald
Umsögn sveitarfélagsins Hornafjarðar um fyrirhugaða hækkun veiðigjalda lögð fram.
Bæjarráð samþykkti umsögnina samhljóða í tölvupósti.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
13.
Hönnun - Gáran, Sæbraut 1 - viðbygging fyrir pressu og starfsmannaaðstöðu
Lagt fram minnisblað vegna kostnaðaráætlunar fyrir viðbyggingu við Gáruna. Gerðar voru breytingar á fyrri áætlunum til að auka nothæfni rýmis.
Bæjarráð felur umsjónarmanni fasteigna að auglýsa útboðið.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
14.
Framkvæmd: Sindrabær breytingar 2024
Lögð fram tillaga af stólum fyrir sal á efri hæð í Sindrabæ.
Bæjarráð samþykkir samhljóða framlagða tillögu.
15.
Málefni motocross svæðisins
Erindi frá Akstursíþróttafélagi Austur-Skaftafellssýslu þar sem beðið er um aðkomu sveitarfélagsins vegna flutnings á motorcrossbraut ásamt beiðni um styrk fyrir innviðum vegna íslandsmóts í motorcross 2025 sem áætlað er að halda í sumar.
Bæjarráð er jákvætt fyrir því að koma til móts við Akstursíþróttafélagið (ASK) til þess að halda íslandsmót í sumar og gera styrktarsamning við félagið líkt og við önnur íþróttafélög í sveitarfélaginu. Bæjarstjóra falið að ræða við stjórn ASK.