Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1177. fundur
3. júní 2025 kl. 10:00 - 12:50
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir formaður
Hjördís Edda Olgeirsdóttir varamaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Jóna Benný Kristjánsdóttir Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Arndís Lára Kolbrúnardóttir stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir Stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 76
Málsnúmer 2505024F
Fundargerð atvinnu- og menningamálanefndar númer 76 lögð fram
Lagt fram til kynningar.
2.
Kynningarfundur Byggðastofnunnar
Málsnúmer 202505128
Glærur frá kynningarfundi Byggðastofnunnar lagðar fram. Byggða- og nýsköpunarfulltrúi mætir á fundinn.
Lagt fram til kynningar.
3.
Umsókn um lóð Ósland lóð K (Sandeyri 10)
Málsnúmer 202002027
Góð framkvæmd ehf. óskar eftir framlengingu á lóðarúthlutun og upphafi framkvæmda á lóðum J og K í Útbæ. Þann 13.08.2024 samþykkti bæjarráð að veita lóðarhafa frest til þess að skila inn aðaluppdráttum til lok október sl. Aðaluppdrættir bárust innan tiltekins frests en engar framkvæmdir eru ennþá hafnar á lóðinni.
Bæjarráð veitir lóðarhafa frest til 15.07.2025 til þess að afla sér byggingarleyfis og til 15.10.2025 til þess að hefja framkvæmdir.

Samþykkt samhljóða.
4.
Umsókn um lóðir - Sandeyri 2-7
Málsnúmer 202205127
Lóðarhafa var sent bréf um fyrirhugaða afturköllun lóðar dagsett 20.05.2025. Andmælafrestur var til 30.05.2025, andmæli bárust með tölvupósti þann 27.05.2025.Bæjarráð samþykkti 14.01.2025 að veita lóðarhafa frest til 1. febrúar 2025 til þess að skila inn tímaáætlun og til 1. apríl 2025 til þess að afla sér byggingaleyfis. Engin gögn hafa borist frá lóðarhafa.
Í ljósi þess að tímamörk hafa ítrekað ekki verið virt og byggingarleyfis hefur ekki verið aflað, afturkallar bæjarráð lóðina skv. 7.gr. reglna um úthlutun lóða frá 2020.
Samþykkt samhljóða.
5.
Breytingar á stjórnskipulagi umhverfis- og skipulagssviðs, og mannvirkjasviðs
Málsnúmer 202505129
Í kjölfar þess að sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs, hefur sagt starfi sínu lausu og mun láta af störfum í lok júní, er nauðsynlegt að endurmeta skipulagið. Meðfylgjandi er minnisblað með tillögum að því hvernig er tekist á við áskoranir sem verið hafa viðvarandi á sviðinu síðastliðin ár.
Bæjarráð felur sviðsstjóra stjórnsýslusviðs að vinna áfram að málinu.
6.
Skólamáltíðir útboð 2025
Málsnúmer 202409013
Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs fer yfir stöðu málsins.
Lagt fram til kynningar.
7.
Fyrirspurn um fasteignagjöld
Málsnúmer 202504048
Fjármálastjóri upplýsir um stöðu málsins og gerir nánar grein fyrir málinu.
Bæjarráð bíður fjármálastjóra velkomna til starfa. Í kjölfar þess að fjármálastjóri hefur hafið störf er ekki talin þörf á því að fá utanaðkomandi aðila til þess að meta umfang málsins. Þess í stað er fjármálastjóra falið að leggja fram minnisblað um heildarumfang og kostnað málsins fyrir fund bæjarráðs þann 16. júní næstkomandi.
8.
Málefni motocross svæðisins
Málsnúmer 202502054
Bæjarstjóri upplýsti um áframhaldandi samtal við Akstursíþrótta félagið.
Bæjarráð óskar eftir ítarlegri kostnaðaráætlun frá ASK og felur sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs að vinna drög að samstarfssamning. Í kjölfarið mun bæjarráð boða forsvarsmenn félagsins á fund.
9.
80 ára afmæli Sambands íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 202505127
Boð á 80 ára afmæli Sambands íslenskra sveitarfélaga
Lagt fram til kynningar.
10.
Boðun á ársfund Brákar Íbúðafélags hses.
Málsnúmer 202505126
Boð á ársfund Brákar íbúðafélags hses. miðvikudaginn 11. júní 2025 kl. 11:30. Endanleg fundarstaðsetning liggur ekki fyrir en hann verður staðfundur og haldin í Reykjavík. Boðið verður uppá streymi frá fundinum.
Lagt fram til kynningar.
11.
Fundargerð stjórnar Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum
Málsnúmer 201305073
Fundargerðir stjórnar Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum nr. 81 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.