Bæjarráð Hornafjarðar
1185. fundur
26. ágúst 2025
kl.
10:00
-
11:12
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir
1. varamaður
Gauti Árnason
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Jóna Benný Kristjánsdóttir
Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
Stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Velferðarnefnd - 43
Fundargerð velferðarnefndar númer 43 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
2.
Ársskýrsla velferðarsviðs 2024
Ársskýrsla velferðarsviðs 2024 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
3.
Starfsemi velferðarsviðs 2025
Sviðsstjóri fer yfir starfsemi á velferðarsviði og fyrirséðar breytingar sem verða á starfsemi þess á haustdögum.Selið var afhent velferðarsviði aftur nú í vor eftir að hafa þjónustað leikskólann Sjónarhól sem ungbarnadeild síðustu ár. Fyrirhugað er að hefja þar starfsemi vinnu- og hæfingarstöðvar á næstu mánuðum en slík framkvæmd kallar á endurskoðun á starfseminni og verður farið yfir þær breytingar sem farið verður í samhliða því.
Lagt fram til kynningar.
4.
Reglur um veitingu fjárstyrks til greiðslu lögmannsaðstoðar sbr.47.gr.barnaverndarlaga nr.802002
Lögð eru fram drög að nýjum reglum um veitingu fjárstyrks til greiðslu lögmannsaðstoðar sbr. 47. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 hjá Barnaverndarþjónustu Fjarðabyggðar og Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við framlagðar reglur og vísar þeim til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
5.
Reglur um styrki til náms og verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólks með langvarandi stuðningsþarfir
Lögð eru fram drög að nýjum reglum um styrki til náms og verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólks með langvarandi stuðningsþarfir. Vinnsla reglanna er liður í úrbóataáætlun vegna reglna stuðnings- og virkniþjónustu.
Lagt fram til kynningar.
6.
Umsögn um útgáfu rekstrarleyfis - (Gistileyfi flokkur II) - Skýjaborgir apartments -2221115
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn vegna leyfis til reksturs Gististaðir í flokki II - G íbúðir í Skýjaborgum apartments.
Bæjarráð getur ekki veitt jákvæða umsögn eins og staðan er þar sem gögn vantar. Starfsmönnum mannvirkjasviðs falið að vinna málið áfram.
7.
Beiðni um styrk til Þúfunnar áfangaheimili fyrir konur
Almannaheillafélagið Lítil Þúfa fta. sem rekur Þúfuna áfangaheimili fyrir konur í bata frá vímuefnaröskun, óskar eftir rekstrarstyrk að fjárhæð kr. 300.000,- sem dreifist yfir þrjú ár, kr. 100.000,- árlega.
Bæjarráð hafnar styrkbeiðninni og felur sviðsstjóra stjórnsýslusviðs að svara umsækjenda.
8.
Ársskýrsla Náttúrufræðistofnunar
Ársskýrsla Náttúrufræðistofnunar lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
9.
Fræðsla um hinsegin málefni fyrir kjörna fulltrúa og starfsfólk sveitarfélaga
Innviðaráðuneytið býður kjörnum fulltrúum og starfsfólki sveitarfélaga til fræðslufundar um hinsegin málefni. Samtökin ´78 sjá um fræðsluna en markmiðið er auka þekkingu sveitarstjórnarfólks á réttindum og félagslegri stöðu hinsegin fólks. Fræðslan fer fram á fjarfundi (Teams) og í boði eru tvær tímasetningar til að velja úr:-Þriðjudagur 9. september kl. 11-Miðvikudagur 10. september kl. 16.
Lagt fram til kynningar