Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1194. fundur
28. október 2025 kl. 10:00 - 11:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir formaður
Gauti Árnason varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Jóna Benný Kristjánsdóttir Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Arndís Lára Kolbrúnardóttir stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir Stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 80
Málsnúmer 2510011F
Fundargerð atvinnu- og menningamálanefndar nr. 80 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
2.
Verklag vegna styrkja og auglýsinga
Málsnúmer 202507025
Unnið hefur verið að nýju verklagi og reglum vegna styrkjafyrirkomulagi sveitarfélagsins. Drög að reglum og minnisblað um ferlið og breytingartillögur lagt fram.
Lagt fram til kynningar og umræðu, starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu.
3.
Vatnsból í Nesjum
Málsnúmer 201910107
Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs leggur fram minnisblað um stöðu viðræðna við landeiganda um grannsvæði vatnsbóls í Hólmslindum.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að leita álits lögmanns um réttarstöðu sveitarfélagsins í málinu. Sviðsstjóra stjórnsýslusviðs falið að vinna málið áfram ásamt bæjarstjóra.
4.
Umsókn um lóð - Borgartún 5
Málsnúmer 202407041
Klettagarðar 12 ehf. hafa ákveðið að skila lóðinni Borgartún 5 samkvæmt tölvupósti frá Daníeli Geir sem barst til okkar þann 2. september 2024.
Bæjarráð felur verkefnastjóra umhverfis- og skipulagssviðs að auglýsa lóðina aftur sem lausa til úthlutunar á kortasjá sveitarfélagsins. Lóðin þarf að vera í auglýsingu í fjórar vikur samkvæmt reglum sveitarfélagsins um úthlutun lóða áður en þeim er úthlutað að nýju.
5.
Aðalfundur HAUST 2025
Málsnúmer 202510109
Aðalfundur Heilbrigðiseftirlits Austurlands bs. verður haldinn á Teams fimmtudaginn 13.11 nk. kl 14:00. Meðfylgjandi er fundardagskrá.
Lagt fram til kynningar.
6.
Vatnajökulsþjóðgarður - fundargerðir stjórnar og svæðisráðs
Málsnúmer 202003090
Atvinnu og menningamálanefnd lagði fram eftirfarandi bókun á fundi þann 22.10.2025:Nefndin vekur athygli á bókun svæðisráðs varðandi stöðu þjóðgarðsvarðar á austurhluta suðursvæðis, mál nr. 202508-0012 á 148. fundi svæðisráðs suðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs.Nefndin ítrekar mikilvægi þess að staðan verði áfram staðsett í Sveitarfélaginu Hornafirði, í samræmi við hlutverk svæðisins og tengsl þjóðgarðsins við nærsamfélagið.Atvinnu- og menningarmálanefnd vísaði málinu til bæjaráðs til frekari umfjöllunar og eftirfylgni.
Bæjarráð tekur undir með svæðisráði, stjórn þjóðgarðsins og atvinnu- og menningarmálanefnd um mikilvægi þess að staða þjóðgarðsvarðar á austurhluta þjóðgarðsins verði auglýst sem fyrst. Suðursvæði Vatnajökulsþjóðgarsð er bæði víðfemt og fjölsótt. Beint er til Náttúruverndarstofnunar að tryggja stöðu þjóðgarðsvarðar enda sé samstarf við Þjóðgarðinn forsenda mikilvægs hluta atvinnulífsins í sveitarfélaginu.