Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1208. fundur
10. febrúar 2026 kl. 10:00 - 12:30
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir formaður
Gauti Árnason varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Jóna Benný Kristjánsdóttir Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Arndís Lára Kolbrúnardóttir stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir Stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 109
Málsnúmer 2601025F
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar númer 109 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
2.
Fyrirhugaðar breytingar Heilbrigðiseftirlitsins
Málsnúmer 202510018
Framkvæmdastjóri HAUST mætir á fund til þess að ræða fyrirhugaðar breytingar Heilbrigðiseftirlitsins.
Sviðsstjóra stjórnsýslusviðs falið að gera drög að umsögn fyrir næsta fund bæjarráðs.
3.
Fjölmenningarleg inngilding- Ósk um samstarf
Málsnúmer 202602044
Innsent erindi frá skólameistara FAS um mögulegt samstarfsverkefni Sveitarfélagsins og FAS varðandi íslenskukennslu sem annað mál og samfélagslega inngildingu.
Bæjarráð þakkar fyrir kynninguna á erindinu og vísar því til umfjöllunar í fjölmenningarráði. Sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs falið að vinna að hugmyndum að frekari útfærslu.
4.
Umsögn um 312.mál alþingis- Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir (stytting bótatímabils o.fl.)
Málsnúmer 202601156
Drög að umsögn sviðsstjóra velferðarsviðs lögð fram.
Sviðsstjóra velferðarsviðs falið að senda inn drögin.
5.
Umsögn um mál 305 frá velferðarnefnd alþingis- Framkvæmd öryggisráðstafana samkvæmt dómsúrlausn
Málsnúmer 202601158
Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar 305. mál - Framkvæmd öryggisráðstafana samkvæmt dómsúrlausn Umsagnir skal senda í gegnum umsagnagátt Alþingis. Frestur til að senda inn umsögn er til og með 11. febrúar nk.
Sviðsstjóra velferðarsviðs var falið að meta þörfina á umsögn og taldi ekki þörf á umsögn.
6.
Gjaldskrár sorphirðu, sorpeyðingar og söfnunarstöð úrgangs
Málsnúmer 202510014
Minnisblað umhverfisfulltrúa um málið lagt fram.Tilgangur er að skýra ábyrgð á förgun úrgangs samkvæmt gildandi samningsumhverfi og gera grein fyrir þeim ákvörðunum sem sveitarfélagið þarf að taka til að tryggja að úrgangur safnist ekki upp á flokkunarstöðinni.
Bæjarráð felur sviðsstjóra stjórnsýslusviðs og fjármálastjóra að yfirfara samninginn við Hringrás og í kjölfarið að óska eftir fundi með forsvarsmönnum Hringrás til þess að fara yfir réttindi og skyldur beggja aðila.
7.
Húsnæðisáætlun - Hornafjörður 2026
Málsnúmer 202512004
Drög að húsnæðisáætlun 2026 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
8.
Umsókn um lóð - Sandbakkavegur 5
Málsnúmer 202512071
T.S.E. Group ehf. sækir um lóðina Sandbakkaveg 5. Álit lögmanns um málið lagt fram.
Bæjarráð óskar eftir tímasettri verkáætlun og staðfestingu á fjármögnum verkefnisins.
9.
Umsókn um lóð -Sandbakkavegur 3
Málsnúmer 202512072
T.S.E. Group ehf. sækir um lóðina Sandbakkaveg 3. Álit lögmanns um málið lagt fram.
Bæjarráð óskar eftir tímasettri verkáætlun og staðfestingu á fjármögnum verkefnisins.
10.
Verktakagreiðslur
Málsnúmer 202601064
Minnisblað fjármálastjóra um verktakagreiðslur lagt fram.
Lagt fram til kynningar.
11.
Viðaukar við fjárhagsáætlun 2026
Málsnúmer 202602038
Viðauki 1 við fjárhagsáætlun lagður fram.
Bæjarráð samþykkir viðauka 1 og vísar honum til afgreiðslu bæjarstjórnar.
12.
Reiknilíkön leik- og grunnskóla Planning Analytics
Málsnúmer 202512092
Minnisblað fjármálastjóra vegna þátttöku í samstarfsverkefni um innleiðingu reiknilíkans fyrir úthlutun og ráðstöfun fjármuna til leik- og grunnskóla
Bæjarráð samþykkir að taka þátt í verkefninu. Fjármálastjóra falið að skoða hvort það rúmist innan fjárheimilda, að öðrum kosti að gera viðauka.
Samþykkt samhljóða.
13.
Krafa um viðurkenningu ábyrgðar og greiðslu vegna tafa á deiliskipulagi og fjártjóns
Málsnúmer 202602041
Innsend krafa frá Marina Travel er varðar kröfu um skaðabætur vegna tafa á deiliskipulagi.
Bæjarráð felur sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs að gera drög að svari í samráði við lögmann.
14.
Vefkönnun um hvernig megi einfalda regluverk verkefni sveitarfélaga
Málsnúmer 202602042
Athygli er vakin á vefkönnun ráðuneytisins þar sem óskað eftir tillögum um hvernig megi einfalda regluverk um verkefni sveitarfélaga.
Lagt fram til kynningar.
15.
Hvatning til umsagnar um þingsályktunartillögu um staðsetningu þyrlu Landhelgisgæslunnar
Málsnúmer 202602043
Atlantsflug hvetur Sveitarfélög sem hafa hagsmuni af skipulagi sjúkraflutninga, bráðaþjónustu og öryggisviðbragða um land allt komi sjónarmiðum sínum á framfæri áður en málið er afgreitt. Umsagnarfrestur er til og með 12. febrúar nk.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að útbúa umsögn og senda inn.
16.
Umsögn um mál 307 frá umhverfis- og samgöngunefnd alþingis- Breyting á þingsályktun nr.24152 um áætlun og vernd og orkunýtingu landssvæða
Málsnúmer 202601159
Bæjarráð óskaði eftir umsögn Múlaþings um málið, umsögn múlaþings var eftirfarandi:Byggðaráð Múlaþings ítrekar fyrri umsögn sína um málið og leggur áherslu á mikilvægi þess að Hamarsvirkjun komist í nýtingarflokk verndar- og orkunýtingaráætlunar. Virkjunin mun bæði hafa jákvæð áhrif á orkuöryggi landsmanna sem og bæta aðgengi að orku á Austurlandi sem er mikilvæg forsenda áframhaldandi verðmætasköpunar og uppbyggingu svæðisins.
Bæjarráð tekur samhljóða undir umsögn Múlaþings um málið. Stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúa falið að senda inn umsögnina.
17.
Umsögn um útgáfu rekstrarleyfis - Veitingastaður í flokki II-F-Krá -Fjárhúsið, Löngutorfu - F2182258
Málsnúmer 202602011
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn vegna leyfis til reksturs Gististaðir í flokki II - F- Krá- Fjárhúsið, hámarksfjöldi gesta 30 manns.
Bæjarráð veitir samhljóða jákvæða umsögn.
18.
Umsögn um útgáfu rekstrarleyfis - Gististaður flokkur II-C minna gistiheimili - Oddnýjarhús- F2538542
Málsnúmer 202512017
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn vegna leyfis til reksturs Gististaðir í flokki II - C minna gistiheimili, Oddnýjarhús, hámarksffjöldi gesta 7 manns.
Bæjarráð veitir samhljóða jákvæða umsögn.
19.
Umsögn um útgáfu rekstrarleyfis - Gististaður í flokki G- íbúðir-Höfn apartments, Vesturbraut 6- F2362274
Málsnúmer 202602012
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn vegna leyfis til reksturs Gististaðir í flokki II - G íbúðir, Höfn apartments, hámarksfjöldi gesta 32.
Bæjarráð veitir samhljóða jákvæða umsögn.
20.
Hornafjörður náttúrulega
Málsnúmer 202301036
Gerðar hafa verið tvær minniháttar breytingar á stefnu sveitarfélagsins, lokadrög heildarstefnu Hornafjörður, náttúrulega! lögð fram.Gerðar voru tvær breytingar í stoðinni fólkið og eru þær eftirfarandi:Tekur á velsæld íbúa og þeim samfélagslegu innviðum sem ýta undir heilbrigði, jöfnuð og gott mannlíf.Stuðla að heilbrigði og velsæld fyrir alla frá vöggu til grafar.
Bæjarráð samþykkir samhljóða lokadrög heildarstefnunnar og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.