Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1210. fundur
24. febrúar 2026 kl. 10:00 - 12:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir formaður
Gauti Árnason varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Arndís Lára Kolbrúnardóttir stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Sigurjón Andrésson bæjarstjóri
Dagskrá
1.
Fræðslu- og frístundanefnd - 134
Málsnúmer 2602008F
Fundargerð fræðslu- og frístundarnefndar númer 134 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
2.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 110
Málsnúmer 2602005F
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar númer 110 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
3.
Íbúaráð Öræfum - 10
Málsnúmer 2601019F
Fundargerð íbúaráðs Öræfa númer 10 lögð fram.
Bæjarráð felur stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúa að undirbúa íbúafund með bæjarstjórn í Öræfum.
Lagt fram til kynningar.
4.
Ósk um lóðarvilyrði - Hafnarbraut 70
Málsnúmer 202602089
Rarik ohf óskar eftir lóðarvilyrði að Hafnarbraut 70 á Höfn í Hornafirði.
Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram.
5.
umsókn um endurnýjun á æfingatækjum í eigu bæjarfélagsins Hornafjarðar fyrir hönd leigutaka
Málsnúmer 202602078
Fjárhagslegt mat vegna umsóknar um endurnýjun á æfingartækjum lagt fram.
Bæjarráð samþykkir endurnýjun á æfingartækjunum og vísar málinu til viðaukagerðar.
6.
Beiðni um rekstrarstyrk - Gleðigjafar
Málsnúmer 202602144
Gleðigjafar kór eldri Hornfirðinga sækir um rekstrarstyrk að upphæð 300.000 kr.
Bæjarráð samþykkir að veita rekstrarstyrk að upphæð 300.000 kr. til þriggja ára.

7.
Samningur um vallarumhirðu 2026
Málsnúmer 202602070
Knattspyrnudeild umf. Sindra hefur óskað eftir samningi um vallarumhirðu líkt og undanfarin ár.
Hækkun á samning um vallarumhirðu vísað til mats á fjárhagslegum áhrifum.
8.
Styrkbeiðni vegna endurbóta á félagsheimili í Stekkhól
Málsnúmer 202602074
Fjárhagsleg áhrif vegna beiðni um styrk til endurbóta á félagsheimili í Stekkhól lögð fram.
Bæjarráð samþykkir að veita umbeðinn styrk og vísar málinu til viðaukagerðar.
9.
Útboð Hafnarbraut 27 Ráðhús 1.áfangi
Málsnúmer 202405047
Útboðsgögn vegna útboðs fyrir framkvæmdir á ráðhús 1. áfanga lögð fram.
Umsjónarmanni fasteigna falið að auglýsa útboðið.
10.
Hönnun - Endurbætur og viðhald í Ekru
Málsnúmer 202402093
Lagt er fram yfirlit og gögn vegna verðkönnunar á fyrirhuguðum endurbótum og viðhaldi í Ekru að Víkurbraut 30, þar sem ráðgert er að ráðast í heildstæða uppfærslu á sal og forsal, endurnýjun gólf- og loftefna, bætta hljóðvist og lýsingu, auk endurbóta á eldhúsi og tæknibúnaði. Markmið endurbóta er að skapa nútímalegri og sveigjanlegri aðstöðu fyrir dagdvöl og félagsstarf eldri íbúa sveitarfélagsins, og hefur undirbúningur verkefnisins farið fram í þéttu samtali við notendur, Félag eldri Hornfirðinga, Öldungaráð og íbúa í Ekru.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að gerð verði verðkönnun.
11.
Mengun upp úr niðurföllum á Smárabraut 12, Höfn.
Málsnúmer 202602137
Erindi frá íbúum að Smárabraut 12 þar sem lýst er óvenjulegri og ítrekaðri lykt sem komið hefur upp úr niðurföllum og óskað eftir frekari rannsókn og úrbótum. Í erindinu er jafnframt óskað eftir því að málið verði sett í forgang og að unnin verði tímasett verkáætlun til að greina orsök og tryggja fullnægjandi úrlausn.
Bæjarráð leggur áherslu á að málið verði tekið föstum tökum og að unnið verði markvisst að því að greina uppruna lyktarinnar og finna viðeigandi lausn. Samþykkt er að fela bæjarstjóra að ganga til samnings við COWI Ísland ehf. um óháða og heildstæða greiningu og faglegt mat á aðstæðum.
Málið verður sett í forgang og unnið samkvæmt verkáætlun sem kynnt verður bæjarráði og viðkomandi íbúum strax og hún liggur fyrir.
12.
Slökkvibifreið í Öræfum- bilun
Málsnúmer 202602143
Minnsiblað slökkviliðsstjóra um tækjabúnað slökkviliðsins í Öræfum lagt fram.
Slökkviliðisstjóri fór yfir bilun sem kom upp og búið er að bregðast við því.
Slökkviliðsstjóra falið að kanna endurnýjun á tækjabúnaði og skila minnisblaði um það fyrir næsta fund bæjarráðs.
13.
Búfjársamþykkt 2026
Málsnúmer 202504074
Drög að búfjársamþykkt lögð fram.
Bæjarráð vísar samþykktinni til umfjöllunar í atvinnu- og menningarmálanefnd.
14.
Ráðning fjármálastjóra
Málsnúmer 202602147
Sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs ásamt bæjarstjóra leiddu ráðningarferli vegna stöðu fjármálastjóra en ákveðið var að auglýsa stöðuna þar sem tímabundin ráðning fjármálastjóra rennur út 1. júní næstkomandi. Í ferlinu bárust fjórar umsóknir en aðeins einn umsækjandi uppfyllti hæfniskilyrði.Lagt er til að Valdís Ósk Sigurðardóttir verði ráðin í stöðu fjármálastjóra hjá Sveitarfélaginu Hornafirði. Hún er með BS í sálfræði með viðskiptafræði sem aukagrein, hefur lokið námi sem viðurkenndur bókari og er með M.Acc. í reikningsskilum og endurskoðun. Að auki býr hún yfir umfangsmikilli þekkingu og reynslu af opinberri stjórnsýslu og störfum fyrir sveitarfélög.
Bæjarráð samþykkir að Valdís Ósk Sigurðardóttir verði ráðin í stöðu fjármálastjóra sveitarfélagsins og vísar ráðningunni til bæjarstjórnar til samþykktar þar sem um lykilstjórnanda hjá sveitarfélaginu er að ræða.
15.
Styrkbeiðni frá Rótarýklúbb Rangæinga vegna safngripa á Samgöngusafn Skógasafns
Málsnúmer 202602136
Rótarýklúbbur Rangæinga óskar eftir styrk að upphæð 180.000 kr. til þess að gera fyrstu rútu Austurleiðar hf., sem stofnað var 1963 að safngrip á Samgöngusafn Skógasafns.
Beiðni vísað til styrkjaumræðu fræðslu- og frístundanefndar og atvinnu- og menningamálanefndar.
16.
Innsent erindi varðandi samning um auglýsingar á upplýsingaskjám í sveitarfélaginu
Málsnúmer 202602142
Stjórn knattspyrnudeildar Sindra, frjálsíþróttadeild Sindra og sunddeild Sindra óskar eftir samtali um auglýsingar á upplýsingaskjáum til að auka útbreiðslu auglýsinga í sveitarfélaginu.
Bæjarráð samþykkir beiðnina og býður málsaðilum að koma á næsta fund bæjarráðs.
17.
Styrkbeiðni vegna kvikmyndar Hlyns Pálmasonar, Á LANDI OG SJÓ
Málsnúmer 202602152
Erindi frá kvikmyndaframleiðslufyrirtækinu STILL VIVID vegan nýrrar kvikmyndar Hlyns Pálmasonar, Á LANDI OG SJÓ, sem innblásin er af upprunasögu Hornafjarðar og húsaflutningnum frá Papósi árið 1897. Óskað er eftir fjárframlagi að upphæð 10 m.kr. til stuðnings við framleiðslu myndarinnar, sem fer fram í Hornafirði. Samkvæmt samstarfstillögunni er áætlað að staðbundin útgjöld verkefnisins á svæðinu nemi um 150 m.kr. á framleiðslutímanum.
Bæjarráð felur stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúa að vinna málið áfram.
18.
Fundargerðir - Samtök orkusveitarfélaga 2026
Málsnúmer 202602141
Fundargerðir stjórnar samtaka orkusveitarfélaga númer 88. og 89 lagðar fram.
Lagt fram til kynningar.
19.
Fundargerðir Heilbrigðisnefndar austurlands 2026
Málsnúmer 202602135
Fundargerð heilbrigðisnefndar austurlands númer 189 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
20.
Kynning - Styrktarsjóður EBÍ
Málsnúmer 202304015
Umsóknarfrestur til þess að sækja um í styrktarsjóð EBÍ er til febrúarloka, til úthlutunar í sjóðnum eru 8.000.000 kr.
Lagt fram til kynningar.