Bæjarráð Hornafjarðar
1214. fundur
24. mars 2026
kl.
10:00
-
12:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir
1. varamaður
Gauti Árnason
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Sigurjón Andrésson
bæjarstjóri
Jóna Benný Kristjánsdóttir
Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Fundargerð ritaði:
Arndís Lára Kolbrúnardóttir
Stjórnsýslu- og upplýsingafulltrúi
Dagskrá
1.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 112
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar númer 112 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
2.
Aðalfundur Félags slökkviliðisstjóra á Höfn 2027
Kostnaðaráætlun vegna aðalfund slökkvistjóra á Íslandi sem fyrirhuguð er á Hornafirði árið 2027 lögð fram.
Bæjarráð er jákvætt fyrir erindinu og felur slökkvistjóra að vinna málið áfram.
3.
Umsókn um lóð Ósland lóð J (Sandeyri 8)
Lóðarhafa lóða Sandeyri 8 og Sandeyri 10, sem úthlutaðar voru þann 13.02.2020, var veitur frestur á fundi bæjarráðs þann 09.12.2025 til að fá endurnýjað byggingarleyfi og til að hefja framkvæmdir til 10.02.2026.Byggingarleyfi hefur verið gefið út á ný þann 19.01.2026 en féll úr gildi sjálfkrafa vegna ógreiddra gjalda. Tilkynning þess efnis var send lóðarhafa þann 02.03.2026.Sveitarfélagið tilkynnti lóðarhafa um fyrirhugaða afturköllun lóðanna með tölvupósti þann 10.03.2026. Staðfesting á móttöku barst samdægurs en engar frekari upplýsingar eða beiðnir fylgdu póstinum.
Bæjarráð staðfestir afturköllun lóðarinnar og vísar málinu til umhverfis- og skipulagsnefndar.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
4.
Umsókn um lóð Ósland lóð K (Sandeyri 10)
Lóðarhafa lóða Sandeyri 8 og Sandeyri 10, sem úthlutaðar voru þann 13.02.2020, var veitur frestur á fundi bæjarráðs þann 09.12.2025 til að fá endurnýjað byggingarleyfi og til að hefja framkvæmdir til 10.02.2026.Byggingarleyfi hefur verið gefið út á ný þann 19.01.2026 en féll úr gildi sjálfkrafa vegna ógreiddra gjalda. Tilkynning þess efnis var send lóðarhafa þann 02.03.2026.Sveitarfélagið tilkynnti lóðarhafa um fyrirhugaða afturköllun lóðanna með tölvupósti þann 10.03.2026. Staðfesting á móttöku barst samdægurs en engar frekari upplýsingar eða beiðnir fylgdu póstinum.
Bæjarráð staðfestir afturköllun lóðarinnar og vísar málinu til umhverfis- og skipulagsnefndar.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
5.
Hofgarður Endurbætur
Lagt fram minnisblað starfsmanna umhverfis- og framkvæmdsviðs vegna endurbóta á Hofgarði. Lagt er til að samhliða breytingum á eldhúsi fara fram endurbætur á fráveitukerfi hússins til að koma því að hreinsivirki á svæðinu.
Bæjarráð samþykkir framlagða beiðni og vísar málinu til fjármálastjóra til mats á fjárhagslegum áhrifum.
6.
Hönnun - Endurbætur og viðhald í Ekru
Sveitarfélagið hefur leitað tilboða í verkið Endurbætur í Ekru félagsmiðstöð.Kostnaðaráætlun verkefnisins var 33.606.100 kr. Eitt tilboð barst í verkið frá Þingvað ehf, að upphæð 32.870.225 kr, þ.e. 97,81% af kostnaðaráætlun.
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði frá Þingvað ehf. og felur starfsmönnum umhverfis- og framkvæmdasviðs að ganga til verksamnings.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
7.
Samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Sveitarfélaginu Hornafirði 2026
Samþykkt um meðhöndlun úrgans í Sveitarfélaginu Hornafirði 2026 lögð fram til samþykktar.
Bæjarráð samþykkir samþykktina með áornum breytingum sem ræddar voru á fundinum og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
8.
Samþykkt um kjör fulltrúa Sveitarfélagsins Hornafjarðar
Sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs leggur fram fyrstu drög og tillögur að breytingu á samþykkt um kjör og starfsaðstæður kjörinna fulltrúa.
Sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálsviðs falið að vinna málið áfram.
9.
Staðfærsla fyrir Höfn í tengslum við nýjan miðbæ
Lögð eru fram gögn og staða málsins vegna staðfærslu fyrir höfn í tengslum við nýjan miðbæ.
Lagt fram til kynningar.
10.
Fundartími bæjarstjórnar
Lagt er til að bæjarstjórn haldi auka fund þann 28. apríl vegna fyrri umræðu ársreiknings. Fundur bæjarstjórnar í maí lendir á uppstigningardegi og er lagt til að sá fundur verði færður fram til 7. maí.
Bæjarráð samþykkir samhljóða breytta fundartíma bæjarstjórnar.
11.
Íbúafundur í Öræfum
Fundargerð frá íbúafundi í Öræfum þann 11. mars síðastliðin lögð fram. Fundargerðin hefur verið yfirfarin og samþykkt af íbúaráði og frummælendum á fundinum.
Lagt fram til kynningar.
12.
Skólamáltíðir útboð 2026
Minnisblað um útboðs á skólamáltíðum sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs lagt fram.
Bæjarstjóra falið að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.
13.
Fjölmenningarleg inngilding - Ósk um samstarf
Fjárhagsleg áhrif lögð fram vegna óskar um samstarf og styrk frá sveitarfélaginu við fjölmenningarlega inngildingu í FAS.
Bæjarráð samþykkir styrkinn og vísar málinu til viðaukagerðar.
14.
Fundarboð frá velferðarnefnd Alþingis um 312.mál - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir (stytting bótatímabils o.fl.)
Á fundi velferðarnefndar Alþingis sem haldinn verður miðvikudaginn 25. mars verður fjallað um 312. mál - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir (stytting bótatímabils o.fl.) Óskað er eftir fulltrúa sveitarfélagsins á fund nefndarinnar til þess að fjalla um málið.
Sviðsstjóra velferðarsviðs falið að mæta á fundinn.
15.
Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026
Fundargerð 995. fundar stjórnar Sambandsins frá 10. mars 2026 lögð fram.
Lagt fram til kynningar.