Bæjarráð Hornafjarðar
1223. fundur
2. júní 2026
kl.
10:00
-
10:50
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir
1. varamaður
Gauti Árnason
varaformaður
Ásgerður Kristín Gylfadóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Jóna Benný Kristjánsdóttir
Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Fundargerð ritaði:
Jóna Benný Kristjánsdóttir
Sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá
1.
Útboð/Verðkönnun Endurbætur Hofgarður
Umsjónar-, eftirlits- og ábyrgðarmaður fasteigna leggur fram fundargerð vegna opnunar tilboðs í eldhús í Hofgarði og upplýsir um stöðu málsins.Ekkert tilboð barst innan auglýsts frests.
Umsjónar-, eftirlits- og ábyrgðarmanni fasteigna er falið að vinna málið áfram.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
2.
Umsögn um útgáfu rekstrarleyfis - Veitingastaður í flokki II - A Veitingahús - Kaupmannshúsið Hafnarbraut 2- F2180639
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn um útgáfu rekstrarleyfis - Veitingastaður í flokki II - A Veitingahús - Kaupmannshúsið Hafnarbraut 2.
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn sbr. umsögn byggingafulltrúa og slökkviliðs.
3.
Umsögn um útgáfu gistileyfis- Gististaður í flokki II - G Íbúðir- Kaupmannshúsið Hafnarbraut 2 - F2180640
Erindi frá sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn við útgáfu gistileyfis - Gististaður í flokki II - G Íbúðir - Kaupmannshúsið Hafnarbraut 2 (8 manns).
Bæjarráð veitir samhljóða jákvæða umsögn.
4.
Framkvæmd Sindrabær breytingar 2024
Umsjónar-, eftirlits- og ábyrgðarmaður fasteigna leggur fram fundargerðir vegna opnana tilboða í ljós og ljósborð - stýringu í Sindrabæ. 1.Ljósborð-ljósastýringuKostnaðaráætlun var 2.500.000 kr.Það komu tvö tilboð í ljósborð - ljósastýringu: Exton 1.953.238 kr.Luxor tækjaleiga 3.566.500 kr. (uppfyllir ekki kröfur)Lagt er til að tilboði Exton í ljósborð - ljósastýringu verði tekið. 2.Sviðsljós SINDRABÆRKostnaðaráætlun var 10.500.000 kr.Sex tilboð bárust í sviðsljós Exton ehf. 9.995.246 kr. Atendi ehf 10.348.404 kr. Sonik Tækni 7.749.256 kr.Martölvan ehf. 3.990.160 kr. Martölvan ehf. 5.830.000 kr. Luxor tækjaleiga 13.384.224 kr. Yfirferð gagna stendur enn yfir til að tryggja að framangreind tilboð uppfylli skilyrði útboðsins.
Bæjarráð felur umsjónar-, eftirlits- og ábyrgðarmanni fasteigna að ganga til samninga við Exton ehf. varðandi ljósborð-ljósastýringu, þar sem félagið er lægstbjóðandi í verkið við opnun tilboða.
Bæjarráð felur umsjónar-, eftirlits- og ábyrgðarmanni fasteigna að ganga til samninga varðandi sviðsljós við lægstbjóðanda sem uppfyllir kröfur útboðsins þegar yfirferð gagna er lokið.
Samþykkt samhljóða.
Bæjarráð felur umsjónar-, eftirlits- og ábyrgðarmanni fasteigna að ganga til samninga varðandi sviðsljós við lægstbjóðanda sem uppfyllir kröfur útboðsins þegar yfirferð gagna er lokið.
Samþykkt samhljóða.
5.
Krafa um viðurkenningu ábyrgðar og greiðslu vegna tafa á deiliskipulagi og fjártjóns
Fyrir fund bæjarráðs þann 19.05.2026 var lögð fram krafa fyrrum lóðarhafa að Óslandsvegi 2 um viðurkenningu á bótaskyldu vegna afturköllunar lóðarinnar. Sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs var falið að útbúa drög að svörum í samvinnu við lögmann. Sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs óskaði eftir heimild bæjarráðs í tölvupósti til að senda svarbréf til lögmanns fyrrum lóðarhafa. Samþykki var veitt í tölvupósti.
Erindið var samþykkt samhljóða í tölvupósti dags. 28. maí 2026.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.