Fara í efni

Bæjarráð Hornafjarðar

1224. fundur
16. júní 2026 kl. 10:00 - 12:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir áheyrnarfulltrúi
Hjördís Edda Olgeirsdóttir varamaður
Ingibjörg Sveinsdóttir varaformaður
Reynir Ásgeirsson aðalmaður
Starfsmenn
Jóna Benný Kristjánsdóttir Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Jóna Benný Kristjánsdóttir Sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá
1.
Ráðning bæjarstjóra 2026 - 2030
Málsnúmer 202606056
Varaformaður bæjarráðs lagði til að Hjalti Þór Vignisson verði ráðinn bæjarstjóri Hornafjarðar kjörtímabilið 2026-2030 samkvæmt framlögðum ráðningarsamningi.
Bæjarráð samþykkti samhljóða að Hjalti Þór Vignisson verði ráðinn bæjarstjóri og fól varaformanni bæjarráðs að ganga frá ráðningunni með undirritun ráðningarsamnings þegar í stað.*

Að lokinni undirritun ráðningarsamnings tók Hjalti Þór Vignisson sæti á fundinum sem bæjarstjóri Hornafjarðar.

2.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 88
Málsnúmer 2605013F
Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar nr. 88 lögð fram.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

Bæjarráð vekur athygli á að Náttúruverndarstofnun, í samstarfi við Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið og Sveitarfélagið Hornafjörð, mun boða til opins fundar um málefni framtíðaruppbyggingar við Jökulsárlón.
3.
Fræðslu- og frístundanefnd - 137
Málsnúmer 2604015F
Fundargerð fræðslu- og frístundanefndar nr. 137 lögð fram.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
4.
Íbúaráð - Suðursveit og Mýrar - 12
Málsnúmer 2606003F
Fundargerð íbúaráðs í Suðursveit og á Mýrum nr. 12 lögð fram.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.

Bæjarráð felur starfsmönnum umhverfis- og framkvæmdasviðs að skoða ásýnd og uppbyggingu lóða í Holti og Hrollaugsstöðum og koma með tillögur að aðgerðum í samráði við íbúa.
5.
Viðaukar við fjárhagsáætlun 2026
Málsnúmer 202602038
Fjármálastjóri gerði grein fyrir viðauka nr. 4 við fjárhagsáætlun ársins 2026 og fjárhagslegum áhrifum hans. Meðfylgjandi yfirlit sýnir áhrif viðaukans á upphaflega samþykkta fjárhagsáætlun ársins. Viðbótarfjárheimild að fjárhæð 10,0 m.kr. verður mætt með lækkun á handbæru fé. 
Bæjarráð samþykkir samhljóða viðauka nr. 4 við fjárhagsáætlun ársins 2026.*
6.
Undirbúningur framkvæmdar - Báran - endurnýjun gervigrass
Málsnúmer 202605839
Óskað er eftir samþykki bæjarráðs til að fara í verðfyrirspurnarferli vegna endurnýjunar á gervigrasi í Bárunni.Lagt er fram minnisblað deildarstjóra þjónustu og framkvæmda vegna kostnaðaráætlunar ásamt viðbótargögnum.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að farið verði í verðfyrirspurnarferli vegna endurnýjunar á gervigrasi í Bárunni.
7.
Fyrirspurn um frágang götu við Sæbraut 5.
Málsnúmer 202604060
Sæbraut 5 - fullnaðarfrágangur eða bráðabirgðalausn.Minnisblað deildarstjóra þjónustu og framkvæmda lagt fram.
Bæjarráð felur deildarstjóra þjónustu- og framkvæmda að vinna áfram að lausn nr. 2 samkvæmt minnisblaði þar sem gert er ráð fyrir að regnvatnslagnir (ø200) verði lagðar í vestur eftir Sæbraut og tengdar við núverandi regnvatnslagnir auk þess sem hæð götu verði breytt samkvæmt upprunarlegri hönnun.

Samþykkt samhljóða.
8.
Aðalskipulag - athugasemd við tillögu vegna lóðar Hlíðartún 41
Málsnúmer 202606064
Erindi barst frá Sveinbjörgu Birnu Sveinbjörnsdóttur lögmanni, f.h. Ingileifar Kristjánsdóttur og Diðriks Sæmundssonar varðandi aðalskipulagstillögu sveitarfélagsins.Gerð er athugasemd við tillögu að aðalskipulagi er varðar landnotkunarflokk íbúðarhúss að Hlíðartúni 41. Eigendur óska eftir því að verslunar- og þjónustusvæði norðan við húsið (N1-reitur og húsin að Vesturbraut 2-6) verði stækkað til suðurs yfir lóðina þeirra.
Bæjarráð tekur ekki afstöðu til erindisins þar sem beiðni um breytingu á aðalskipulagi fer í gegnum lögformlegt ferli varðandi slíkar beiðnir.

Samþykkt samhljóða.

9.
Undirbúningur framkvæmdar - Malbikunarframkvæmdir 2026
Málsnúmer 202604055
Opnun tilboða í verkin Malbikun í Sveitarfélaginu Hornafirði og Jöfnun mulnings undir malbik.Fjögur tilboð bárust í verkið Malbikun í Sveitarfélaginu Hornafirði. Kostnaðaráætlun verksins hljóðar upp á 104.222.140 kr. Eftirfarandi tilboð bárust í verkið: Colas Ísland 119.044.489 kr., 114,22% af kostnaðaráætlun. Malbiksstöðin 119.365.158 kr., 114,53% af kostnaðaráætlun. Malbikun Akureyrar 105.720.680 kr., 101,44% af kostnaðaráætlun. Malbikun Norðurlands 95.943.536 kr., 92.06% af kostnaðaráætlun.Þrjú tilboð bárust í verkið Jöfnun mulnings undir malbik. Kostnaðaráætlun verksins hljóðar upp á 6.851.000 kr. Eftirfarandi tilboð bárust í verkið: Jökulfell ehf. 14.080.300 kr., 205,52% af kostnaðaráætlun. Rósaberg ehf. 29.607.500 kr., 432,16% af kostnaðaráætlun. Skaftverk ehf. 18.362.500 kr., 268,03% af kostnaðaráætlun. Við gerð útboðsgagna og kostnaðaráætlun var stuðst við tölur úr öðrum útboðum, en þar var einungis vinnuliðurinn sem skýrir mun á kostnaðaráætlun og tilboðum. Lagt er fram minnisblað deildarstjóra þjónustu og framkvæmda vegna opnunar tilboða.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að fela deildarstjóra þjónustu- og framkvæmda að ganga til samninga við lægstbjóðanda, Malbikun Norðurlands, í verkið Malbikun í Sveitarfélaginu Hornafirði, á grundvelli tilboðsins og útboðsgagna.

Bæjarráð samþykkir samhljóða að fela deildarstjóra þjónustu- og framkvæmda að ganga til samninga við lægstbjóðanda, Jökulfell ehf., í verkið Jöfnun mulnings undir malbik, á grundvelli tilboðsins og útboðsgagna.

Við gerð kostnaðaráætlunar vegna jöfnunar mulnings undir malbik var stuðst við tölur úr öðrum útboðum en þar var fyrir mistök einungis miðað við vinnuliðinn. Það útskýrir mun á kostnaðaráætlun og tilboðum sem bárust í verkið.
10.
Undirbúningur framkvæmdar - Útiæfingasvæði við EKRU
Málsnúmer 202604106
Opnun tilboða í verkið Útiæfingasvæði við EKRU.Þrír aðilar óskuðu eftir gögnum en engin tilboð bárust í verkið. Lagt er fram minnisblað deildarstjóra þjónustu og framkvæmda vegna þessa.
Bæjarráð felur deildarstjóra þjónustu og framkvæmda að vinna málið áfram.

Samþykkt samhljóða.
11.
Umhirða og ásýnd við fasteignir og götur í eigu sveitarfélagsins
Málsnúmer 202606077
Á síðustu dögum hefur farið af stað öflugt átak í umhirðu og fegrun á opnum svæðum í sveitarfélaginu, meðal annars við Víkurbraut, ásamt því að til skoðunar er snyrting gróðurs við íþróttavöllinn. Bæjarráð leggur ríka áherslu á að sveitarfélagið gangi á undan með góðu fordæmi og tryggi að fasteignir, götur og umhverfi í þess eigu séu ávallt til fyrirmyndar.
Bæjarráð fagnar því átaki sem hafið er og sendir skýr skilaboð um að vandað verði til verka við alla umhirðu á vegum sveitarfélagsins. Deildarstjóra þjónustu- og framkvæmda er falið að vinna stefnu og verkferla um ásýnd og umhirðu bæjarins og láta fjarlægja gróður við Víkurbraut meðfram íþróttasvæði.

Samþykkt samhljóða.
12.
Undirbúningur framkvæmdar - Sandbakki - gatnagerð
Málsnúmer 202606031
Óskað er eftir samþykki bæjarráðs til að fara í verðfyrirspurnarferli vegna gatnagerðar á Sandbakka.Lagt er fram minnisblað deildarstjóra þjónustu og framkvæmda vegna kostnaðaráætlunar ásamt frekari gögnum.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að farið verði í verðfyrirspurnarferli vegna gatnagerðar á Sandbakka.
13.
Mánavöllur - beiðni um úrbætur
Málsnúmer 202503087
Óskað er eftir samþykki fyrir framkvæmdum við endurbætur á hlaupabrautinni við Mánagarð. Samþykkt var í fyrra að fara í endurbæturnar en þá fékkst ekki verktaki til að vinna verkið. Núna hefur fundist verktaki til að taka verkefnið að sér.Hjálögð er kostnaðaráætlun vegna verksins ásamt minnisblaði fjármálastjóra um fjárhagsleg áhrif.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að farið verði í framkvæmdirnar í samræmi við framlagða kostnaðaráætlun vegna verkefnisins.
14.
Undirbúningur framkvæmdar - Sindravellir Endurnýjun
Málsnúmer 202606032
Verkefnastjóri uppbyggingar íþrótta- og skólamannvirkja óskar eftir ákvörðun um tilboð sem bárust í verðkönnun vegna verkfræðihönnunar fyrir endurnýjun Sindravalla.Tvö tilboð bárust. Kostnaðaráætlun verksins hljóðar upp á 6.160.000 kr. Eftirfarandi tilboð bárust í verkið:VSÓ 14.820.170 kr. með vsk., 240,73% af kostnaðaráætlunVerkís 17.924.200 kr. með vsk., 290,98% af kostnaðaráætlun
Bæjarráð samþykkir samhljóða að fela verkefnastjóra uppbyggingar íþrótta- og skólamannvirkja að hafna báðum tillögum en vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.

15.
Stígagerð við nýja hjúkrunarheimilið
Málsnúmer 202606026
Deildarstjóri þjónustu- og framkvæmda leggur fram minnisblað ásamt kostnaðaráætlun vegna göngustígs við nýja hjúkrunarheimilið.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að lokið verði við stígagerð við nýja hjúkrunarheimilið.
16.
Fyrirspurn til umhverfis- og skipulagsnefndar - hleðslustöð við Nettó
Málsnúmer 202510067
Bæjarráð óskaði eftir að sjá myndir í 3D af áformum um hleðslustöð við Nettó í tengslum við beiðni Orku Náttúrunnar um lóðarvilyrði. Skipulags- og byggingafulltrúi leggur fram umbeðin gögn.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að fela skipulags- og byggingafulltrúa, í samráði við sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs, að vinna samning um lóðarvilyrði vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar hleðslustöðva við Miðbæ. Um er að ræða uppbyggingu sem styður við orkuskipti og þjónar því almannahagsmunum.
17.
Umsókn um lóð Hafnarbraut 60C
Málsnúmer 202505092
Yrkir eignir ehf. óskar eftir fresti til 31.ágúst 2026 til þess að skila inn aðaluppdráttum fyrir lóðina Hafnarbraut 60C. Ástæðu fyrir þessari beiðni má sjá í fylgiskjali.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að veita frest til að skila inn aðaluppdráttum til 31. ágúst 2026.
18.
Umsókn um lóð - Kletthagi 22-28
Málsnúmer 202605824
Reynir Ásgeirsson vék af fundi undir þessum lið. Andreyn ehf. sækir um lóðirnar Kletthaga 22, 24, 26 og 28. Andreyn hefur áform um að byggja á lóðunum raðhús og verður framkvæmdin fjármögnuð með eigið fé.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að úthluta Andreyn ehf. lóðunum Kletthaga 22, 24, 26 og 28.*
19.
Umsókn um lóð - Kletthagi 14-20
Málsnúmer 202606019
Reynir Ásgeirsson vék af fundi undir þessum lið. Gistihúsið Seljavellir ehf. sækir um lóðirnar Klettahaga 14-20.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að úthluta Gistihúsinu Seljavöllum ehf. lóðunum að Klettahaga 14-20.*
20.
Umsókn um lóð - Kletthagi 30 spennustöð Rarik
Málsnúmer 202606023
Haraldur Jónatan Klausen sækir um lóð fyrir hönd Rarik undir spennistöð við enda götunnar í Kletthaga. Óskað er eftir að stofnuð verði lóðin Kletthagi 30 undir spennistöðina.
Bæjarráð felur skipulags- og byggingafulltrúa, í samráði við sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs, að útbúa samning um lóðarvilyrði og stofnun lóðarinnar.
21.
Umsókn um lóð - Vesturbraut 29
Málsnúmer 202509003
Lóðarhafi hefur ekki greitt staðfestingargjald innan tilskilins frests. Úthlutun lóðarinnar fellur því sjálfkrafa úr gildi í samræmi við 8. gr. reglna sveitarfélagsins um úthlutun lóða.
Bæjarráð staðfestir að úthlutun sé fallin úr gildi og felur verkefnastjóra umhverfis- og skipulagsmála að auglýsa lóðina lausa til úthlutunar.
22.
Umsókn um lóð - Vesturbraut 31
Málsnúmer 202509002
Lóðarhafi hefur ekki greitt staðfestingargjald innan tilskilins frests. Úthlutun lóðarinnar fellur því sjálfkrafa úr gildi í samræmi við 8. gr. reglna sveitarfélagsins um úthlutun lóða.
Bæjarráð staðfestir að úthlutun sé fallin úr gildi og felur verkefnastjóra umhverfis- og skipulagsmála að auglýsa lóðina lausa til úthlutunar.
23.
Gjaldtaka á nýjum kafla hringvegar
Málsnúmer 202606049
Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar, og Guðmundur Valur Guðmundsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs hjá Vegagerðinni kynntu áform um gjaldtöku á nýjum kafla hringvegar yfir Hornafjarðarfljót fyrir bæjarstjórn mánudaginn 8. júní sl.
Bæjarráð lýsir yfir áhyggjum af fyrirhuguðu fyrirkomulagi gjaldtöku og verðskrár vegna aksturs um nýja veginn yfir Hornafjarðarfljót. Bæjarstóra er falið að halda áfram samtali við Vegagerðina um ásættanlegar lausnir.
24.
Erindi til bæjarráðs: Krafa um afhendingu upplýsinga
Málsnúmer 202604093
Erindi frá Sveinbirni Imsland þar sem óskað er eftir svörum við spurningum í framhaldi af fyrra erindi hans frá 23. apríl 2026.
Sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs er falið að afla viðeigandi gagna í samvinnu við fjármálastjóra og vinna málið áfram.
25.
Kæra til úrskurðarnefndar um upplýsingamál - afhending gagna
Málsnúmer 202604112
Athugasemdir hafa borist vegna greinargerðar sveitarfélagsins í fyrra kærumáli Sveinbjörns Imslands til úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Frestur til að svara athugasemdum kæranda er til 23. júní næstkomandi. Það er í skoðun á stjórnsýslu- og fjármálasviði hvort og þá hvernig brugðist verði við athugasemdunum.
Bæjarráð felur sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að vinna drög að svari í samráði við fjármálastjóra og persónuverndarfulltrúa.
26.
Aukið samstarf Grunnskólans í Hofgarði við Grunnskóla Hornafjarðar
Málsnúmer 202604033
Sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs leggur fram minnisblað um málið.
Sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs er falið að vinna að hagkvæmri lausn á málinu.
27.
Forkaupsréttur við sölu á Ásgrími Halldórssyni
Málsnúmer 202606079
Hjalti Þór Vignisson vék af fundi undir þessum lið. Skinney-Þinganesi hf. hefur borist kauptilboð í Ásgrím Halldórsson SF-200, skipaskrárnúmer 2780 frá erlendum aðila. Verði af sölunni þá verður skipið verði selt án aflahlutdeilda sem verða fluttar til nýs Ásgríms Halldórssonar SF-250, skipaskrárnúmer 3058. Samkvæmt tilboðinu verður söluverðið 5.000.000 EUR án veiðarfæra og er miðað við að skipið verði afhent í sumar. Með vísan til 3. mgr. 12. gr. laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða er Sveitarfélaginu Hornafirði boðinn forkaupsréttur að skipinu Ásgrími Halldórssyni SF-200, skipaskrárnúmer 2780.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við að skipið verði selt og staðfestir að sveitarfélagið muni ekki nýta forkaupsrétt á skipinu.

Samþykkt samhljóða.
28.
Ósk um samstarf - Bjarnaneskirkja 50 ára afmæli - endurbætur á aðkomusvæði
Málsnúmer 202506045
Hjalti Þór Vignisson og Reynir Ásgeirsson viku af fundi undir þessum lið. Erindi frá Bjarnanesssókn þar sem óskað er eftir styrk til að endurnýja aðkomusvæði að Bjarnanesskirkju. Lögð er fram teikning, kostnaðaráætlun og beiðni um styrk ásamt minnisblaði frá starfsmönnum umhverfis- og framkvæmdavsiðs og minnisblaði fjármálastjóra vegna fjárhagslegra áhrifa.Í fjárhagsáætlun sveitarfélagsins er þegar gert ráð fyrir 10.000.000 kr. til verkefnisins.
Bæjarráð fagnar framtaki sóknarnefndar að bæta aðkomu að Bjarnanesskirkju í tilefni 50 ára vígsluafmælisins. Bæjarráð samþykkir samhljóða að veita sóknarnefnd Bjarnanesssóknar framlag að fjárhæð 6.000.000 kr. umfram það sem þegar var ákveðið í fjárhagsáætlun til að koma verkefninu vel af stað miðað við kostnaðaráætlun.

29.
Ósk um samfélagsframlag vegna þátttöku Sindra í Bónusdeild og uppbyggingar yngri flokka körfuknattleiks
Málsnúmer 202606078
Körfuknattleiksdeild Sindra óskar eftir samfélagsframlagi að fjárhæð 12.500.000 kr. á ári til tveggja ára vegna þátttöku Sindra í Bónusdeildinni og uppbyggingar deildarinnar.
Bæjarráð vísar málinu til fræðslu- og frístundanefndar til frekari umræðu. Bæjarstjóra er falið að vinna málið áfram og afla gagna.

Samþykkt samhljóða.
30.
Umsögn - Áform um frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum (Gjaldaákvæði hafnalaga)
Málsnúmer 202605860
Innviðaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 93/2026 - Áform um frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum (Gjaldaákvæði hafnalaga). Umsagnarfrestur er til og með 19.06.2026.Lögð er fram umsögn SASS um áformin.
Bæjarráð tekur undir umsögn SASS.

Samþykkt samhljóða.
31.
Skjalastefna sveitarfélagsins Hornafjarðar
Málsnúmer 202605768
Lögð er fram til fyrri umræðu skjalastefna Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að vísa skjalastefnu sveitarfélagsins til síðari umræðu í bæjarstjórn.*
32.
Persónuverndarstefna sveitarfélagsins Hornafjarðar
Málsnúmer 202605759
Lögð er fram til fyrri umræðu persónuverndarstefna Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að vísa persónuverndarstefnu sveitarfélagsins til síðari umræðu í bæjarstjórn.*
33.
Skýrsla vinnuhóps Öruggara Suðurlands um úti- og bæjarhátíðir
Málsnúmer 202606053
Skýrsla vinnuhóps Öruggara Suðurlands um úti- og bæjarhátíðar lögð fram.
Skýrslunni er vísað til umræðu og kynningar í ungmennaráði, fræðslu- og frístundanefnd og atvinnu- og menningarmálanefnd.

Samþykkt samhljóða.
34.
Umsögn um tækifærisleyfi til áfengisveitinga vegna Sólstöðuhátíðar Félags Íslenskra Fjallaleiðsögumanna - Langatorfa ehf.
Málsnúmer 202606054
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn bæjarráðs vegna umsóknar um tækifærisleyfi til áfengisveitinga á Sólstöðuhátíð Félags íslenskra Fjallaleiðsögumanna, AIMG sem haldin verður í Nýja fjárhúsinu í Svínafelli. Umsækjandi er Langatorfa ehf. Áætlaður gestafjöldi er 65. Athygli er vakin á undanþágu slökkviliðs sem er meðfylgjandi í málinu.
Bæjarráð veitir samhljóða jákvæða umsögn með þeim fyrirvörum sem koma fram í umsögn Slökkviliðs Hornafjarðar.

35.
Umsögn um tækifærisleyfi til áfengisveitinga vegna sölutjalds á hátíðarsvæði Humarhátíðar - Ungmennafélagið Sindri
Málsnúmer 202606052
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er umsagnar bæjarráðs vegna umsóknar um tækifærisleyfi til áfengisveitinga í sölutjaldi á hátíðarsvæði Humarhátíðar. Umsækjandi er Ungmennafélagið Sindri. Áætlaður gestafjöldi er 300 manns.
Bæjarráð veitir samhljóða jákvæða umsögn.
36.
Umsögn um útgáfu rekstrarleyfis gististaðar í flokki II - H Frístundahús - Skaftafell Lodges, Skaftafelli 3c - F2523251
Málsnúmer 202606055
Erindi frá sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er umsagnar um rekstrarleyfi gististaðar í flokki II - H Frístundahús - Skaftafells Lodges, Skaftafelli 3c.
Bæjarráð veitir samhljóða jákvæða umsögn.
37.
Umsögn um tækifærisleyfi til áfengisveitinga vegna humarhátíðardansleiks í íþróttahúsi Hafnar - Ungmennafélagið Sindri
Málsnúmer 202606050
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn um tækifærisleyfi vegna áfengisveitinga í tilefni af humarhátíðardansleik í íþróttahúsi Hafnar. Gestafjöldi 550 manns.
Bæjarráð veitir samhljóða jákvæða umsögn.
38.
Umsögn um tækifærisleyfi Humarhátíðar á Höfn - Humarhátíð á Höfn
Málsnúmer 202606051
Erindi frá sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er umsagnar bæjarráðs vegna umsóknar um tækifærisleyfi fyrir Humarhátíð á Höfn. Umsækjandi er Humarhátíð á Höfn. Áætlaður gestafjöldi er 2000 manns.
Bæjarráð veitir samhljóða jákvæða umsögn.
39.
Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026
Málsnúmer 202601163
Fundargerðir 999. og 1000. funda stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga lagðar fram.
Fundargerðirnar eru lagðar fram til kynningar.
40.
Fundargerðir SASS 2026
Málsnúmer 202601008
Fundargerð 636. og 637. fundar stjórnar SASS lögð fram.
Fundargerðirnar eru lagðar fram til kynningar.

*Samkvæmt 7. mgr. 32. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Hornafjarðar fer bæjarráð með sömu heimildir og bæjarstjórn hefur ella á meðan á sumarleyfi bæjarstjórnar stendur. Samkvæmt 351. fundi bæjarstjórnar Hornafjarðar þann 4. júní 2026 fer bæjarráð með fullt umboð til afgreiðslu mála á meðan á sumarleyfi bæjarstjórnar stendur, frá og með 16. júní 2026 til 20. ágúst 2026.