Bæjarráð Hornafjarðar
1225. fundur
30. júní 2026
kl.
10:00
-
14:15
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir
áheyrnarfulltrúi
Gauti Árnason
formaður
Ingibjörg Sveinsdóttir
varaformaður
Reynir Ásgeirsson
aðalmaður
Starfsmenn
Jóna Benný Kristjánsdóttir
Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Hjalti Þór Vignisson
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Jóna Benný Kristjánsdóttir
Sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá
1.
Fræðslu- og frístundanefnd - 138
Fundargerð fræðslu- og frístundanefndar nr. 138 lögð fram.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
2.
Atvinnu- og menningarmálanefnd - 89
Fundargerð atvinnu- og menningarmálanefndar nr. 89 lögð fram.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
Bæjarráð þakkar humarhátíðarnefnd og öðrum sjálfboðaliðum fyrir vel heppnaða hátíð.
Bæjarráð þakkar humarhátíðarnefnd og öðrum sjálfboðaliðum fyrir vel heppnaða hátíð.
3.
Íbúaráð Öræfum - 11
Fundargerð íbúaráðs í Öræfum nr. 11 lögð fram til kynningar.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
4.
Íbúaráð - Nes og Lón - 12
Fundargerð íbúaráðs í Nesjum og Lóni nr. 12 lögð fram til kynningar.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
5.
Fjölmenningarráð - 2026-2030
Samkvæmt erindisbréfi fjölmenningarráðs, ber verkefnastjóra fjölmenningar að tilnefna þrjá fulltrúa úr samfélaginu, þvert á atvinnulíf, fræðslu- og frístundarmál og velferðarmál. Þeir íbúar sem eru tilnefndir skulu vera innflytjendur. Verkefnastjóri fjölmenningar- og gæðamála leggur til að eftirfarandi aðilar verði kosnir í fjölmenningarráð: Courtney Michelle BrooksGoran BasrakNejra Mesetovic
Bæjarráð frestar málinu til næsta fundar þar sem jafnframt verður gerð uppfærð tillaga að kjörnum fulltrúum í ráðinu að öðru leyti.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
6.
Erindisbréf nefnda og ráða
Erindisbréf stýrihóps um uppbyggingu nýrra íþróttamannvirkja lagt fram til samþykktar. Lagt er til að bæjarráð kjósi eftirfarandi aðila í hópinn: Björgvin Óskar Sigurjónsson formaðurHjördís Edda Olgeirsdóttir varaformaðurEyrún Fríða ÁrnadóttirReynir Ásgeirsson
Bæjarráð samþykkir samhljóða framlagt erindisbréf*
Bæjarráð samþykkir samhljóða tillögu um nefndarmenn.*
Bæjarráð samþykkir samhljóða tillögu um nefndarmenn.*
7.
Viðaukar við fjárhagsáætlun 2026
Fjármálastjóri gerði grein fyrir viðauka nr. 5 við fjárhagsáætlun ársins 2026. Með viðaukanum er óskað eftir viðbótarfjárheimild að fjárhæð 9,255 m.kr., sem gert er ráð fyrir að verði mætt með lækkun á handbæru fé. Meðfylgjandi yfirlit sýnir fjárhagsleg áhrif viðaukans á samþykkta fjárhagsáætlun sveitarfélagsins.
Bæjarráð samþykkir samhljóða viðauka nr. 5 við fjárhagsáætlun ársins 2026.*
8.
Skólamáltíðir útboð 2026
Drög að samningi við Vigdísarholt um skólamáltíðir lögð fram til umræðu og kynningar.
Bæjarráð felur sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs að vinna málið áfram og gerir ekki athugasemdir við framlögð drög að samningi.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
9.
Aukið samstarf Grunnskólans í Hofgarði við Grunnskóla Hornafjarðar
Drög að viðauka við samning um skólaakstur lögð fram til kynningar og umræðu.
Bæjarráð felur sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs að ganga frá viðauka við samning um skólaakstur við 785 FHM í samræmi við framlögð drög að viðauka. Málinu er vísað til fjármálastjóra til viðaukagerðar.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
10.
Gjaldskrár fræðslu- og frístundasviðs sem breytast 1. ágúst 2026
Lagðar eru fram gjaldskrár fræðslu- og frístundasviðs. Eftirfarandi var bókað um málið í fræðslu og frístundanefnd 15. júní 2026:"Fræðslu- og frístundanefnd leggur til að fæðisgjöld verði lögð niður í leikskólum og lengdri viðveru frá og með 1. ágúst næstkomandi. Einnig er lagt til að systkinaafslætti verði breytt í vistunargjöldum. Í stað þess að hann komi fyrst af elsta barni, þá verði 35% afsláttur af gjöldum þegar það eru tvö systkini í vistun, 50% af gjöldum hjá þremur systkinum í vistun og 60% þegar börnin eru orðin fjögur eða fleiri.Að öðru leyti verði vísitöluhækkun á gjaldskrám sbr. hækkun á vísitölu frá ágúst 2025-maí 2026 sem er 4,1%.Sviðsstjóra falið að fá greiningu á fjárhagslegum áhrifum og málinu vísað til bæjarráðs."
Bæjarráð tekur undir tillögur fræðslu- og frístundanefndar að öðru leyti en því að lagt er til að gjaldskrár fræðslu- og frístundasviðs hækki í samræmi við verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands um 2,5% í stað 3,5% hækkunar gjalda sem gert er ráð fyrir í forsendum fjárhagsáætlunar.
Málinu er vísað til fjármálastjóra til mats á fjárhagslegum áhrifum og viðaukagerðar.
Samþykkt samhljóða.
Málinu er vísað til fjármálastjóra til mats á fjárhagslegum áhrifum og viðaukagerðar.
Samþykkt samhljóða.
11.
Styrkbeiðni við lokafrágang á Motocrossbraut
ASK hefur staðið fyrir uppbyggingu á síðustu árum. Um síðustu helgi var fjölmennt námskeið sem dró að heima- og aðkomumenn. Í júlí er fyrirhugað Íslandsmót á brautinni og í tengslum við það þarf að stækka rásplanið. Steypa á nokkra metra sitthvorum megin við planið. Auk þess er gert ráð fyrir að setja glugga í vallarhúsið þar sem tímatakan fer fram. Þetta er lokahnykkur á uppbyggingu brautarinnar og ekki fyrirséð frekari útgjöld nema til viðhalds mannvirkja. Styrkbeiðnin hljóðar upp á 3,5 milljónir króna.
Bæjarráð samþykkir styrkbeiðnina samhljóða og vísar málinu til fjármálastjóra til viðaukagerðar.*
12.
Málefni Fjallaskóla Íslands ses
Eyrún Fríða Árnadóttir vék af fundi undir þessum lið. Fjallaskóli Íslands varð til upp úr fjallaleiðsögunámi við Framhaldsskólann í Austur-Skaftafellssýslu (FAS). Fyrsta starfsári skólans er lokið. Næsta önn hefst 19. ágúst með skólasetningu. Áskorun sem skólinn stendur frami fyrir er tvíþætt, annars vegar að fá áframhaldandi heimild til rekstrar og hins vegar að fá vilyrði fyrir fleiri nemendaígildum.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna áfram að málinu og skoða hvernig sveitarfélagið getur aðstoðað skólann við að tryggja áframhaldandi heimild til rekstrar.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
13.
Hríshóll æfingaaðstaða barna í golfi
Golfklúbbur Hornafjarðar óskar eftir heimild til að fá að útbúa æfingabrautir fyrir börn á Hríshól við golfvöllinn, sbr. framlagða teikningu. Börnum hefur fjölgað mikið í klúbbnum og er komin upp brýn þörf fyrir æfingasvæði fyrir börn þar sem þau geta leikið golf. Hóllinn er opið svæði samkvæmt aðalskipulagi frá 2012 - 2030. Hann er ekki mikið notaður eins og hann er í dag og ætlar klúbburinn að sjá um að slá og viðhalda brautunum.
Bæjarráð fagnar hugmyndinni og felur sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs að vinna málið áfram með golfklúbbnum. Mikilvægt er að kynna verkefnið vel fyrir nágrönnum svæðisins.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
14.
Uppbygging innviða á Jökulsárlóni
Miðvikudaginn 24. júní stóðu Náttúruverndarstofnun, Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið og Sveitarfélagið Hornafjörður sameiginlega að opnum íbúafundi á Hrollaugsstöðum í Suðursveit um framtíðaruppbyggingu við Jökulsárlón. Fundurinn var liður í áframhaldandi samráði við íbúa og aðra hagsmunaaðila um þróun svæðisins. Markmið hans var að kynna stöðu verkefnisins, fara yfir þá vinnu sem þegar hefur verið unnin og ræða næstu skref í ferlinu.
Bæjarráð leggur áherslu á að þjóðgarðurinn uppfylli öll þau markmið sem honum voru sett við stofnun og að fyrirhugað útboð uppbyggingar og reksturs við Jökulsárlón taki mið af þeim markmiðum.
Bæjarráð tekur undir bókun svæðisráðs suðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs frá 130. fundi ráðsins þann 19. ágúst 2024 um mikilvægi þess að sú leið sem verður farin tryggi áframhaldandi stjórn þjóðgarðsins á þeim þáttum sem snúa að markmiðum hans um umgengni um náttúruna, upplifun gesta, sjálfbæra nýtingu og styrkingu nærsamfélagsins.
Bæjarráð óskar eftir að ráðuneytið endurskoði þær forsendur sem settar eru fram í valkostagreiningunni og taki sjónarmið svæðisráðs suðursvæðis og svæðisstjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs til greinar í þeirri vinnu.
Bæjarráð leggur áherslu á að við endurskoðun á atvinnustefnu Vatnajökulsþjóðgarðs verði horft til byggðasjónarmiða sem lög um Vatnajökulsþjóðgarð byggja meðal annars á. Vernd náttúru, útivist og sjálfbær byggðaþróun eru öll jafngild markmið þjóðgarðsins og þurfa öll að endurspeglast í reglum um úthlutun rekstrarleyfa og annarra atvinnuréttinda.
Bæjarráð telur eðlilegt að við mat á umsóknum um atvinnutengda starfsemi verði, auk annarra málefnalegra sjónarmiða, horft til reynslu og staðþekkingar, langtímafjárfestinga, samstarfs við nærsamfélagið, framlags til atvinnu- og samfélagsuppbyggingar og getu til að veita örugga þjónustu. Slík sjónarmið samræmast markmiðum þjóðgarðsins og stuðla að því að verðmætasköpun sem byggir á auðlindum hans skili sér með raunverulegum hætti til nærsamfélaganna.
Bæjarráð leggur jafnframt áherslu á að rekstraraðilar búi við fyrirsjáanlegt rekstrarumhverfi þar sem skýrar reglur og eðlilegur gildistími leyfa skapa forsendur fyrir ábyrgri uppbyggingu, fjárfestingum og atvinnusköpun. Þá telur bæjarráð mikilvægt að fyrirkomulag gjaldtöku vegna atvinnustarfsemi innan þjóðgarðsins verði gagnsætt, fyrirsjáanlegt og mótað í nánu samráði við sveitarfélög, svæðisráð, svæðisstjórn Vatnajökulsþjóðgarðs og hagaðila.
Bæjarráð óskar eftir opnu og hreinskilnu samtali við ráðuneytið um næstu skref samningagerðar í ljósi þeirrar óvissu og ófyrirsjáanleika sem fyrirhugað útboð skapar rekstraraðilum á svæðinu.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að óska eftir fundi með ráðherra um málið.
Samþykkt samhljóða.
Bæjarráð tekur undir bókun svæðisráðs suðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs frá 130. fundi ráðsins þann 19. ágúst 2024 um mikilvægi þess að sú leið sem verður farin tryggi áframhaldandi stjórn þjóðgarðsins á þeim þáttum sem snúa að markmiðum hans um umgengni um náttúruna, upplifun gesta, sjálfbæra nýtingu og styrkingu nærsamfélagsins.
Bæjarráð óskar eftir að ráðuneytið endurskoði þær forsendur sem settar eru fram í valkostagreiningunni og taki sjónarmið svæðisráðs suðursvæðis og svæðisstjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs til greinar í þeirri vinnu.
Bæjarráð leggur áherslu á að við endurskoðun á atvinnustefnu Vatnajökulsþjóðgarðs verði horft til byggðasjónarmiða sem lög um Vatnajökulsþjóðgarð byggja meðal annars á. Vernd náttúru, útivist og sjálfbær byggðaþróun eru öll jafngild markmið þjóðgarðsins og þurfa öll að endurspeglast í reglum um úthlutun rekstrarleyfa og annarra atvinnuréttinda.
Bæjarráð telur eðlilegt að við mat á umsóknum um atvinnutengda starfsemi verði, auk annarra málefnalegra sjónarmiða, horft til reynslu og staðþekkingar, langtímafjárfestinga, samstarfs við nærsamfélagið, framlags til atvinnu- og samfélagsuppbyggingar og getu til að veita örugga þjónustu. Slík sjónarmið samræmast markmiðum þjóðgarðsins og stuðla að því að verðmætasköpun sem byggir á auðlindum hans skili sér með raunverulegum hætti til nærsamfélaganna.
Bæjarráð leggur jafnframt áherslu á að rekstraraðilar búi við fyrirsjáanlegt rekstrarumhverfi þar sem skýrar reglur og eðlilegur gildistími leyfa skapa forsendur fyrir ábyrgri uppbyggingu, fjárfestingum og atvinnusköpun. Þá telur bæjarráð mikilvægt að fyrirkomulag gjaldtöku vegna atvinnustarfsemi innan þjóðgarðsins verði gagnsætt, fyrirsjáanlegt og mótað í nánu samráði við sveitarfélög, svæðisráð, svæðisstjórn Vatnajökulsþjóðgarðs og hagaðila.
Bæjarráð óskar eftir opnu og hreinskilnu samtali við ráðuneytið um næstu skref samningagerðar í ljósi þeirrar óvissu og ófyrirsjáanleika sem fyrirhugað útboð skapar rekstraraðilum á svæðinu.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að óska eftir fundi með ráðherra um málið.
Samþykkt samhljóða.
15.
Breyting á deiliskipulagi við Jökulsárlón
Lögð er fram verkefnis- og matslýsing vegna breytingar á deiliskipulagi við Jökulsárlón. Náttúruverndarstofnun hefur ákveðið að vinna breytingu á deiliskipulagi vegna breyttra forsendna sem snúa að því að endurskoða staðsetningu megin þjónustusvæðisins austan megin Jökulsár. Breytingar taka til uppbyggingar aðstöðu, aðkomu að svæðinu og bílastæðum, tengingum innan svæðis, legu hringvegar og tengingar við hann. Lýsingin var auglýst til umsagnar frá 12.1.2026 til 9.2.2026 og bárust 10 umsagnir. Fyrir fundinum liggur tillaga að viðbrögðum við innkomnum umsögnum. Lagt er til að lýsing verði uppfærð í samræmi við svör við umsögnum.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að athugasemdir sem bárust verði hafðar til hliðsjónar við áframhaldandi vinnu við skipulagstillögu.*
16.
Undirbúningur framkvæmdar - Sindravellir Endurnýjun
Verkefnastjóri uppbyggingar íþrótta- og skólamannvirkja óskar eftir samþykki bæjarráðs fyrir að fela verkfræðiráðgjafa að annast hönnun vegna endurnýjunar framkvæmda á Sindravelli, að loknum samningaviðræðum við bjóðendur í fyrri verðfyrirspurn. Viðræður voru við VSÓ og Verkís. Niðurstöður viðræðna voru eftirfarandi: VSÓ: 13.338.153 kr. með vsk. með því skilyrði að samningurinn yrði færður yfir í tímagjald í stað fasts verðs, þar sem framangreind fjárhæð yrði áætlaður kostnaður til verkloka.Verkís: 13.671.000 kr. með vsk. þar sem gert er ráð fyrir að sveitarfélagið útbúi útboðsgögnin og að verkfræðingar vinni eingöngu tæknilega kafla eftir þörfum.Lagt er til að bæjarráð samþykki að ganga til samninga við VSÓ vegna framkvæmdanna í ljósi lægri kostnaðaráætlunar og víðtækrar reynslu af verkefnum af þessu tagi. Þá er óskað eftir að bæjarráð samþykki að farið verði í viðbótarrannsóknir á jarðvegsaðstæðum og jarðvegsuppbyggingu til að draga úr áhættu í verkefninu, með þeim fyrirvara að kostnaðaráætlanir sem lagðar verða fram vegna þess séu sanngjarnar.
Bæjarráð felur verkefnastjóra uppbyggingar íþrótta- og skólamannvirkja að ganga til samninga við VSÓ á grundvelli framlagðs tilboðs og útboðsgagna þó með þeim skilyrðum að þak verði sett á tímafjölda.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að farið verði í viðbótarrannsóknir á jarðvegsaðstæðum og jarðvegsuppbyggingu til að draga úr áhættu í verkefninu.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að farið verði í viðbótarrannsóknir á jarðvegsaðstæðum og jarðvegsuppbyggingu til að draga úr áhættu í verkefninu.
17.
Undirbúningur framkvæmdar - Báran - endurnýjun gervigrass
Báran-endurnýjun á yfirborðsefnum - opnun tilboða í 1. og 2. áfanga.Minnisblað deildarstjóra þjónustu og framkvæmda lagt fram.Kostnaðaráætlun vegna 1. áfanga er 24.084.800 kr. Fjögur tilboð bárust í 1. áfanga framkvæmdanna og eru þau eftirfarandi: Metatron 18.552.208 kr. eða 77,03% af kostnaðaráætlun. Metratron með aukaverkum 51.355.984 kr. eða 213,23% af kostnaðaráætlun.Skaftverk ehf. 13.430.800 kr. eða 55,76% af kostnaðaráætlun. Skaftverk ehf. með aukaverkum 22.754.800 kr. eða 94.48% af kostnaðaráætlun. Kostnaðaráætlun vegna 2. áfanga er 46.434.000 kr. Þrjú tilboð bárust í 2. áfanga framkvæmdanna og eru þau eftirfarandi: Altis ehf. 34.986.960 kr. eða 75,35% af kostnaðaráætlun. Exton 51.904.520 kr. eða 111,78% af kostnaðaráætlun. Metatron ehf. 48.687.440 kr. eða 104,85% af kostnaðaráætlun. Lagt er til að gengið verði til samninga við Skaftverk ehf. vegna 1. áfanga. Lagt er til að öllum tilboðum verði hafnað vegna áfanga 2. Tilboð Altis og Metatron eru ógild þar sem þau uppfylla ekki skilyrði samkvæmt útboðinu en tilboð Exton er óaðgengilegt þar sem það er yfir kostnaðaráætlun.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að fela deildarstjóra þjónustu- og framkvæmda að ganga til samninga við lægstbjóðanda, Skaftverk ehf., vegna 1. áfanga á grundvelli tilboðs án aukaverka og útboðsgagna.
Bæjarráð felur deildarstjóra þjónustu- og framkvæmda að hafna öllum tilboðum vegna áfanga 2 og ganga til samningsviðræðna við bjóðendur.
Samþykkt samhljóða.
Bæjarráð felur deildarstjóra þjónustu- og framkvæmda að hafna öllum tilboðum vegna áfanga 2 og ganga til samningsviðræðna við bjóðendur.
Samþykkt samhljóða.
18.
Innheimta gjalda skv.gjaldskrá umhverfis- og skipulagsfulltrúa
Lagt fram minnisblað sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs um innheimtu gjalda skv. gjaldskrá umhverfis- og skipulagsfulltrúa.
Bæjarráð felur sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs að vinna málið áfram og fá álit lögmanns varðandi framhaldið.
19.
Gatnagerðargjöld Hafnarbraut 60A
Málið varðar innheimtu byggingar- og gatnagerðargjalda vegna fasteignarinnar að Hafnarbraut 60A.
Bæjarráð felur fjármálastjóra að fylgja gjaldskrá sveitarfélagsins.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
20.
Lóðarvilyrði - Kletthagi 30
Drög að samningi um lóðarvilyrði vegna beiðni Rarik ohf. um lóð undir spennistöð að Klettahaga 30 lögð fram til afgreiðslu.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að fela bæjarstjóra og sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs að vinna málið áfram.
21.
Lóðarvilyrði - hleðslustöðvar
Drög að samningi um lóðarvilyrði vegna beiðni Orku Náttúrunnar um lóð á milli Hafnarbrautar og Miðbæjar, undir hleðslustöð og leiksvæði, lögð fram til afgreiðslu.
Bæjarráð felur sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs í samráði við sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að samræma samningsumhverfi vegna lóða undir hleðslustöðvar.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
22.
Framkvæmd - Malbikun og jöfnunarlag 2026
Bæjarráð óskaði eftir yfirliti yfir malbiksframkvæmdir sem eru framundan í sveitarfélaginu. Umbeðnar upplýsingar lagðar fram.
Lagt fram til kynningar.
23.
Málefni Gagnaveitu Hornafjarðar
Lagt fram minnisblað frá lögmanni Lagastoða um hugsanlegt söluferli á Gagnaveitu Hornafjarðar. Lagt fram minnisblað frá KPMG um verðmatsúreikninga á Gagnaveitu Hornafjarðar.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirbúa söluferli í samræmi við þær áherslur sem koma fram í áliti lögmanns.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
24.
Framtíð Íbúðafélags Hornafjarðar
Skipa þarf nýja stjórn fyrir Íbúðafélag Hornafjarðar. Til þess þarf að stofna fulltrúaráð samkvæmt samþykktum og lögum um almennar íbúðir.
Bæjarráð samþykkir að stofnað verði fulltrúaráð fyrir Íbúðafélag Hornafjarðar hses. og felur fjármálastjóra að hafa samband við íbúa vegna tilnefningar tveggja aðila í ráðið og heimilar fjármálastjóra að skipa fjóra aðra aðila í ráðið.
Samþykkt samhljóða.*
Samþykkt samhljóða.*
25.
Afnot af kjallara í Ekru
Formaður Félags eldri Hornfirðinga hefur óskað eftir að fá rými í kjallara Ekrunnar til afnota fyrir félagið þar sem sjúkrabílar voru áður hýstir.
Bæjarráð er jákvætt fyrir erindinu og vísar því til umfjöllunar í velferðarnefnd.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
26.
Heilsuþjálfun í Hornafirði - Spretthópur um heilsueflingu eldri borgara
Óskað er eftir að starfstími spretthóps um heilsueflingu eldri borgara verði framlengdur til loka september 2026.Spretthópurinn hafði ekki tök á að byrja í mars eins og lagt var upp með en vinnu hópsins átti að ljúka 30. maí 2026 samkvæmt erindisbréfi. Því er óskað eftir framlengingu á starfstíma hópsins. Lagt er til að þrír fundir og vinnustofa verði haldin frá lokum ágústmánaðar til loka september.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að framlengja starfstíma spretthópsins til loka september 2026.*
27.
Erindi til bæjarráðs: Krafa um afhendingu upplýsinga
Erindi barst frá Sveinbirni Imsland 23. apríl 2026 þar sem óskað var svara bæjarráðs við spurningum. Erindinu var svarað í fundargerð bæjarráðs nr. 1219. Þann 11. maí bárust frekari spurningar út frá svörum bæjarráðs sem beint var til þáverandi bæjarstjóra. Á fundi bæjarráðs nr. 1224 þann 16. júní sl. var erindið tekið fyrir og lagt fyrir sviðsstjóra stjórnsýslusviðs og fjármálastjóra að afla gagna vegna erindisins.
Bæjarráð felur sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að birta svarbréf bæjarráðs í íbúagátt.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
28.
Kæra til úrskurðarnefndar um upplýsingamál - afhending gagna
Greinargerð sveitarfélagsins ásamt minnisblaði sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs og fjármálastjóra vegna kærumáls hjá úrskurðarnefnd um upplýsingamál lögð fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
29.
Kæra til úrskurðarnefndar um upplýsingamál - afhending gagna II
Sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs leggur fram tölvupóstsamskipti við starfsmann úrskurðarnefndar um upplýsingamál þar sem upplýst er að mál nr. ÚNU26040019 hafi verið fellt niður hjá nefndinni eftir að svör sveitarfélagsins bárust.
Lagt fram til kynningar.
30.
Breyting á prókúruhafa
Sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs leggur fram tilkynningu um breytingu á prókúruhöfum sveitarfélagsins til samþykktar. Lagt er til að Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri, Jóna Benný Kristjánsdóttir sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs og Valdís Ósk Sigurðardóttir fjármálastjóri verði prókúruhafar sveitarfélagsins.
Bæjarráð samþykkir samhljóða tillögu að prókúruhöfum sveitarfélagsins.*
31.
Skjalastefna sveitarfélagsins Hornafjarðar
Skjalastefna sveitarfélagsins Hornafjarðar lögð fram til síðari umræðu og afgreiðslu.
Bæjarráð samþykkir samhljóða skjalastefnu sveitarfélagsins.*
32.
Persónuverndarstefna sveitarfélagsins Hornafjarðar
Persónuverndarstefna sveitarfélagsins lögð fram til síðari umræðu.
Bæjarráð samþykkir samhljóða persónuverndarstefnu sveitarfélagsins.*
33.
Umsögn um útgáfu rekstrarleyfis - Gistileyfi í flokki II - H Frístundahús - Syðri - Fjörður.Fjörður Lóð 1- F2290995
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn bæjarráðs vegna umsóknar Birtu Ljósmynda ehf., kt. 610513-0180, um leyfi til reksturs gististaðar í flokki II - H Frístundahús í Syðri- Firði, F2290995. Hámarksgestafjöldi 18.
Bæjarráð veitir samhljóða jákvæða umsögn, miðað við 10 gesti í allt að 5 herbergjum, í samræmi við umsögn byggingafulltrúa og slökkviliðs.
34.
Framboðsfrestur til formanns Sambands íslenskra sveitarfélaga
Vakin er athygli á að framboðsfrestur til formanns Sambands íslenskra sveitarfélaga er til 15. júlí 2026.
Lagt fram til kynningar.
35.
Ársreikningur Samtaka Orkusveitarfélaga fyrir 2025
Ársreikningur Samtaka Orkusveitarfélaga er lagður fram til kynningar í samræmi við samþykktir samtakanna. Samkvæmt þeim skal stjórn samþykkja ársreikning eftir að hann hefur verið kynntur aðildarsveitarfélögum og yfirfarinn af skoðunarmönnum, en í kjölfarið verður hann lagður fram á næsta aðalfundi til staðfestingar.
Lagt fram til kynningar.
36.
Útboð/Verðkönnun Endurbætur Hofgarður
Umsjónar-, eftirlits- og ábyrgðarmaður fasteigna lagði fram fundargerð vegna opnunar tilboða í endurbætur í Hofgarði. Kostnaðaráætlun er upp á 43.471.310 kr. Eftirfarandi tvö tilboð bárust í verkið: Heimæð ehf. 42.464.417 kr. (eftir yfirferð 42.777.862 kr.) 98.40% af kostnaðaráætlun. Capital hús ehf. 65.225.625 kr. - 150.04% af kostnaðaráætlun. Lagt var til að gengið yrði til samninga við lægstbjóðanda í verkið á grundvelli framlagsð tilboðs og útboðsgagna. Bæjarráð samþykkti samhljóða í tölvupósti dags. 23. júní 2026 að umsjónar-, eftirlits- og ábyrgðarmaður fasteigna gengi til samninga við lægstbjóðanda.
Lagt fram til kynningar.
37.
Umsögn um tækifærisleyfi til áfengisveitinga vegna Sólstöðuhátíðar Félags Íslenskra Fjallaleiðsögumanna - Langatorfa ehf.
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn bæjarráðs vegna umsóknar um tækifærisleyfi til áfengisveitinga í Nýja fjárhúsinu í Svínafelli. Umsækjandi er Langatorfa ehf., kt. 590517-2320. Áætlaður gestafjöldi er 65. Athygli er vakin á undanþágu slökkviliðs sem er meðfylgjandi í málinu. Bæjarráð hafði þegar veitt jákvæða umsögn varðandi Sólstöðuhátíð Félags íslenskra Fjallaleiðsögumanna þann 20. júní 2026. Langatorfa ehf. óskaði eftir að dagsetning þess leyfis yrði færð til 27. júní 2026 og veitti bæjarráð jákvæða umsögn vegna þess í tölvupósti, dags. 18. júní 2026.
Lagt fram til kynningar.
38.
Umsögn um tækifærisleyfi Heima-Höfn, viðburður fyrir ungmenni - Hafið - Kartöfluhúsið ehf.
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn vegna umsóknar um tækifærisleyfi til að halda viðburð af hálfu Heima-Hafnar fyrir ungmenni á aldrinum 16 - 26 ára á Hafinu 23. júní 2026. Umsækjandi er Kartöfluhúsið ehf. kt. 610317-1890. Gestafjöldi: 20 manns. Bæjarráð veitti jákvæða umsögn í tölvupósti 22. júní 2026.
Lagt fram til kynningar.
*Samkvæmt 7. mgr. 32. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Hornafjarðar fer bæjarráð með sömu heimildir og bæjarstjórn hefur ella á meðan á sumarleyfi bæjarstjórnar stendur. Samkvæmt 351. fundi bæjarstjórnar Hornafjarðar þann 4. júní 2026 fer bæjarráð með fullt umboð til afgreiðslu mála á meðan á sumarleyfi bæjarstjórnar stendur, frá og með 16. júní 2026 til 20. ágúst 2026.
*Samkvæmt 7. mgr. 32. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Hornafjarðar fer bæjarráð með sömu heimildir og bæjarstjórn hefur ella á meðan á sumarleyfi bæjarstjórnar stendur. Samkvæmt 351. fundi bæjarstjórnar Hornafjarðar þann 4. júní 2026 fer bæjarráð með fullt umboð til afgreiðslu mála á meðan á sumarleyfi bæjarstjórnar stendur, frá og með 16. júní 2026 til 20. ágúst 2026.