Bæjarráð Hornafjarðar
1226. fundur
14. júlí 2026
kl.
10:00
-
14:00
í ráðhúsi
Nefndarmenn
Eyrún Fríða Árnadóttir
áheyrnarfulltrúi
Gauti Árnason
formaður
Ingibjörg Sveinsdóttir
varaformaður
Reynir Ásgeirsson
aðalmaður
Starfsmenn
Jóna Benný Kristjánsdóttir
Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs
Hjalti Þór Vignisson
bæjarstjóri
Fundargerð ritaði:
Jóna Benný Kristjánsdóttir
Sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá
1.
Fræðslu- og frístundanefnd - 139
Fundargerð fræðslu- og frístundanefndar nr. 139 lögð fram.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
2.
Hafnarstjórn Hornafjarðar - 284
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 284 lögð fram.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
3.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 117
Fundargerð umhverfis- og skipulagsnefndar nr. 117 lögð fram.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
4.
Íþróttahús - hönnun
Fundargerð stýrihóps um uppbyggingu nýrra íþróttamannvirkja nr. 52 lögð fram.
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
5.
Kosning í nefndir 2026-2030
Lagt er til að Aleksandra Ksepko (B) taki sæti sem varamaður í fjölmenningarráð í stað Nejru Mesetovic sem tekur sæti aðalmanns samkvæmt tilnefningu verkefnastjóra fjölmenningar- og gæðamála.Verkefnastjóri fjölmenningar- og gæðamála leggur til að eftirfarandi aðilar verði jafnframt kosnir í fjölmenningarráð: Courtney Michelle BrooksGoran BasrakNejra Mesetovic
Bæjarráð samþykkir samhljóða að Aleksandra Ksepko taki sæti Nejru Mesetovic sem varamaður í fjölmenningarráði. Þá samþykkir bæjarráð jafnframt samhljóða að Courtney Michelle Brooks, Goran Basrak og Nejra Mesetovic taki sæti í fjölmenningarráði samkvæmt tilnefningu verkefnastjóra fjölmenningar- og gæðamála.*
6.
Kjörstaðir í Sveitarfélaginu Hornafirði
Bæjarráð ákvað á fundi sínum nr. 1148 þann 22. október 2024 að vorið 2026 yrði kjördeild í Holti sameinuð við kjördeild í Heppuskóla.Framundan er þjóðaratkvæðagreiðsla um aðildarviðræður við ESB þann 29. ágúst 2026. Ákvörðun um kjörstaði þarf að liggja fyrir 22. júlí næstkomandi.
Bæjarráð staðfestir samhljóða ákvörðun frá fundi nr. 1148 að loka kjördeild í Holti og sameina við Heppuskóla fyrir komandi kosningar.*
7.
Ábyrgð á rekstri og kostnaði vegna búsetu barna með fjölþættan vanda
Lagt er fram til upplýsinga bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélga þar sem upplýst er að mennta- og barnamálaráðuneytið hafi birt reglugerð þar sem ríkið hafi einhliða endurskilgreint og þrengt þann hóp barna sem fellur undir samkomulag um breytta ábyrgðarskiptinu í málefnum barna með fjölþættan vanda.Minnisblað frá sviðsstjóra velferðarsviðs er jafnframt lagt fram.
Bæjarráð Hornafjarðar lýsir yfir stuðningi við kröfur og umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga og mótmælir einhliða þrengingu ríkisins á hugtakinu "börn með fjölþættan vanda" í reglugerðardrögunum.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
8.
Erindi til sveitarstjórna frá Landssambandi eldri borgara
Lögð eru fram áhersluatriði sem Landssamband eldri borgara setti fram fyrir síðustu sveitarstjórnarkosningar ásamt erindi frá sambandinu um að skipa í öldungaráð, hafi það ekki þegar verið gert. Þá eru sveitarstjórnir hvattar til að leggja áherslu á öflugt starf í öldungaráði frá upphafi kjörtímabils og boðið er upp á frekara samtal og samstarf um þessi málefni.
Bæjarráð þakkar Landssambandi eldri borgara fyrir hvatninguna og vísar erindinu til umfjöllunar í öldungaráði og velferðarnefnd.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
9.
Deiliskipulag - endurskoðun deiliskipulags Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands, HSU og deiliskipulags austan Víkurbrautar, svæði S3
Óskað er eftir afstöðu bæjarráðs til þess hvort hefja skuli undirbúning að endurskoðun deiliskipulags á svæðinu við Víkurbraut 24-30 og nærliggjandi reitum. Verkefnið tengist stefnumörkun sveitarfélagsins um uppbyggingu velferðarkjarna á svæðinu, þar sem horft verði heildstætt til framtíðaruppbyggingar búsetuúrræða, öldrunarþjónustu, þjónustu við fatlað fólk, hjúkrunarheimilis og heilbrigðisþjónustu.Í Framtíðarsýn í málefnum aldraðra 2026-2034 er lögð áhersla á fjölbreytta þjónustu, inngildandi samfélag og sjálfstætt líf, auk þess sem sérstaklega er gert ráð fyrir að unnið verði að endurskoðun deiliskipulags á Víkurbraut S3 og reit heilbrigðisstofnunarinnar með það að markmiði að móta velferðarkjarna.Lagt er fram minnisblað sviðsstjóra velferðarsviðs ásamt teikningum.
Bæjarráð felur sviðsstjóra velferðarsviðs að undirbúa erindisbréf og leggja fyrir bæjarráð.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
10.
Erindisbréf nefnda og ráða
Lagt er fyrir minnisblað sviðsstjóra velferðarsviðs ásamt drögum að uppfærðum og samræmdum erindisbréfum fyrir velferðarnefnd, öldungaráð, fjölmenningarráð og notendaráð um málefni fatlaðs fólks.Markmiðið með uppfærslunni er að eyða óvissu og tryggja jafnræði og skýrleika í stjórnsýslu og verklagi þessara ráða, sem öll starfa á sama málefnasviði.
Framundan er heildarendurskoðun á samþykktum og erindisbréfum sveitarfélagsins.
Bæjarráð samþykkir samhljóða framlögð erindisbréf velferðarnefndar, öldungaráðs, fjölmenningarráðs og notendaráðs um málefni fatlaðs fólks.*
Bæjarráð samþykkir samhljóða framlögð erindisbréf velferðarnefndar, öldungaráðs, fjölmenningarráðs og notendaráðs um málefni fatlaðs fólks.*
11.
Örútboð vegna reksturs tölvuþjónustu
Núverandi samningur um hýsingu og rekstur við Advania rennur út 31. ágúst 2026. Deildarstjóri upplýsingatæknideildar leggur til að Sveitarfélagið nýti sér ákvæði í 3. lið samningsins og framlengi gildistíma samnings, í annað sinn, um eitt ár eða til 31. ágúst 2027.
Bæjarráð samþykkir að nýta ákvæði í 3. lið samnings á milli sveitarfélagsins og Advania og felur deildarstjóra upplýsingatæknideildar að framlengja gildistíma samningsins um eitt ár. Þá er deildarstjóra upplýsingatæknideildar falið að hefja undirbúning að útboði þar sem ekki er möguleiki á að framlengja samninginn oftar.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
12.
Málefni FAS
Bæjarstjóri leggur fram minnisblað um málefni FAS.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna áfram að leiðum til þess að efla FAS og félagslíf ungs fólks á aldrinum 16-25 ára.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
13.
Skólamáltíðir útboð 2026
Lokadrög að samningi um skólamáltíðir fyrir Grunnskóla Hornafjarðar lagður fram til samþykktar.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að fela sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs að undirrita samning um skólamáltíðir fyrir Grunnskóla Hornafjarðar við Vigdísarholt í samræmi við framlögð drög.
14.
Ósk um aukafjárveitingu vegna ipada og tölvukaupa fyrir nemendur GH
Fræðslu- og frístundanefnd leggur til við bæjarráð að samþykkja ósk Grunnskóla Hornafjarðar um aukafjárveitingu vegna Ipada og tölvukaupa fyrir nemendur. Jafnframt hvetur nefndin skólastjórnendur til þess að setja búnaðarkaup fyrir skólann í fjárhagsáætlun hvers árs.Lögð er fram beiðni skólastjóra Grunnskóla Hornafjarðar um aukafjárveitingu auk minnisblaðs fjármálastjóra um fjárhagsleg áhrif þess að verða við beiðninni.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að vísa málinu til fjármálastjóra til viðaukagerðar.
15.
Styrkbeiðni fyrir körfuknattleiksdeild Sindra
Minnisblað sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs lagt fram ásamt minnisblaði fjármálastjóra um fjárhagsleg áhrif og gögnum frá Körfuknattleiksdeild Sindra.
Bæjarráð er jákvætt fyrir því að styrkja körfuknattleiksdeild Sindra um þá fjárhæð sem nemur áætluðum aðildargjöldum KKÍ og dómarkostnaði, en samkvæmt framlagðri fjárhagsáætlun er um að ræða 3.600.000 kr. Þá felur bæjarráð sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs að útfæra nánar hvernig sveitarfélagið getur lagt deildinni lið með öðrum hætti. Málinu er vísað til fjármálastjóra til viðaukagerðar.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
16.
Íþróttaskóli
Lagt er til að sveitarfélagið taki þátt í tilraunaverkefni um íþróttaskóla fyrir 1. og 2. bekk með umf. Sindra næsta vetur. Kostnaður sveitarfélagsins við verkið liggur fyrir. Lögð eru fram minnisblöð frá sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs og fjármálastjóra.
Bæjarráð er jákvætt fyrir verkefninu og vísar málinu til fjármálastjóra til viðaukagerðar.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
17.
Reglur um starfsemi leikskóla
Bæjarráð samþykkti breytingar á fæðisgjöldum og systkinaaflsætti leikskóla sem fræðslu- og frístundanefnd lagði til á fundi sínum 15. júní sl. Í ljósi þess leggur fræðslu- og frístundanefnd til breytingar á reglum um starfsemi leikskóla til samræmis við framangreindar breytingar á fæðisgjöldum og systkinaafslætti.
Bæjarráð samþykkir samhljóða framlagðar breytingar á reglum um starfsemi leikskóla.*
18.
Tæming rotþróa í sveitarfélaginu
Óskað er eftir leiðbeiningum bæjarráðs um framtíðarnálgun sveitarfélagsins varðandi tæmingu rotþróa og hvernig áframhaldandi þjónusta verður tryggð. Í mars hafði bæjarráð samþykkt að gengið yrði til samninga við bæði Hreinsitækni og Funa. Áætlaður samningskostnaður til þriggja ára:Hreinsitækni: um 16 m.kr. Funi: um 22 m.kr. Árlegar tekjur sveitarfélagsins af gjaldskrá fyrir tæmingu rotþróa eru um 12 m.kr.
Bæjarráð felur verkefnastjóra umhverfismála að ganga til samninga við báða aðila sem sendu inn tilboð á grundvelli tilboða þeirra og útboðsgagna. Þá er verkefnastjóra umhverfismála falið að fara yfir gjaldskrá fráveitu.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
19.
Málefni Silfurnessvallar
Golfklúbbur Hornafjarðar hefur staðið að metnaðarfullri uppbyggingu á félagsaðstöðu á undanförnum árum. Á teikniborðinu eru ýmsar aðgerðir til að bæta enn frekar aðstöðuna. Golfklúbburinn óskar núna eftir að varnargarður sem tengir svæði golfklúbbsins saman verði malbikaður.Lagt er fram minnisblað sviðsstjóra umhverfis- og framkvæmdasviðs, dags. 7. júlí, varðandi kynningu fyrir íbúum á fyrirhugaðri æfingaaðstöðu Golfklúbbsins á Hríshóli. Fram kemur að viðtökur íbúa voru almennt jákvæðar en jafnframt eru lagðar fram athugasemdir íbúa. Leggur sviðsstjóri til að erindið verði samþykkt.
Bæjarráð felur deildarstjóra þjónustu og framkvæmda að færa fjármagn sem gert var ráð fyrir í að gera stíg um golfvöllinn yfir í malbikun á stíg sem liggur á milli þriðju brautar og rauðs teigs á fjórðu braut.
Bæjarráð er jákvætt fyrir því að gerður verði æfingavöllur á Hríshólnum og veitir Golfklúbbnum heimild til þess með þeim fyrirvara að tekið verði tillit til athugasemda sem bárust af því að slegið sé í átt að leikvelli á Hólabraut.
Samþykkt samhljóða.
Bæjarráð er jákvætt fyrir því að gerður verði æfingavöllur á Hríshólnum og veitir Golfklúbbnum heimild til þess með þeim fyrirvara að tekið verði tillit til athugasemda sem bárust af því að slegið sé í átt að leikvelli á Hólabraut.
Samþykkt samhljóða.
20.
Horn - Deiliskipulag
Tillaga að deiliskipulagi að Horni var auglýst frá 10. mars 2025 til 21. apríl 2025. Umsagnir bárust frá HAUST, Vegagerðinni, Minjastofnun og Landhelgisgæslu Íslands. Farið hefur fram fornleifaskráning og hafa skipulagsgögn verið lagfærð í samræmi við umsagnir. Fyrir fundinum liggur samantekt á umsögnum og tillaga að viðbrögðum.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að tillagan verði send til athugunar Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga.*
21.
Skipulagslýsing vegna deiliskipulags fyrir fjölorkustöð í Skaftafelli II í Freysnesi í Öræfum
Tekin er fyrir lýsing vegna áforma Vegsauka ehf. um fjölorkustöð og þjónustumiðstöð, Skaftafelli II/Freysnesi í Öræfum. Á skipulagssvæðinu er gert ráð fyrir fjölorku- og þjónustulóð. Innan lóðarinnar yrði komið fyrir þjónustusvæði eldsneytisafgreiðslu, hleðslustöðvum fyrir rafbíla og þjónustumiðstöð. Viðfangsefni deiliskipulagsins er m.a. að afmarka lóð og byggingarreiti ásamt því að skilgreina fyrirkomulag aðkomu svæðisins og setja þau ákvæði sem ástæða er til í deiliskipulagi.
Bæjarráð samþykkir samhljóða lýsingu í samræmi við 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga og felur skipulags- og bygginarfulltrúa að kynna lýsinguna í samræmi við 3. mgr. 40. gr. sömu laga.*
22.
Breyting á deiliskipulagi Nýtt verslunar og þjónustu svæði við Fjárhaga
Sveitarfélagið hefur unnið að tillögu að breytingu á deiliskipulagi "Nýtt verslunar- og þjónustusvæði á Höfn". Breytingin felur í sér nýtt götunafn, Fjárhaga, stækkun lóðar að Fjárhaga 1 og stofnun lóðar undir spennistöð sem fær staðfangið Fjárhagi 3 B. Umhverfis- og skipulagsnefnd lagði til á 117. fundi sínum að breytingin yrði unnin sem óveruleg í samræmi við 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Bæjarráð samþykkir samhljóða framlagða óverulega breytingu á deiliskipulagi, að málsmeðferð verði í samræmi við 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga og felur skipulags- og bygginarfulltrúa að senda Húsnæðis-, mannvirkja, og skipulagsstofnun samþykkta deiliskipulagsbreytingu og birta auglýsingu um samþykkt hennar í B-deild Stjórnartíðinda.*
23.
Framkvæmd - Leikvöllur í Nesjahverfi - tilfærsla og endurbættur
Fyrir liggur hönnun að nýju leiksvæði við Mánagarð í Nesjum. Gert er ráð fyrir að svæðið verði byggt upp í áföngum með það að markmiði að efla aðstöðu til leikja og útivistar í hverfinu.Búið er að kynna verkefnið fyrir íbúaráði Nesja og Lóns og telja þau mikilvægt að hafist verði handa sem fyrst við áframhaldandi undirbúning og uppbyggingu leiksvæðis við Mánagarð. Íbúaráð gerir ekki athugasemdir við hönnun vallarins en óskar eftir því að staðsetningin verði færð í samræmi við umræður á fundinum þannig að leiksvæði verði þar sem körfuboltavöllurinn er teiknaður og körfuboltavöllurinn verði þar sem leiksvæðið átti að vera. Minnisblað verkefnastjóra umhverfis- og skipulagsmála lagt fram ásamt teikningum, verklýsingum og gögnum frá deildarstjóra þjónustu og framkvæmda.
Bæjarráð felur deildarstjóra þjónustu og framkvæmda að endurmeta og forgangsraða verkþáttum með því markmiði að leiktæki verði sett upp síðsumars.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
24.
Fráveita - framkvæmda- og fjárfestingaráætlun fyrir fráveitu í þéttbýli Hafnar
Sveitarfélagið Hornafjörður hóf vinnu við skipulag fráveitumála með verkfræðistofunni Vatnaskilum árin 2022-2023, en því verkefni var síðan frestað. Í ljósi nýrrar reglugerðar um fráveitur er brýnt að hefja þá vinnu að nýju til að greina næstu skref og meta fjárfestingarþörf. Lagt er til að samið verði við Vatnaskil um að klára verkið þar sem fyrirtækið býr nú þegar yfir yfirgripsmiklum gögnum og staðarþekkingu.
Bæjarráð er jákvætt fyrir að samið verði við Vatnaskil um að ljúka verkefninu og sendir erindið til fjármálastjóra til viðaukagerðar.
25.
Undirbúningur framkvæmdar - Sandbakki - gatnagerð
Sandbakki - gatnagerð, opnun tilboða. Minnisblað deildarstjóra þjónustu og framkvæmda lagt fram.Upphafleg kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 7.000.000 kr. en búið var að hækka áætlunina í 8.359.000 kr. Samþykkt hafði verið að þeirri hækkun yrði mætt með tilfærslu á fjárheimild frá íþróttamannvirkjum. Eitt tilboð barst í verkið: Skaftverk ehf: 7.033.962 kr. eða 84,15% af kostnaðaráætlun. Einungis er því þörf fyrir viðbótarfjárheimild að fjárhæð 33.962 kr. frá upphaflegri kostnaðaráætlun.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að fela deildarstjóra þjónustu- og framkvæmda að ganga til samninga við lægstbjóðanda, Skaftverk ehf. vegna Sandbakka - gatnagerðar á grundvelli tilboðsins og útboðsgagna.
26.
Undirbúningur framkvæmdar - Útiæfingasvæði við EKRU
Ósk um aukafjárveitingu vegna æfingasvæðis við Ekru. Minnisblað deildarstjóra þjónustu og framkvæmda lagt fram.Þann 16. júní sl. veitt bæjarráð deildarstjóra þjónustu- og framkvæmda heimild til að skipta verkinu upp og fara í viðræður við þá aðila sem tóku upphaflega gögn vegna tilboðsgerðar. Kostnaðaráætlun verksins er upp á 20.000.000 kr. með tækjum. Eftir samtöl við verktaka er áætlaður kostnaður 29.353.188 kr.
Bæjarráð felur deildarstjóra þjónustu og framkvæmda að hefja framkvæmdir en forgangsraða verkþáttum þannig að verkefnið sé innan fjárheimilda.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
27.
Reglur um úthlutun lóða - endurskoðun 2026 (lóðarvilyrði o.fl.)
Lögð eru fram til afgreiðslu endurskoðuð drög að reglum Sveitarfélagsins Hornafjarðar um úthlutun lóða. Breytingarnar miða að því að skýra betur ferlið, eyða óvissu og einfalda umsóknarferli um lóðir undir smádreifistöðvar og lítil hús veitukerfa.
Bæjarráð samþykkir samhljóða fyrirliggjandi breytingar á reglum Sveitarfélagsins Hornafjarðar um úthlutun lóða. Sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs er falið að birta reglurnar á heimasíðu sveitarfélagsins.*
28.
Íbúðarlóðir Hofi Öræfum, Borgartún
Bæjarstjóri leggur fram minnisblað um samning um uppbyggingu á deiliskipulögðu landi í Hofi í Öræfum.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við landeigendur um framhald málsins.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
29.
Landeignaskrá - Fjárhagi 3, merkjalýsing (M004025)
Lagt er fram erindi þar sem óskað er eftir staðfestingu sveitarfélagsins á merkjalýsingu þar sem gerðar eru breytingar á afmörkun og stærð tveggja landeigna, Hafnarbraut 60B (L238307) og Hafnarbraut 60C (L238308), ásamt því að breyta staðfangi þeirra og stofna svo nýja landeign úr einni þeirra.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við framlagða merkjalýsingu í samræmi við 6. gr. b. laga um skráningu, merki og mat fasteigna nr. 6/2001, sbr. einnig 48.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarráð telur að stofnun lóðanna hafi ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar, sbr. 6. gr. jarðalaga nr. 81/2004.
Bent er á að samþykki merkjalýsingar gefur ekki heimild til uppbyggingar eða framkvæmda á svæðinu.
Samþykkt samhljóða.*
Bæjarráð telur að stofnun lóðanna hafi ekki áhrif á búrekstrarskilyrði jarðarinnar, sbr. 6. gr. jarðalaga nr. 81/2004.
Bent er á að samþykki merkjalýsingar gefur ekki heimild til uppbyggingar eða framkvæmda á svæðinu.
Samþykkt samhljóða.*
30.
Innheimta gjalda skv.gjaldskrá umhverfis- og skipulagsfulltrúa
Sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs leggur fram álit lögmanns til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
31.
Endurskoðun stefnumótandi áætlunar í málefnum sveitarfélaga - grænbók
Innviðaráðuneytið hefur ýtt úr vör vinnu við endurskoðun stefnumótandi áætlunar í málefnum sveitarfélaga þar sem fyrsta skrefið er gerð grænbókar um málefnið.Í grænbók birtist stöðumat á helstu lögbundnu verkefnum og öðrum viðfangsefnum sveitarfélaga og greining áskorana og tækifæra, sem lagt verður til grundvallar endurskoðun stefnu og aðgerðaáætlunar í málaflokknum.Óskað er eftir að sveitarfélögin veiti upplýsingar inn í þessa vinnu og svari spurningum fyrir 21. september nk. Ekki verður vitnað í einstaka svör sveitarfélaga í grænbókinni heldur er hvert innlegg þáttur í því að draga fram heildarmynd um stöðu, áskoranir og tækifæri sveitarstjórnarstigsins.Óskað er eftir að umfjöllunin sé greinargóð en hnitmiðuð og byggi á tiltækum upplýsingum, reynslu og framtíðarsýn sveitarfélagsins.Bent er á að sambærilegur spurningalisti var sendur til sveitarfélaga vegna stefnumótunar árið 2022 og geta sveitarfélög sem þá tóku þátt stuðst við sín fyrri svör til einföldunar. Hægt er að hafa samband við undirritaða fyrir frekari upplýsingar eða aðgang að fyrri svörum.Loks er vakin athygli á því að sveitarfélögum mun gefast fleiri tækifæri til að hafa áhrif á stefnumótunina, m.a. með umsögnum um grænbók og síðar hvítbók/drög að stefnu í samráðsgátt stjórnvalda.
Bæjarráð felur sviðsstjórum og bæjarstjóra að ganga frá drögum að svörum við spurningum til sveitarfélaga vegna stefnumótunar og leggja fyrir bæjarráð í byrjun september.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
32.
Uppbygging miðbæjar á Höfn
Fulltrúar frá Landsbyggð og Batteríinu arkitektum kynntu stöðu í skipulagsvinnu vegna nýs miðbæjar fyrir aðal- og varamönnum bæjarstjórnar og aðal- og varamönnum í umhverfis- og skipulagsnefnd.
Bæjarráð þakkar fyrir góða kynningu og vísar málinu til hafnarstjórnar og umhverfis- og skipulagsnefndar til kynningar.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.
33.
Viðaukar við fjárhagsáætlun 2026
Bæjarstjóri gerði grein fyrir viðauka nr. 6 við fjárhagsáætlun ársins 2026. Með viðaukanum er óskað eftir viðbótarfjárheimild að fjárhæð 22,183 m.kr., sem gert er ráð fyrir að verði mætt með lækkun á handbæru fé. Meðfylgjandi yfirlit sýnir fjárhagsleg áhrif viðaukans á samþykkta fjárhagsáætlun sveitarfélagsins.Í haust mun fjármálastjóri, í samráði við bæjarstjóra, fara yfir fjárhagsáætlun ársins 2026, með sérstakri áherslu á fjárfestingaráætlun ársins og stöðu einstakra verkefna. Í kjölfarið verður óskað eftir heimild til að gera nauðsynlegar breytingar á fjárhagsáætluninni til samræmis við endurmetnar forsendur og stöðu verkefna.
Bæjarráð samþykkir samhljóða viðauka nr. 6 við fjárhagsáætlun ársins 2026.*
34.
Umsögn um útgáfu rekstrarleyfis - Gistileyfi í flokki II - C Minna gistiheimili - Myllulækur 10 - F2359325
Erindi frá sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn bæjarráðs um veitingu gistileyfis í flokki II - C, Minna gistiheimili, að Myllulæk 10, F2359325. Umsækjandi er Jökla Dekk ehf., kt. 580602-2150. Hámarksfjöldi gesta: 6.
Bæjarráð veitir samhljóða jákvæða umsögn.
35.
Umsögn um útgáfu rekstrarleyfis - Gistileyfi í flokki II - C Minna gistiheimili - Myllulækur 11 - F2359326
Erindi frá sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn bæjarráðs um veitingu gistileyfis í flokki II - C, Minna gistiheimili, að Myllulæk 11, F2359326. Umsækjandi er Jökla Dekk ehf., kt. 580602-2150. Hámarksfjöldi gesta: 4.
Bæjarráð veitir samhljóða jákvæða umsögn.
35.
Umsögn um útgáfu rekstrarleyfis - Gistileyfi í flokki II - C Minna gistiheimili - Myllulækur 12 - F2359327
Erindi frá sýslumanninum á Suðurlandi þar sem óskað er eftir umsögn bæjarráðs um veitingu gistileyfis í flokki II - C, Minna gistiheimili, að Myllulæk 12, F2359327. Umsækjandi er Jökla Dekk ehf., kt. 580602-2150. Hámarksfjöldi gesta: 4.
Bæjarráð frestar málinu þar sem leiðrétta umsögn slökkviliðs vantar í málið.
37.
Fundargerðir - Samtök orkusveitarfélaga 2026
Lögð er fram fundargerð frá aukaaðalfundi Samtaka orkusveitarfélaga sem haldinn var 29. apríl sl. Jafnframt eru lagðar fram uppfærðar samþykktir samtakanna í samræmi við þær breytingar sem samþykktar voru á aukaaðalfundinum.
Lagt fram til kynningar.
38.
Samningsviðauki við Hringrás vegna flutnings og förgunar endurvinnanlegs úrgangs
Málið er lagt fyrir bæjarráð til að óska eftir heimild til að semja um skriflegan samningsviðauka við Hringrás þannig að gildandi samningur endurspegli þá þjónustu sem veitt hefur verið í framkvæmd frá september 2023.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að veita verkefnastjóra umhverfismála umboð til að ganga frá samningsviðauka við Hringrás vegna flutnings og förgunar endurvinnanlegs úrgangs í samræmi við framlögð gögn.
*Samkvæmt 7. mgr. 32. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Hornafjarðar fer bæjarráð með sömu heimildir og bæjarstjórn hefur ella á meðan á sumarleyfi bæjarstjórnar stendur. Samkvæmt 351. fundi bæjarstjórnar Hornafjarðar þann 4. júní 2026 fer bæjarráð með fullt umboð til afgreiðslu mála á meðan á sumarleyfi bæjarstjórnar stendur, frá og með 16. júní 2026 til 20. ágúst 2026.
*Samkvæmt 7. mgr. 32. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Hornafjarðar fer bæjarráð með sömu heimildir og bæjarstjórn hefur ella á meðan á sumarleyfi bæjarstjórnar stendur. Samkvæmt 351. fundi bæjarstjórnar Hornafjarðar þann 4. júní 2026 fer bæjarráð með fullt umboð til afgreiðslu mála á meðan á sumarleyfi bæjarstjórnar stendur, frá og með 16. júní 2026 til 20. ágúst 2026.